Fleiri
Kláruðu 20 þúsund pylsur 2.7.2006 07:00 Sjá næstu 50 fréttir
Frávísun Baugsmálsins kærð Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari í Baugsmálinu segir að frávísun héraðsdóms á föstudag verði kærð til Hæstaréttar nú fyrir hádegi. Um er að ræða einn ákærulið af nítján, þann veigamesta. 3.7.2006 11:31
Varnarliðið hyggst ekki greiða vangoldnar launahækkanir Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli eiga inni vangoldnar launahækkanir frá áramótum og hefur Varnarliðið lýst því yfir að það muni ekki greiða þær. 3.7.2006 11:24
Nöfn hinna látnu Stúlkan sem lést í umferðarslysi við Varmahlíð í gærmorgun hét Sigrún Kristinsdóttir, búsett að Vesturgili 5, Akureyri. Hún var tvítug að aldri. Tvær vinkonur hennar liggja alvarlega slasaðar á Landspítalanum. Líðan þeirra óbreytt en stöðug, að sögn lækna. Þær eru báðar í öndunarvélum á gjörgæsludeild. Þær eru frá Sauðárkróki og fór bænastund fram í Sauðárkrókskirkju í gærkvöld þar sem beðið var fyrir bata þeirra. Maðurinn sem lést í vélhjólaslysi í Örfæfasveit í gær hét Heiðar Þórarinn Jóhannsson. Hann var 52ja ára, búsettur að Lundargötu 10, Akureyri. Hann var ókvæntur og barnlaus. 3.7.2006 11:02
Eignir aukast Auðsáhrif eru meiri nú en fyrir fimm árum, þetta kemur fram í Vefriti fjármálaráðuneytisins. Í spá frá ráðuneytinu er gert er ráð fyrir því að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann aukist um 3,5% á þessu ári. 3.7.2006 10:56
Enn á gjörgæslu Líðan stúlknanna tveggja, sem slösuðust lífshættulega í bílveltu í Skagafirði í gær, er óbreytt en stöðug, að sögn lækna. Þær eru báðar í öndunarvélum á gjörgæsludeild. 3.7.2006 10:04
Bensínverð hækkar sem fyrr Olís hækkaði bensínverð í gær um tvær krónur og áttatíu aura, en á laugardag hækkuðu ESSÓ og Skeljungur lítrann um þrjár krónur. Sem fyrr gefa félögin þá skýringu á hækkunum sínum að að gengi krónunnar sé lágt gagnvart dollar og heimsmarkaðsverð fari hækkandi. Bensínlítrinn á stöðvum með fullri þjónustu er kominn vel yfir 130 krónur hjá félögunum þremur.- 3.7.2006 09:58
Fyrsti þjóðhöfðinginn á alþjóðaþingi Lions Ólafur Ragnar Grímsson er staddur á alþjóðaþingi Lions sem haldið er í Boston. Hann er fyrsti þjóðhöfðingi veraldar sem hefur verið boðið að halda ræðu hjá hreyfingunni frá því hún var stofnuð árið 1907. 3.7.2006 09:51
Nýtt vefsetur fastanefndar Íslands hjá NATO Opnað hefur verið nýtt vefsetur fastanefndar Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO) í Brussel, Belgíu. Vefsetrið er á tveimur tungumálum - ensku og íslensku - og hefur að geyma gagnlegar upplýsingar um starfsemi fastanefndarinnar auk mikils upplýsingaefnis um Ísland. 3.7.2006 09:45
Festust í á með tvö ung börn Hjón með tvö ung börn sín festu bíl sinn úti í á skammt frá Stöng í Þjórsárdal í gær og kölluðu eftir hjálp, þar sem bíllinn virtist ætla að berast undan straumnum. Björgunarsveitir frá Selfossi og úr Gnúpverjahreppi voru sendar af stað í skyndingu og höfðu náð bílnum upp úr ánni á innan við klukkustund frá því að hjálparbeiðnin barst. Engan í bílnum sakaði og var hann ökufær eftir óhappið.- 3.7.2006 08:53
Grunur leikur á um gabb Rannsók lögreglunnar i Fjarðabyggð á neyðarkalli frá kajakræðara í gær hefur engan árangur borið. Það barst klukkan ellefu í gærmorgun og sagðist ræðarinn vera staddur í blind þoku út af Seyðisfirði. Hátt í 50 björgunarsveitarmenn voru kallaði rút og öll skip Slysavaranfélagsins Landsbjargar hófu leit, en án árangurs og var leitinni hætt undir kvöld. Búið er að hafa tal af ísraelskri konu, sem var á kajak á þessum slóðum í gær, en hún þver tekur fyrir að hafa kallað á hjálp og leikur grunur á að um gabb hafi verið að ræða. Rannsókn verður haldið áfram , en þung viðurlög geta legið við því að að kalla út björgunarlið án tilefnis.- 3.7.2006 08:48
