Ólöf Guðný: Heiðarleika borgarstjóra skal ekki draga í efa 9. maí 2008 08:28 Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra.
Ólöf G. Valdimarsdóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra, segir fulla einingu hafa verið á skrifstofu borgarstjóra um að ráða í stöðu framkvæmdastjóra miðborgarmála með þeim hætti sem gert var. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá henni eftir að Ríkissjónvarpið greindi frá því í gær að skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra hefði ráðlagt Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra að auglýsa stöðuna. Mikil reiði hefur verið meðal borgarstarfsmanna vegna þeirra kjara sem Jakob Frímann Magnússon hefur verið ráðinn á en hann er með 861 þúsund krónur í laun fyrir starfið og setu í nefndum og ráðum í borginni. Í tíufréttum Sjónvarps í gærkvöld kom enn fremur fram að skrifstofustjóri borgarstjóraskrifstofu hefði ekki komið að launaákvörðun og ráðningarsamningi við Jakob en ráðningin heyrði undir mannauðsstjóra. Þetta gengur þvert á orð borgarstjóra í bæði Íslandi í dag og Kastljósi í gær en þar sagði hann að ákvörðunin um ráðningu hefði verið tekin í samráði við bæði skrifstofustjórann og mannauðsstjórann. Í tilkynningu aðstoðarmanns borgarstjóra segir enn fremur að hugmyndir um að ráða Jakob F. Magnússon tímabundið í starfið hafi fyrst og fremst verið vegna þess að hann var talinn vera mjög hæfur til að sinna starfinu. Launin séu í samræmi við það sem Miðborgarstjóri fékk áður fyrir sambærilegt starf. „Heiðarleika borgarstjóra í þessum efnum sem og öðrum skal ekki draga í efa og er óskað eindregið eftir að nú fáist vinnufriður svo hægt sé að sinna mikilvægum málefnum sem bíða úrlausna," segir Ólöf.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira