Vilhjálmur og Ólafur F. sammála um ráðningu Jakobs 9. maí 2008 11:18 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon er samstíga.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri ráðfærði sig við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita Sjálfstæðismanna, áður en hann réð Jakob Frímann Magnússon sem framhandlegg sinn. Þetta staðfesti Vilhjálmur við Vísi í dag. "Ég og Ólafur ræddum þessa ráðningu áður en hún var tilkynnt og ég get sagt það að ég er mjög sáttur við hana. Ég tel Jakob Frímann vera öflugan mann sem á eftir að láta til sín taka í borginni," segir Vilhjálmur. Aðspurður um laun Jakobs sagðist Vilhjálmur alveg geta skilið það að sumum finnst þau há. "Það er misjafnt hvað fólki finnst. Ég bendi hins vegar á að einstaklingur í sömu stöðu í tíð R-listans var með sömu laun og Jakob fær. Það hlýtur að segja eitthvað," segir Vilhjálmur. Ólíkt forvera sínum sem heyrði undir skrifstofu borgarstjóra heyrir Jakob Frímann beint undir borgarstjóra. Vilhjálmur segir ekkert óeðlilegt við það. "Eigum við ekki bara að vera ánægð með að borgarstjórinn vilji vera í svo nánum tengslum við þann mann sem mun bera hitann og þungann af endurreisn miðborgarinnar næsta árið," segir Vilhjálmur. Ráðning Jakobs Frímanns er tímabundin til eins árs og Vilhjálmur sagðist ekki svarað því hvað yrði um Stuðmanninn þegar hann tæki við sem borgarstjóri eftir tæpt ár. "Eitt ár er langur tími og það verður skoðað þegar að því kemur."
Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira