Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flutti fyrirlestur í stærsta háskóla Bandaríkjanna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í gær fundi með forsvarsmönnum bæði Ohio-ríkis og Ohio-ríkisháskólans, stærsta háskóla Bandaríkjanna, þar sem hann flutti fyrirlestur um loftlagsbreytingar og hlutverk Íslands í þeirri baráttu. 3.4.2007 10:31
Sala og framleiðsla á nautakjöti eykst Sala á nautakjöti undanfarna tólf mánuði hefur verið góð og ívið meiri en framleiðslan eftir því sem greint er frá á vef Landssambands kúabænda. 3.4.2007 10:17
Ísland í 8. sæti yfir leiðandi upplýsingatæknilönd Ísland fellur úr fjórða sæti í það áttunda á lista yfir þau lönd sem fremst standa á sviði upplýsingatækni samkvæmt nýrri skýrslu alþjóðlegu samtakanna World Economic Forum. Frændur okkar Danir eru efstir á listanum á ár en þeir voru í þriðja sæti í fyrra. 3.4.2007 10:02
Bandaríkin hafa ekki greitt tíu milljónir dala Bandarísk yfirvöld hafa ekki greitt Hitaveitu Suðurnesja þær tíu milljónir dala sem samið var um við brottflutning varnarliðsins. Málið hefur strandað í bandaríska kerfinu. Í íslenska kerfinu gæti vatnslögn til Vestmannaeyja, fyrir milljarð króna, einnig strandað. 2.4.2007 19:45
Loftferðareftirlit NATO í bígerð Formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins býst við að fyrir páska muni liggja fyrir áætlun um loftferðaeftirlit við Ísland. Vonast er til að það geti hafist eigi síðar en í sumarlok. 2.4.2007 19:30
Álversniðurstaða góð tíðindi fyrir Húsvíkinga Búið er að verja einum milljarði króna til undirbúnings álveri á Húsavík. Niðurstaðan í Hafnarfirði er góð tíðindi fyrir álverssinna á Norðurlandi. Ekki síst vegna baráttunnar um mengunarkvótann. Ef Hafnfirðingar hefðu stækkað álverið í Straumsvík hefði minna orðið til skiptanna fyrir Húsvíkinga. 2.4.2007 19:16
Urmull af aprílgöbbum Fjölmargir hlupu apríl í gær enda voru aprílgöbb fjölmiðlanna einstaklega fjölbreytt að þessu sinni. Hér á Stöð 2 aðstoðaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, við sprellið og er óhætt að segja að hann hafi átt stórleik í hlutverki sínu. 2.4.2007 19:00
Hafnar samstarfi við flokka sem vilja ekki stóriðju Formaður Framsóknarflokksins segist hafna samstarfi við flokka sem vilja stoppa stóriðju og virðist þar með nánast hafna samstarfi við alla aðra en sjálfstæðismenn. Hann segir þó ekki tímabært að ákveða frekara samstarf. Þetta kemur fram í nýjum þætti, sem hefst í kvöld, strax á eftir Íslandi í dag. Alla næstu daga rifjum við upp úr stjórnmálasögu formanna stjórnmálaflokkanna. 2.4.2007 18:57
Leitað að vistmanni á Sogni Lögreglan á Selfossi hefur kallað út björgunarsveitir til að leita að vistmanni á Sogni. Maðurinn er ekki talinn hættulegur. Hann hljóp til fjalla norðan við vistheimilið upp úr klukkan 16 í dag. Hann er illa búinn, en blautt er og þoka, og lítið skyggni á leitarsvæðinu. Maðurinn 35 ára og grannvaxinn. Hann er klæddur blárri hettupeysu, gallabuxum og hvítum íþróttaskóm. 2.4.2007 18:40
Búið að skipa svokallaða Breiðavíkurnefnd Forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem ætlað er að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Í fyrstu er nefndinni ætlað að kanna starfsemi Breiðavíkur á árunum 1950 til 1980. Meðal þess sem nefndinni er ætlað að skoða er í hvaða mæli börnin, sem vistuð voru á Breiðavík, hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvölinni stóð og leggja fram tillögur til stjórnvalda um frekari viðbrögð. Nefndin hefur til fyrsta janúar, á næsta ári, til að skila inn skýrslu til forsætisráðherra. 2.4.2007 18:37
Árásarpiltarnir ákærðir á næstunni Kæra á hendur piltunum þremur, sem frömdu hrottalega líkamsárás í Garðarstræti á nýársnótt, verður send til ákærusviðs lögreglu á næstunni. Piltarnir, sem allir eru ungir að árum, geta átt yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi. 2.4.2007 18:30