Tækifærum fjölgar Svonefndur ISEC markaður verður opnaður í Kauphöll Íslands í dag, en hann á að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum tækifæri til vaxtar á hlutabréfamarkaði. Jafnframt fjölgar fjárfestingartækifærum á íslenska markaðnum þar sem reiknað er með að smá og meðal stór fyrirtæki verði skráð þar innan tíðar. Fyrsta fyrirtækið til að skrá sig inn á þennan nýja markað er Hampiðjan, sem metin er á liðlega fjóra milljarða króna, en í tilkynningu frá kauphöllinni segir að all mörg fyrirtæki hafi sýnt áhuga á að skrá sig þar. Lagaramminn er nokkuð rýmri en á aðallistanum og ekki eru gerðar kröfur til stærðar, dreifingu hlutafjár og rekstrarsögu og ákvæði laga um yfirtökuskyldu eiga ekki við. Hinsvegar ser skylda um birtingu upplýsinga, sem varða verðmæti fyrirtækjanna. 3.7.2006 08:35
Betra að eiga en leigja Marga dreymir um það að eignast tjaldvagn og ferðast um landið og komast hjá kulda og bleytu sem oft fylgir tjaldútileigum. Fréttablaðið kannaði leiguverð á tjaldvögnum á fjórum stöðum um landið og reyndist verðið í þrem tilvikum vera 25.000 krónur fyrir vikuleigu og á einum staðnum var það 30.000 krónur. 3.7.2006 07:45
Erilsöm helgi hjá lögreglu í Ólafsvík Um níutíu prósent þeirra sem sóttu færeyska daga í Ólafsvík um helgina voru á aldrinum sextán til átján ára, að sögn hátíðarhaldara. Erilsamt var hjá lögreglu alla helgina. Mannfagnaðir annars staðar fóru tiltölulega vel fram. 3.7.2006 07:45
56 prósent telja að verðbólga aukist ekki 32 prósent telja að verðbólga verði minni að ári, samkvæmt könnun Fréttablaðsins. 26 prósent telja að hún verði eins og hún er, en flestir, eða 42 prósent telja að verðbólga muni aukast á komandi ári. 3.7.2006 07:30
Kallar á algjöra endurskoðun Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að Akureyrarbær dragi sig úr Sorpeyðingu Eyjafjarðar frá næstu áramótum. 3.7.2006 07:30
Kynferðisbrotum gegn börnum fjölgaði Í nýrri ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík kemur fram að kynferðisbrotum gegn börnum fjölgaði um hundrað prósent árið 2005. 3.7.2006 07:30
Fleiri óttast verðbólguna 42 prósent segjast telja að verðbólga muni aukast á komandi ári, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Könnunin var framkvæmd eftir að ASÍ, Samtök atvinnulífsins og ríkið kynntu samning sem tryggja á stöðugleika í launaþróun og ríkisstjórnin kynnti aðgerðir til að draga úr verðbólgu. 3.7.2006 07:15
Fór veltur og endaði ofan í á Ungur ökumaður missti stjórn á fólksbíl sínum í Langadal um sexleytið í gær, með þeim afleiðingum að hann valt og endaði ofan í á, þrjátíu til fjörutíu metrum frá veginum. 3.7.2006 07:00
Bensínverðið hækkaði um helgina Olíufélagið og Skeljungur hækkuðu á laugardaginn verð á 95 oktana bensíni um þrjár krónur lítrann og Olís gerði slíkt hið sama í gær. 3.7.2006 07:00
Verðbólguhætta ef allir vilja hærri laun Samkomulag ASÍ, SA og ríkisins á að stilla af mismun milli ríkisins og almenna markaðarins. Ef önnur stéttarfélög krefjast sömu hækkana er hætta á verðbólgu. 3.7.2006 06:45
Segir landsmótið það besta allra tíma Landsmót hestamanna 2006 fór vel fram í alla staði að sögn lögreglu og mótsstjórnar. Þá ríkti almenn ánægja með framkvæmd mótsins hjá gestum þess. 3.7.2006 06:45
Leit hætt að kajakræðara Hátt í fjörutíu manns leituðu í allan dag að erlendri konu á kajak í Seyðisfirði og fjörðunum þar í kring. Boð komu frá henni í morgun á neyðarrás fyrir skip og mátti skilja þau sem neyðarboð. Ísraelsk kona fannst á kajak í Norðfirði fyrr í dag en hún segir boðin ekki hafa komið frá sér. 2.7.2006 18:32
