Ráðlagði Ólafi að auglýsa miðborgarstarf 9. maí 2008 12:01
Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ráðningar Jakobs Frímanns Magnússonar í starf framkvæmdastjóra miðborgar. Þar staðfestir hún að hún hafi ráðlagt Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra að auglýsa starf miðborgarstjóra.Regína segir einnig að þar sem borgarstjóri hafi fremur kosið að fá inn aðila með skömmum fyrirvara, vegna brýnna verkefna í miðborginni, þá hefði hún staðfest að það væri heimild fyrir því að ráða í störf sem væru eitt ár eða skemur.Ólafur F. Magnússon hefur rætt ráðningu Jakobs víða, þar á meðal í Íslandi í dag og Kastljósi í gær. Þar hefur hann sagt að hann hafi ráðfært sig við skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra og mannauðsstjóra borgarinnar.Það sama gerði hann á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og samkvæmt tilkynningu frá Sigrúnu Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, sagði hann: „Það var sérstök ábending skrifstofustjórans að hér væri um skammtímaráðningu að ræða og þyrfti ekki að auglýsa hana og hann var hafður með í ráðum frá fyrstu stundu í þessu máli og hefur raunar líka komið að ráðningu verkefnisstjóra inn á skrifstofuna, þar sem ég kom nú minnst að því máli frá upphafi til enda, en treysti mínum skrifstofustjóra og sú staða var ekki auglýst." Í þessum þremur tilvikum minntist Ólafur hins vegar ekki á að skrifstofustjórinn hefði ráðlagt honum að auglýsa starfið.Benti á laun fyrrverandi miðborgarstjóraRegína Ásvaldsdóttir bendir einnig á í yfirlýsingu sinni að hún hafi ekki komið að ráðningarsamningi Jakobs Frímanns Magnússonar en hún hafi óskað eftir því að mannauðsskrifstofa Reykjavíkurborgar skoðaði launakjör hugsanlegs miðborgarstjóra. „Ég benti á að það væri eðlilegt að líta meðal annars til kjara fyrrum miðborgarstjóra. Að öðru leiti annast mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar ráðningar sem heyra beint undir borgarstjóra," segir Regína og bætir við: „Ég tel að Jakob Frímann Magnússon verði farsæll í starfi sem miðborgarstjóri Reykjavíkur og fagna því að fá hann sem samstarfsmann á skrifstofu borgarstjóra."
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira