Innlent

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að særa blygðunarkennd

Karlmaður var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir að hafa sest á rúm 18 ára gamallar stúlku, káfa á brjóstum hennar utan klæða og reyna að kyssa hana.

Þannig hafi maðurinn sært blygðunarkennd stúlkunnar. Að auki var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur í miskabætur. 

Ákvörðun um refsingu byggðist öðru fremur á því að alvarlegir gallar hafi verið á meðferð málsins en málið hefur fjórum sinnum verið flutt og dómtekið í héraði. Þrisvar sinnum fóru fram skýrslutökur við aðalflutning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×