Hjón með börn hætt komin Hjón með tvö ung börn voru hætt komin í dag er bíll þeirra færðist með straumnum í á við Stöng í Þjórsárdal. Björgunarsveitir aðstoðuðu ferðafólkið sem ekki varð meint af óhappinu. 2.7.2006 17:53
Víðtæk leit gerð að konu á kajak Fjörutíu til fimmtíu manns og í það minnsta sjö björgunarbátar leita að erlendri konu sem lenti í hafvillu á kajak á Seyðisfirði í morgun. Björgunarsveitirnar á Seyðisfirði og Neskaupstað voru kallaðar út rétt fyrir hádegi en leitin hefur enn engan árangur borið. Konan hafði samband við Landhelgisgæsluna á tólfta tímanum og bað um aðstoð við að komast í land vegna þoku. 2.7.2006 16:34
Forseti Íslands flytur aðalræðu á Heimsþingi Lions Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands mun á morgun, 3. júlí flytja aðalræðu á Heimsþingi Lions hreyfingarinnar sem haldin er í Boston. Alþjóðaforseti Lions hreyfingarinnar, Ashok Mehta frá Indlandi, bauð forseta Íslands að flytja aðalræðu heimsþingsins. 2.7.2006 15:07
Mikil ölvun á útihátíðum Mikil ölvun var á útihátíðum víðs vegar um land í nótt. Á Ólafsvík myndaðist biðröð við heilsugæslu bæjarins vegna pústra manna á milli. 2.7.2006 12:52
Goðsögn að leikskólakennarar hætti vegna lágra launa Það er goðsögn að starfsfólk leikskóla hætti vegna lágra launa, samkvæmt nýlegri rannsókn. Flestir virðast líta á leikskólana sem ,,vertíðarvinnustað'' og lykilatriði að breyta því svo betur haldist á starfsfólki, segir lektor við Háskólann í Reykjavík. 2.7.2006 12:33
Bílvelta milli Geysis og Gullfoss Bílvelta varð hjá bænum Múla milli Geysis og Gullfoss rétt fyrir klukkan sex í morgun. Tveir piltar og ein stúlka, öll á tvítugsaldri voru flutt á Landspítala- Háskólasjúkrahúss með minniháttar meiðsli. 2.7.2006 12:21
Banaslys í Skagafirði Stúlka um tvítugt lést í bílslysi við Varmahlíð í Skagafirði snemma í morgun. Tvær stúlkur til viðbótar eru í lífshættu á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Önnur þeirra ók bílnum. 2.7.2006 11:57
Kona á kajak lenti í hafvillu á Seyðisfirði Erlend kona lenti í hafvillu á Seyðisfirði á tólfta tímanum í dag. Björgunarsveitirnar á Seyðisfirði og Neskaupstað leita að konunni eins og er. Engin hætta er á ferðum en konan hafði samband við Landhelgisgæsluna um að aðstoða sig við að komast í land vegna þoku. 2.7.2006 11:41
Landsmót hestamanna Um 11 þúsund manns eru á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum sem lýkur í dag. Papar léku á stórdansleik í gærkvöldi og að sögn fjölmiðlafulltrúa mótsins ætlaði allt um koll að keyra þegar þeir stigu á stokk. Dansleikurinn fór að sögn lögreglu vel fram en þegar líða tók á nóttina var nokkuð mikill erill hjá lögreglu vegna ölvunnar og minniháttar fíkniefnamála. Búast má við mikilli umferð frá mótsstað seinni part dags og er fólk hvatt til að fara varlega. 2.7.2006 10:11
Mikil ölvun á færeyskum dögum Mikil ölvun var í Ólafsvík í nótt og svo mikið var um líkamsárásir að biðröð myndaðist við heilusgæslu bæjarins. 2.7.2006 10:09
Alvarlegt bílslys Alvarlegt bílslys varð fyrir utan Varmahlíð í Skagafirði þegar bíll fór útaf vegi nú undir morgun. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki voru fimm í bílnum og voru tveir þeirra sendir með þyrlu til aðhlynningar á Lansdspítalann. Þangað komu þeir fyrir stundu. Enn hafa engar upplýsingar fengist um líðan þeirra. 2.7.2006 10:08
Stjórnin ætti að segja af sér Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi áminningu sem Landspítalinn veitti Stefáni Matthíassyni ólögmæta.Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi áminningu sem Landspítalinn veitti Stefáni Matthíassyni ólögmæta. 2.7.2006 08:30
