Fleiri fréttir

Borgarfulltrúar þurfa ekki að óttast úttekt á utanlandsferðum

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ráðningu Jakobs Frímanns Magnússonar vera sambærilega við ráðningar hjá borginni undanfarin ár. Hann segist ekki óttast boðaða úttekt borgarstjóra á utanlandsferðum borgarfulltrúa en segir nauðsynlegt að þeir ferðist til útlanda til að læra af reynslu annara.

Segist ekki hafa lagt drög að handtöku Jóns Ásgeirs

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir það rangt sem fram hafi komið í fréttaskýringu DV þann 1. maí að hann hafi lagt drög að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, yrði handtekinn í framhaldi af húsleit hjá Baugi.

„Starfið verður auglýst í fyllingu tímans“

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um það hafi verið rætt innan meirihlutans að fá sterkan aðila að málefnum miðborgarinnar. Gríðarlegir hagsmunir séu í húfi og óvissutímabil framundan. Hann segist þeirrar skoðunnar að auglýsa eigi öll störf innan borgarkerfisins en að gild rök geti verið fyrir því að gera á því undantekningu eins og gert var þegar Jakob Frímann Magnússon var ráðinn framkvæmdastjóri miðborgar. Hann segist gera ráð fyrir að starfið verði auglýst í fyllingu tímans.

Dæmdur fyrir að sparka í höfuð manns

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sparkað í höfuðið á öðrum manni við útitaflið í miðbænum.

Guðmundur var með dýflissu í Hafnarfirði

Í framburði fórnarlamba Guðmundar Jónssonar í Byrginu kemur fram að á heimili hans í Háholti í Hafnarfirði var dýflissa sem Guðmundur notaði þegar hann stundaði bdsm kynlíf með skjólstæðingum sínum á meðferðarheimilinu.

Semja ekki við Landsvirkjun vegna virkjana í Þjórsá

Landeigendur við neðanverða Þjórsá fagna yfirlýsingu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra þess efnis að hún muni ekki beita eignarnámi til þess að tryggja Landsvirkjun nauðsynleg lands- og vatnsréttindi til virkjanaframkvæmda.

Minntust uppgjafar nasista í síðari heimsstyrjöldinni

Í dag er þess víða minnst að sextíu og þrjú ár eru liðin frá því að herir nasista gáfust upp fyrir bandamönnum í heimsstyrjöldinni síðari. Minningarathöfn var við minnismerki Rússa í Fossvogskirkjugarði í morgun.

Ráðlagði Ólafi að auglýsa miðborgarstarf

Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ráðningar Jakobs Frímanns Magnússonar í starf framkvæmdastjóra miðborgar. Þar staðfestir hún að hún hafi ráðlagt Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra að auglýsa starf miðborgarstjóra.

Vilhjálmur og Ólafur F. sammála um ráðningu Jakobs

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri ráðfærði sig við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita Sjálfstæðismanna, áður en hann réð Jakob Frímann Magnússon sem framhandlegg sinn. Þetta staðfesti Vilhjálmur við Vísi í dag.

Guðmundur virtist hafa valið sér fórnarlömb

Dómarar í Byrgismálinu fara hörðum orðum um Guðmund Jónsson í dómnum sem kveðinn var upp í morgun. Guðmundur hafi unnið markvisst að því að fá kærendur til fylgilags við sig og hann virðist hafa valið sér fórnarlömb sem áttu mjög erfiða kynlífsreynslu að baki.

Umferðarslys á Holtavörðuheiði

Umferðarslys varð fyrir stundu á Holtavörðuheiði en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er ekki talið að slysið sé alvarlegt.

Gerir ráð fyrir að dómi verði áfrýjað

Hilmar Baldursson, verjandi Guðmundar Jónssonar í Byrginu, sagði við fréttamenn eftir að dómur yfir Guðmundi var kveðinn upp að hann gerði ráð fyrir að honum yrði áfrýjað.

Íslendingar missa ekki svefn yfir jarðhlýnun

Íslendingar hafa ekki þungar áhyggjur af því að hlýnun jarðar muni valda þeim búsifjum. A.m.k. ekki ef marka má nýlega könnun Gallup International sem gerð var víða um heim í tilefni af degi jarðarinnar 22. apríl.

Guðmundur í Byrginu í þriggja ára fangelsi

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í starfi sem forstöðumaður. Hann var einnig dæmdur til þess að greiða um 12 milljónir í sakarkostnað og miskabætur. Dómur var kveðinn upp fyrir stundu.

