Innlent

Dæmdur fyrir tvær líkamsárásir í Eyjum

Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum.

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir í Vestmannaeyjum. Enn fremur var honum gert að greiða 160 þúsund krónur í sekt fyrir ölvunarakstur en hann var jafnframt sviptur ökuréttindum í tvö ár með dóminum.

Fyrri árásin átti sér stað í ágúst 2006 en þá réðst maðurinn að öðrum mannin og sló hann margoft í höfuðið og hent honum í götuna og sparkaði einu sinni í bak hans með þeim afleiðingum að hlaut nokkur eymsl.

Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa í júní fyrra inni á veitingastað í Eyjum slegið konu í andlitið svo hún féll af stól niður á gólfið með þeim afleiðingum að hún hlaut eymsli og mar vinstra megin á enni, yfir vinstri augabrún, gagnauga og á vinstra kinnbeini.

Maðurinn játaði á sig brotin og var hann því sakfelldur. Hann var enn fremur dæmdur til að greiða konunni tæpar 190 þúsund krónur í miskabætur vegna árásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×