Vörur varnarliðsins dýrari en fólk hélt Fjöldi fólks mætti í Sigtúnið í gær til að skoða muni varnarliðsins. Búið að losa tuttugu gáma af vörum og fleiri að bætast við enda varnarliðið á förum. 2.7.2006 08:15
Ekki færri ákærðir í Reykjavík síðan 1996 Samkvæmt ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík voru 856 einstaklingar ákærðir af embættinu á síðasta ári. Þetta er minnsti fjöldi ákærðra einstaklinga síðan 1996. Á síðasta ári voru karlar 87 prósent ákærðra. 2.7.2006 08:00
Vilja bætta heimaþjónustu Landsþing Kvenfélagasambands Íslands var haldið í 34. sinn um síðustu helgi, í Íþróttahöllinni á Akureyri. 2.7.2006 07:45
Blóðugt blaðastríð framundan David Montgomery, nýr eigandi fjölmiðlasamsteypunnar Orkla Media, er reiðubúinn undir blóðugt stríð á dagblaðamarkaði í Danmörku þegar útgáfa fríblaðs að hætti Fréttablaðsins hefst á helstu þéttbýlisstöðumí haust. 2.7.2006 07:45
Veruleg hætta skapaðist föstudagskvöld var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til Vestmannaeyja til þess að flytja sjúkling til Reykjavíkur vegna þess að sjúkraflugvélin var ekki til staðar. Samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið ber fyrirtækinu skylda til þess að hafa vélina ávallt til taks í Vestmannaeyjum en Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir að það hafi ítrekað komið fyrir að vélin hafi ekki verið til staðar þegar þörf hefur verið á henni. Landsflug tók við sjúkrafluginu 1. janúar í ár en áður sinnti Flugfélag Vestmannaeyja því. 2.7.2006 07:45
Íbúðalánin dýrari Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að hækka útlánsvexti íbúðalána sjóðsins um 0,10 prósentustig og verða þeir 4,95 prósent. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25 punkta lægri vöxtum eða 4,70 prósent. 2.7.2006 07:30
Seldu líkama sambýliskvenna Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi hefur kynnt árlega skýrslu um mansal hér á landi. Í kjölfar skýrslunnar gaf Alþjóðahús frá sér yfirlýsingu um að beinar rangfærslur væri að finna í skýrslunni þar sem vitnað er í lögfræðing Alþjóðahúss. Í yfirlýsingunni kemur fram að um sé að ræða trúnaðarupplýsingar sem áttu sér stað á milli lögfræðings Alþjóðahúss og skýrsluhöfundar með því fororði að þær mætti ekki rekja til upplýsingagjafa. 2.7.2006 07:30
Segja fólkið vera agndofa Byggðaráð Norðurþings og Langanesbyggðar á Norðausturlandi mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar um frestun vegaframkvæmda í fjórðungnum harðlega og telja að framkvæmdir til að slá á þenslu í samfélaginu eigi ekki að koma til framkvæmda í landshlutum þar sem þensluáhrifa gætir ekki og hefur ekki gætt á undanförnum misserum. Þvert á móti hafi þar verið samdráttur og fólksfækkun á síðustu áratugum. 2.7.2006 07:30
Óskar eftir opinberri úttekt Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja sendi á föstudag beiðni til Heilbrigðisráðuneytisins þar sem hann óskar eftir opinberri úttekt á stöðu sjúkraflugs til Vestmannaeyja. Beiðnina sendi hann vegna þess að það hefur ítrekað gerst að sjúkraflugvél er ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar þörf er á henni. 2.7.2006 07:15
Rokkað saman í ráðuneytinu Það var glatt á hjalla hjá ráðherrunum Sturlu Böðvarssyni og Magnúsi Stefánssyni þegar þeir tóku lagið saman í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu á dögunum. Þeir rifjuðu upp gömlu árin í poppbransanum en Magnús var um tíma landsþekktur poppari og Sturla vinsæll á sveitaböllum. 2.7.2006 07:00