Útflutningur jókst um fjórðung í fyrra

Útflutningur frá Íslandi í fyrra jókst um rúmlega fjórðung á milli ára á meðan innflutningur dróst saman um eitt prósent. Þetta kemur fram í heftinu Utanríkisverslun sem Hagstofa Íslands gefur út.

Óvænt samkomulag hjá flugmönnum

Samningamenn Icelandair og flugmanna hjá félaginu náðu óvænt samkomulagi í kjaradeilu sinni hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi.

Ofsaakstur á Hringbraut

Tveir ökumenn bifhjóla voru sviftir ökuréttindum laust eftir miðnætti vegna ofsaaksturs á Hringbraut, þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund.

Slapp ótrúlega vel þegar sleðinn fór fram af hengju

Karlmaður á fimmtugs aldri þykir hafa sloppið ótrúlega vel þegar hann ók vélsleða fram af fjögurra metra hárri hengju og sleðinn lenti að hluta ofan á honum eftir fallið. Slysið varð í Skriðutindum norður af Laugarvatni.

RÚV hugðist ekki mynda handtöku Jóns Ásgeirs

Fréttastjóri Ríkissjónvarpsins segir það rangt sem haldið sé fram í DV þann 1. maí síðastliðinn að myndatökumenn og fréttamenn frá RÚV hafi verið í Leifsstöð fimmtudaginn 29. ágúst 2002 og beðið eftir að ná myndum af handtöku Jóns Ásgeirs Jóhannessonar þegar hann kæmi til landsins með áætlunarflugi í tengslum við svokallað Baugsmál. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Elín Hirst fréttastjóri hefur sent fjölmiðlum.

Flugmenn og Icelandair náðu lendingu í kvöld

Á níunda tímanum í kvöld voru undirritaðir kjarasmaningar hjá sáttasemjara á milli Icelandair Group og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Lengi hefur verið reynt að ná lendingu í þessu máli og voru menn meðal annars byrjaðir að hugsa um verkfall.

Rændu bensínstöð á Ísafirði

Lögreglan á Vestfjörðum hefur upplýst þjófnaðarmál á bensínstöðinni á Ísafirði þaðan sem verulegum fjármunum var stolið aðfaranótt mánudagsins 5. maí sl.

Ég er að vanda mig

Ólafur F Magnússon borgarstjóri segist hafa þekkt Jakob Frímann Magnússon nýráðinn framkvæmdarstjóra Miðborgar lengi en ráðningin sé ekki til komin vegna þess. Hann telur Jakob rétta manninn í starfið og boðar niðurskurð í borgarkerfinu, sérstaklega hjá stjórnmálamönnum.

Þrjátíu þúsund íslendinga gætu lent í greiðsluerfiðleikum

Tæplega þrjátíu þúsund manns sem skulda umfram eignir, gætu lent í greiðsluerfiðleikum á næstu mánuðum vegna aukinnar greiðslubyrði og lækkunar á húsnæðisverði. Seðlabankinn telur að íslenska fjármálakerfið sé traust og bankarnir vel í stakk búnir til að bregðast við áföllum.

Litháar afpláni í heimalandinu

Dómsmálaráðherra Litháens segir stefnt að því að Litháar sem fremji afbrot á Íslandi og fá fangelsisdóm afpláni í heimalandi sínu. 3 Litháar eru nú í íslenskum fangelsum og 7 í gæsluvarðhaldi.

Borgarstjóri segist ekki hafa þurft að auglýsa starfið

Borgarstjóri segir að eftir skoðun á kjörum Jakobs Frímanns Magnússonar, nýráðnum framkvæmdarstjóra miðborgarmála, og fyrrverandi miðborgarstjóra R-listans frá árinu 2005 að laun þeirra séu sambærileg. Hann segir að farið hafi verið eftir reglum við ráðninguna.

Vill fá bætur vegna árásar nýborinnar kýr

Í dag felldi Hæstaréttur úrskurð í máli þar sem stúlka fer fram á greiðslu skaðabóta vegna þess að hún hafi orðið fyrir líkamstjóni við rekstur nýborinnar kýr í ágúst árið 2002. Málinu var vísað aftur í hérað.

Slökkvilið tapar Hringrásarmáli í Hæstarétti

Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm í máli slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á hendur endurvinnslufyrirtækinu Hringrás vegna mikils bruna á athafnasvæði Hringrásar í nóvember.

Amnesty vill ekki rafbyssur á Íslandi

Íslandsdeild Amnesty International ítrekar andstöðu sína við rafbyssur (Taser) í frétta tilkynningu sem send hefur verið fjölmiðlum. Fréttatilkynningin fer hér á eftir.

Sjá næstu 50 fréttir