Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir að stela leðurjakka

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið leðurjakka úr versluna Hagkaupa í Kringlunni.

Má ekki breyta verði á ferðum nema með samþykki kaupanda

Viðskiptaráðuneytið segir að samkvæmt lögum um alferðir megi ekki breyta verði á slíkri ferð nema skýrt sé tekið fram við samningsgerð að verð geti hækkað eða lækkað og nákvæmlega tilgreint hvernig reikna skuli út breytt verð.

Svavar ánægður með Kaupmannahafnarfundinn

Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, segir að ráðstefnan um íslensk efnahagsmál sem haldin var þar í borg í síðustu viku hafi verið sérstaklega vel heppnuð. Húsfyllir var og komust færri að en vildu. Nokkuð hefur verið fjallað um dræmar undirtektir danskra fjölmiðla á málinu og talað um að fundurinn hafi ekki verið nægilega vel kynntur. Sendiráðið kom að skipulagningu fundarins og segir Svavar að þar á bæ séu menn ánægðir með árangurinn.

Kærir Remax Esju til eftirlitsnefndar

Athafnamaðurinn Ragnar Magnússon ætlar að kæra fasteignasöluna Remax Esju til eftirlitsnefndar fasteignasala vegna fasteignaviðskipta sem hann átti við fasteignasöluna síðasta ári.

Launaleyndarmál RÚV opinberað eftir helgi

Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að ráðningasamningar Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, og Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins,

Gagnrýna lyfjagreiðslunefnd fyrir villandi tilkynningar

Samtök verslunar og þjónustu gagnrýna lyfjagreiðslunefnd fyrir tilkynningar nefndarinnar til fjölmiðla þar sem borið er saman heild- og smásöluverð á lyfseðilskyldum lyfjum á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum.

Lagði áherslu á málefni kvenna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lagði áherslu á málefni kvenna í heimsókn sinni til Afghanistan sem lauk í gær.

Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur í Hafnarfirði

Alvarlegt umferðarslys varð á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Stakkahrauni í Hafnarfirði um hálftvöleytið í dag þar sem tveir bílar rákust saman. Annar bíllinn ók inn á Reykjavíkurvegveg og hafnaði á hinum bílnum. Sjúkrabíll og tækjabíll frá slökkviliði voru kallaðir til og var einn var fluttur á slysadeild. Ekki er vitað nánar um orsök slyssins né ástand hins slasaða. Hafnarfjarðarvegi var lokað um tíma vegna slyssins en hann verður aftur opnaður nú klukkan þrjú.

Great Wall-málið ekki til Útlendingastofnunar

Mál kínverska starfsfólksins á The Great Wall sem fjallað hefur verið um á Vísi og í Fréttablaðinu hefur ekki komið inn á borð Útlendingastofnunar enda segir Hildur Dungal forstjóri mál af þessu tagi yfirleitt ekki heyra beint undir stofnunina.

Fíkniefnafundur á Fáskrúðsfirði hefur lítil áhrif á verð

Fíkniefnafundurinn í Fáskrúðsfjarðarmálinu virðist hafa haft lítil áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi til langs tíma ef marka má verð á fíkniefnum nú um stundir. Yfirlæknir á Vogi segir að þegar þrengt sé að einu efni sæki fíklar í annað.

Kínverski sendiherrann kom ekki til dyra

Enginn kom til dyra þegar Ungir jafnaðarmenn bönkuðu upp á hjá sendiherra Kína á Íslandi klukkan 11 í dag. Erindi jafnaðarmannana ungu var að færa sendiherranum bréf þar sem spurt er út í framferði Kínverja í Tíbet. „Starfsmenn sendiráðsins kusu að koma ekki til dyra en fyrir utan sendiráðið fylgdust nokkrir lögreglumenn með,“ segir í tilkynningu frá Ungum jafnaðarmönnum.

Olíuverð og gengissveiflur ólíðandi fyrir ferðaþjónustuna

Aðilar í ferðaþjónustu segja hátt olíuverð og gengissveiflur undanfarna daga nær ólíðandi og má búast við frekari hækkunum á næstunni. Ferðaskrifstofur verja meiri tíma í að fylgjast með gengi krónunnar heldur en bókunum farþega.

Tveggja leitað vegna íkveikju í Hrafnhólum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna, sem grunaðir eru um að hafa kveikt í íbúð í fjölbýlishúsi við Hrafnhóla í Reykjavík, síðastliðinn laugardagsmorgun.

Þórarinn að hætta hjá SÁÁ

Þórarinn Tyrfingsson hættir störfum innan skamms hjá SÁÁ. Hann segir fordóma í samfélaginu hafa minnkað mikið gagnvart alkóhólisma en enn vanti uppá.

