Ég er að vanda mig 8. maí 2008 19:20
Ólafur F Magnússon borgarstjóri segist hafa þekkt Jakob Frímann Magnússon nýráðinn framkvæmdarstjóra Miðborgar lengi en ráðningin sé ekki til komin vegna þess. Hann telur Jakob rétta manninn í starfið og boðar niðurskurð í borgarkerfinu, sérstaklega hjá stjórnmálamönnum. Ólafur var gestur í Íslandi í dag fyrir stundu þar sem umdeild ráðning Jakobs var rædd. Ólafur lagði á það áherslu að ekki þyrfti að auglýsa tímabundin störf innan borgarinnar en ráðning Jakobs er til 12 mánaða og rúmast innan þess ramma. Hann segir stöðuna verða auglýsta verði hún enn til að ári liðnu. Aðspurður hvort hann skildi að fólki sviði ráðningin sagði Ólafur að ekki væri verið að snuða einn eða neinn hugsanlegan umsækjanda. „Það er verið að ráða þennan mann í þetta átak en ekki verið að þenja út stjórnkerfið. Ég ætla að skera niður og sérstaklega hjá stjórnmálamönnum. Ég er að vanda mig og vísa aðdróttunum um að ég sé að stuðla að ofurlaunum há borginni á bug. Ég hefa alla tíð verið mjög aðahaldssamur." Ólafur sagðist t.a.m sjálfur aldrei hafa farið í ferðir erlendis á vegum borgarinnar en honum hafi oft verið boðið í slíkar ferðir. Hann ætlar að láta skoða utanlandsferðir borgarfulltrúa á árunum 2005-2008.
Tengdar fréttir Ólafur ætlar að skoða sporslur og greiðslur til borgarfulltrúa - Situr ekki undir spillingarbrigslum Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að það sé "ósmekklegt" að segja Jakob Frímann Magnússon fái 860 þúsund krónur á mánuðir fyrir að gegna starfi framkvæmdastjóra miðborgarmála eins og segir í launasamningi hans. 8. maí 2008 15:57 Segir sorglegt hvernig komið er fyrir Reykjavíkurborg Kjörtímabilið eftir síðustu sveitastjórnarkosningar er orðið að einhverskonar farsa. Þetta segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands, aðspurður um það hvað honum finnist um umræðuna um launamál Jakobs Frímanns Magnússonar. 8. maí 2008 15:41 Ein og hálf milljón á mánuði í aðstoð til Ólafs Þeir tveir starfsmenn Reykjavíkurborgar sem heyra beint undir Ólaf F. Magnússon borgarstjóra eru með samanlagt eina og hálfa milljón á mánuði í laun. 8. maí 2008 14:47 Borgarstarfsmenn brjálaðir vegna launa Jakobs Frímanns Tölvupóstar og símhringingar hafa streymt inn á skrifstofu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar vegna frétta af ráðningakjörum Jakobs Frímanns Magnússonar. 8. maí 2008 11:25 Borgarstjóri í febrúar: Mikilvægt að sýna ráðdeild í fjármálum borgar Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lagði fram tillögu á fundi borgarráðs þannn 28. febrúar að skipuð yrði stjórnkerfisnefnd til þess að leggja fram tillögur um sparnað við yfirstjórn borgarinnar. Við sama tækifæri lét hann bóka að mikilvægt væri að kjörnir fulltrúar borgarinnar sýndu ráðdeild og aðhald í fjármálum. 8. maí 2008 10:15 Spyrja ítarlega út í ráðningu Jakobs Frímanns Fulltrúar minnihlutans í borgarráði hafa lagt fram ítarlegan spruningarlista vegna ráðningar Jakobs Frímanns Magnússonar í stöðu framkvæmdastjóra miðborgarmála. 8. maí 2008 13:04 Yfirvinnulaun Jakobs eru jafn há kennaralaunum Föst yfirvinnulaun Jakobs Frímanns Magnússonar eru jafn há meðalheildarlaunum nýútskrifaðs grunnskólakennara. 8. maí 2008 14:52 Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira
Ólafur ætlar að skoða sporslur og greiðslur til borgarfulltrúa - Situr ekki undir spillingarbrigslum Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að það sé "ósmekklegt" að segja Jakob Frímann Magnússon fái 860 þúsund krónur á mánuðir fyrir að gegna starfi framkvæmdastjóra miðborgarmála eins og segir í launasamningi hans. 8. maí 2008 15:57
Segir sorglegt hvernig komið er fyrir Reykjavíkurborg Kjörtímabilið eftir síðustu sveitastjórnarkosningar er orðið að einhverskonar farsa. Þetta segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands, aðspurður um það hvað honum finnist um umræðuna um launamál Jakobs Frímanns Magnússonar. 8. maí 2008 15:41
Ein og hálf milljón á mánuði í aðstoð til Ólafs Þeir tveir starfsmenn Reykjavíkurborgar sem heyra beint undir Ólaf F. Magnússon borgarstjóra eru með samanlagt eina og hálfa milljón á mánuði í laun. 8. maí 2008 14:47
Borgarstarfsmenn brjálaðir vegna launa Jakobs Frímanns Tölvupóstar og símhringingar hafa streymt inn á skrifstofu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar vegna frétta af ráðningakjörum Jakobs Frímanns Magnússonar. 8. maí 2008 11:25
Borgarstjóri í febrúar: Mikilvægt að sýna ráðdeild í fjármálum borgar Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lagði fram tillögu á fundi borgarráðs þannn 28. febrúar að skipuð yrði stjórnkerfisnefnd til þess að leggja fram tillögur um sparnað við yfirstjórn borgarinnar. Við sama tækifæri lét hann bóka að mikilvægt væri að kjörnir fulltrúar borgarinnar sýndu ráðdeild og aðhald í fjármálum. 8. maí 2008 10:15
Spyrja ítarlega út í ráðningu Jakobs Frímanns Fulltrúar minnihlutans í borgarráði hafa lagt fram ítarlegan spruningarlista vegna ráðningar Jakobs Frímanns Magnússonar í stöðu framkvæmdastjóra miðborgarmála. 8. maí 2008 13:04
Yfirvinnulaun Jakobs eru jafn há kennaralaunum Föst yfirvinnulaun Jakobs Frímanns Magnússonar eru jafn há meðalheildarlaunum nýútskrifaðs grunnskólakennara. 8. maí 2008 14:52