Innlent

Semja ekki við Landsvirkjun vegna virkjana í Þjórsá

Landeigendur við neðanverða Þjórsá fagna yfirlýsingu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra þess efnis að hún muni ekki beita eignarnámi til þess að tryggja Landsvirkjun nauðsynleg lands- og vatnsréttindi til virkjanaframkvæmda. Þessu lýsti Þórunn yfir á Alþingi í gær.

Í tilkynningu frá landeigendunum segir enn fremur að þeir ætli sér ekki að semja við Landsvirkjun um lands- og vatnsréttinndi sín. Þeir skora á ríkisstjórn Íslands að gefa Landsvirkjun þegar í stað fyrirskipun um að hætta vinnu við undirbúning virkjana í Þjórsá enda verði þær ekki byggðar nema að undangengnu eignarnámi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×