MATVÍS vill sömu leikreglur fyrir alla

Níels Olgeirsson, formaður Matvæla- og veitingafélags Íslands, MATVÍS, segir að alltaf sé nokkuð um að félagið fái upplýsingar inn á borð til sín sem leiði til aðgerða af þess hálfu en mál tveggja Kínverja sem störfuðu á The Great Wall við Vesturgötu hófst einmitt með þeim hætti að félaginu bárust upplýsingar um að starfsfólkið byggi á veitingastaðnum.

Ungir jafnaðarmenn senda sendiherra Kína bréf

Vegna harkalegra aðgerða kínverskra stjórnvalda gegn stuðningsmönnum útlagastjórnar Tíbet færa Ungir jafnaðarmenn sendiherra Kína á Íslandi opið bréf klukkan 11 í dag.

Gáfu Barnaspítalanum veglegar gjafir

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur gefið Barnaspítala Hringsins fullkominn fjarkennslubúnað, hægindastóla og húsgögn í foreldraherbergi og fleira.

Vélsleðamaður í kröppum dansi

Vélsleðamaður komst í hann krappann þegar hann var að fleyta sleða sínum á Laugarvatni í gærkvöldi og skyndilega drapst á vélinni. Við það hægði á ferðinni og sleðinn sökk.

Innbrot framið í MK í nótt

Innbrot var framið í Menntaskólann í Kópavogi í nótt og þaðan stolið nýjum skjávarpa að andvirði á þriðja hundrað þúsund krónur.

Borinn út á Bergþórshvoli

Héraðsdómur Suðurlands hefur kveðið upp þann úrskurð að maður skuli ásamt öllu því sem honum tilheyrir borinn út úr bílskúr, vélageymslu, eldhúsi, þvottahúsi og aðliggjandi gangi á neðri hæð íbúðarhússins að Bergþórshvoli 2 í Rangárþingi eystra.

Íslendingar geta ekki lagað stöðuna á markaðnum

Árni Mathiesen fjármálaráðherra leggur áherslu á að stöðuna á íslenska fjármálamarkaðinum megi rekja til atburða sem séu að gerast úti í heimi. Hann segir að Íslendingar geti ekki haft áhrif á þá þróun.

Vilja efla kynningu á iðn- og starfsnámi fyrir börn og unglinga

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa F-lista og Sjálfstæðisflokks um að Reykjavíkurborg geri áætlun sem miði að því að höfuðborgin verði í fremstu röð sveitarfélaga varðandi kynningu á iðn- og starfsnámi fyrir börn og unglinga.

Ferðaskrifstofur uggandi yfir gengissveiflum

Ferðaskrifstofur hafa þegar hækkað verð á utanlandsferðum vegna gengislækkunar krónunnar. Kostnaður Íslendinga á ferðum þeirra erlendis hefur snarhækkað frá því um áramót.

Kröfu RÚV í launaleyndarmálinu hafnað

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafnaði í dag kröfu Ríkisútvarpsins þess efnis að gildistöku úrskurðar nefndarinnar frá 11. mars síðastliðnum yrði frestað. Þar var úrskurðað að RÚV ætti að veita Vísi aðgang að ráðningarsamningum Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur dagskrárstjóra.

Borgarstjóri dregur ummælin um Óskar til baka

Í upphafi borgarstjórnarfundar í dag kvað Ólafur F. Magnússon borgarstjóri sér hljóðs og dró til baka fyrri ummæli sín um Óskar Bergsson borgarfulltrúa Framsóknarflokksins frá síðasta fundi borgarstjórnar Reykjavíkur.

„Fulltrúi sýslumanns ætti að kynna sér lögin“

„Til að byrja með ætti þessi fulltrúi sýslumanns að kynna sér lögin áður en hann fer að gaspra í fjölmiðlum,“ segir Erlendur Þór Gunnarsson, lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar. Helgi hefur kært hundrað manns fyrir ummæli sem féllu á Netinu í kjölfar Lúkasarmálsins svokallaða. Eyþór Þorbergsson, lögfræðingur hjá Sýslumanninum á Akureyri sagði í samtali við Vísi í dag að stór hluti kærunnar varðaði ærumeiðingar, sem ekkert erindi ættu á borð sýslumanns.

Fimm slagsmálahundar handteknir um helgina

Fimm slagsmálahundar sem lögregla hafði afskipti af í miðborg Reykjavíkur um helgina, brutu gegn lögreglusamþykkt að því er segir í frétt lögreglunnar.

Máttu kalla Franklín fíkniefnasala

Sigurjón M. Egilsson fyrrum ritstjóri Blaðsins og Trausti Hafsteinsson blaðamaður voru sýknaðir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Franklín Stiner, betur þekktur sem Franklín Steiner, stefndi þeim fyrir ummæli sem féllu um hann í Blaðinu árið 2006. Þar var hann meðal annars sagður mesti fíkniefnasali landsins og að allt hefði verið vaðandi í fíkniefnum á heimili hans.

Sjá næstu 50 fréttir