Slæmt að Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins Forsætisráðherra telur miður að Hafnfirðingar hafi hafnað stækkun álversins í Straumsvík og segir að hagur bæjarfélagsins og íbúanna verði verri fyrir vikið. Sérfræðingar hjá greiningardeild Glitnis segja að líkur á mjúkri lendingu í efnahagslífinu hafi aukist, vegna niðurstöðu kosninganna. 2.4.2007 18:30
Ísland til fyrirmyndar í skattalækkunum Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir Svía geta tekið Íslendinga sér til fyrirmyndar í skattalækkunum. Hann segir Svía hafa hagnast af inngöngunni í Evrópusambandið en vill ekki blanda sér í umræður um aðild Íslands að sambandinu. 2.4.2007 18:30
Sigrún Eldjárn hlaut Sögusteininn 2007 Sigrún Eldjárn er fyrsti verðlaunahafi barnabókaverðlaunanna Sögusteins árið 2007. Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn í dag á alþjóðlegum degi barnabókarinnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálráðherra afhenti Sigrúnu verðlaunin, en það var einróma álit dómnefndar að hún hlyti verðlaunin að þessu sinni. 2.4.2007 18:07
Kosið um staðsetningu, ekki framtíð álframleiðslu Greiningardeild Kaupþing segir að íbúakosningin í Hafnarfirði um helgina hafi snúist um staðsetningu álvers, en ekki framtíð álframleiðslu hér á landi. Umframorka sem ætluð hafi verið til stærra álvers í Straumsvík geti nýst annars staðar. Þar komi nýtt álver í Helguvík sterklega til greina. 2.4.2007 17:38
Dæmdur fyrir stórkostlegt hirðuleysi Fyrrverandi framkvæmdastjóri einkahlutafélags var í Hæstarétti í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 2,8 milljónir króna í sekt fyrir að hafa sýnt af sér stórkostlegt hirðuleysi með aðgerðarleysi sínu við að skila inn skilagreinum og staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldin var eftir af launum starfsmanna félagsins. 2.4.2007 17:21
Síbrotamaður í áframhaldandi gæsluvarðhald Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir síbrotamanni á meðan mál hans er til meðferðar hjá Hæstarétti en þó ekki lengur en til 18. maí. 2.4.2007 17:05
Alcan dæmt til að greiða starfsmanni bætur vegna slyss Alcan var í dag dæmt til að greiða starfsmanni í álverinu í Straumsvík nærri 1,6 milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir við vinnu sína í einum af kerskálum álversins í maí 2001. 2.4.2007 16:55
Sekt fyrir að hafa ekki staðið skil á opinberum gjöldum og virðisaukaskatti Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur til að greiða 8,5 milljónir króna í sekt fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélags sem maðurinn kom að og fyrir að hafa ekki staðið skil á opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins. 2.4.2007 16:43
Fyrsta áfanga í GSM-væðingu hringvegar lokið Starfsmenn Símans luku um miðjan síðasta mánuð fyrsta áfanga verkefnis sem felst í því að ljúka við að GSM-væða hringvegarins. Þann 16. mars var kveikt á nýjum sendum sem þekja 33,5 km vegakafla. Þau svæði sem um er að ræða eru Streiti, Álftafjörður, Hvalnesskriður, Papafjörður og Almannaskarð á Austurlandi og Vatnsdalur í Húnaþingi. 2.4.2007 16:28
Gáfu fé til kaupa á fíkniefnahundi Kvenfélag Eyrarbakka afhenti í vikunni Ólafi Helga Kjartanssyni, lögreglustjóra á Selfossi, hundrað þúsund krónur til kaupa á fíkniefnahundi en með því vildi kvenfélagið sporna gegn útbreiðslu fíkniefna til barna og ungmenna. 2.4.2007 16:23
Svíar geti lært af Íslendingum í skattalækkunum Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir Svía geta tekið Íslendinga sér til fyrirmyndar í skattalækkunum. Hann segir Svíja hafa hagnast af inngöngunni í Evrópusambandið en vill ekki blanda sér í umræður um aðild Íslands að sambandinu. 2.4.2007 16:17
Niðurstaða í álverskosningu hljóti að vera umhugsunarverð fyrir fjárfesta Samtök atvinnulífsins segja að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í Hafnarfirði hljóti að verða umhugsunarefni öllum þeim sem hafi í hyggju að efna til uppbyggingar nýs reksturs eða umfangsmikillar stækkunar á núverandi rekstri hér á landi og segir að það verði að vera ljóst hvernig sveitarfélög hyggist fjalla um mál áður en lagðir eru tugir eða hundruð milljóna í undirbúning verkefna. 2.4.2007 16:02
Forstjóri Lánasýslu ríkisins lætur af störfum Forstjóri Lánasýslu ríkisins, Þórður Jónasson, hefur óskað eftir lausn frá embætti og hefur jafnframt óskað eftir því að lausnin verði veitt hið fyrsta. 2.4.2007 15:13
Fundaði með formanni hermálanefndar NATO Valgerður Sverrisdóttur utanríkisráðherra átti í dag fund með Raymond Henault, formanni hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að rætt hafi verið um samskipti Íslands og Atlantshafsbandalagsins og framlög Íslands til aðgerða á vegum þess, einkum í Afganistan. 2.4.2007 15:07
Segir íbúafjölgun með eðilegum hætti í Hafnarfirði Íbúafjölgun fram til 10. mars, þegar kjörskrá vegna atkvæðagreiðslunnar um stækkun álversins í Straumsvík var lokað, var með eðlilegum hætti og í takt við það sem hefur verið mánuðina á undan, segir í tilkynningu sem Hafnarfjarðarbær hefur sent frá sér. 2.4.2007 14:52
Nærri 600 hjúkrunarfræðinga vantar til starfa Alls vantar 582 hjúkrunarfræðinga til að leysa úr þeim skorti sem nú er á íslenskum stofnunum samkvæmt nýrri skýrslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem kynnt verður síðar í dag. Alls er um að ræða 445 stöðugildi sem ekki eru mönnuð. 2.4.2007 13:38
Meiri líkur á mjúkri lendingu eftir álverskosningar Greiningardeild Glitnis segir að meiri líkur séu á tiltölulega mjúkri lendingu hagkerfisins, að vextir taki að lækka fyrir árslok og verðbólga verði í námunda við markmið Seðlabanka á komandi misserum eftir að ljóst varð að Hafnfirðingar hefðu hafnað stækkun álversins í Straumsvík. 2.4.2007 13:09
Frétt um úrtökupróf vegna varaliðs var aprílgabb Vegna fréttar okkar í gær um að úrtökuprófin fyrir nýtt varalið lögreglunnar hefðu farið fram um helgina vill fréttastofan koma því á framfæri að um aprílgabb var að ræða. 2.4.2007 13:00
Hefja tilraunaútflutning á lifandi humri Útflutningur er að hefjast á lifandi humri frá Höfn í Hornafirði til meginlands Evrópu í tilraunaskyni. Humarinn bíður nú brottfarar á humarhótelinu á Höfn. 2.4.2007 12:45
Væri nær að biðja stofnendur afsökunar Stofnendur Iceland Express segja að forstjóra Samkeppniseftirlitsins væri fremur sæmandi að biðja þá afsökunar en að reyna að klóra yfir úrræðaleysi stofnunarinnar með ótrúverðugum rökum. 2.4.2007 12:30
Kaffibandalagið sagt búið að vera Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði, segir að kaffibandalag Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra sé búið að vera. Nýlegar auglýsingar Frjálslyndra um að hefta innflutning erlends vinnuafls til landsins samræmist alls ekki stefnu Samfylkingar og Vinstri grænna. 2.4.2007 12:26
Undirbúningur hafinn á strandstað Wilson Muuga Undirbúningur að því að draga Wilson Muuga á flot hófst fyrir alvöru í gær þegar Steinríkur, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti ýmsan búnað um borð í flutningaskipið á strandstað í Hvalsnesfjöru í Sandgerði. 2.4.2007 12:15
Hafnfirðingum fjölgaði með eðlilegum hætti Það er úr lausu lofti gripið að Hafnfirðingum hafi fjölgað um 700 manns fyrir kosningar um stækkun álversins síðastliðinn laugardag. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir fjölgun bæjarbúa hafa verið með eðlilegum hætti undanfarna mánuði. Viðtalið við Lúðvík fylgir fréttinni. 2.4.2007 11:56
Grunaðir um þjófnaði á suðvesturhorninu Lögreglan á Akranesi handtók í síðustu viku tvo menn en þeir eru grunaðir um aðild að nokkrum þjófnaðarmálum á suðvesturhorninu. Eftir því sem segir í dagbók lögreglunnar á Akranesi voru mennirnir teknir eftir að hafa stolið fartölvu í verslun BT á Akranesi. 2.4.2007 11:42
Á yfir 100 km hraða í Hvalfjarðargöngum Lögreglan á Akranesi hafði í nógu að snúast í síðustu viku vegna hraðaksturbrota í umdæmi hennar. Alls kærði lögreglan 37 ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunna og var einn þeirra á rúmlega 100 kílómetra hraða í Hvalfjarðargöngum, en þar er hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. 2.4.2007 11:36
Samkeppniseftirlitið blessar samruna SPV og SPH Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við samruna Sparisjóðs Vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar en sjóðirnir hafa nú sameinast undir nafninu BYR sparisjóður. 2.4.2007 11:27
Veittu manni á númerslausri rútu eftirför Lögregla á Hólmavík þurfti á föstudag að veita manni á rútu eftirför eftir að hann skeytti ekki um stöðvunarmerki. Fram kemur í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum að atvikið hafi átt sér stað um hádegisbil en maðurinn ók þá um Hólmavík á númerslausri rútunni. 2.4.2007 10:51
Glitnir vekur skelfingu í Noregi Glitnir er á stórfelldum mannaveiðum í Noregi, að sögn norska blaðsins Aftenposten. Blaðið segir að verðbréfadeild Glitnis í Noregi hafi boðið nokkrum bestu starfsmönnum verðbréfafyrirtækisins DnB Nor Markets allt að 200 milljónum króna fyrir að skipta um vinnu. Framkvæmdastjóri Glitnis í Noregi staðfestir að þrír starfsmenn DnB Nor Markets muni koma yfir til þeirra. 2.4.2007 10:24
Geir og Reinfeldt funda í dag Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Hann mun meðal annars funda og snæða hádegisverð með Geir H. Haarde forsætisráðherra. Að honum loknum halda ráðherrarnir fund með blaðamönnum og Reinfeldt mun svo hitta íslenska kaupsýslumenn í Viðskiptaráði Íslands. 2.4.2007 09:49
Lögregla á Sauðárkróki stöðvaði 50 fyrir hraðakstur um helgina Lögreglan á Sauðárkróki stöðvaði um 50 ökumenn um helgina fyrir of hraðan akstur við reglubundið eftirlit. Að sögn varðstjóra voru þeir sem hraðast óku á rétt um eða yfir 120 kílómetra hraða á klukkustund. Margir voru á faraldsfæti um helgina enda skólafrí framundan og páskar. Því hafi lögregla ákveðið að hafa öflugt eftirlit með aksturshraða. Varðstjóri lagði áherslu á forvarnargildi sýnilegrar löggæslu og sagði að þó menn gætu vissulega svekkt sig á því að þurfa að greiða sektir þá verði seint settur verðmiði á það ef einhver þessara ökumanna hefði lent í slysi. 1.4.2007 20:48
Steinasafnarar sækja í Héðinsfjarðargöng Íslenskir steinasafnarar kætast þessa dagana vegna borunar Héðinsfjarðarganga en þar hafa ýmsir fágætir steinar fundist undanfarið. Íslenskt grjót er jafnvel sagt búa yfir lækningamætti. 1.4.2007 20:00
Ný reiðhöll í Dýrafirði Vestfirðingar fjölmenntu á opnunarhátíð Knapaskjóls, nýrrar reiðhallar á Söndum í Dýrafirði, sem var formlega vígð í gær. Það er hestamannafélagið Stormur sem stóð fyrir byggingu hallarinnar. Nú á að bæta aðstöðu til iðkunnar hestaíþrótta á Vestfjörðum, aðstöðu til þjálfunar, keppni, reiðkennslu og annars er varðar íslenska hestinn. 1.4.2007 19:30
Sautján sendiherrar á kjörtímabilinu Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hafa sautján nýir sendiherrar verið skipaðir í embætti á vegum utanríkisráðuneytisins og tvö ný sendiráð opnuð. Framlag úr ríkissjóði til sendiráða Íslands hefur hækkað nokkuð til samræmis við það. 1.4.2007 19:15
Byrgismálið til ríkissaksóknara Rannsókn á meintum misbeitingarbrotum Guðmundar Jónssonar í Byrginu er á lokastigi og verður málið sent til Ríkissaksóknara á næstu dögum. Í það minnsta átta konur lögðu inn kæru á hendur Guðmundi en málið hefur verið til rannsóknar hjá Sýslumanninum á Selfossi. 1.4.2007 19:13