56 prósent telja að verðbólga aukist ekki 3. júlí 2006 07:30
Flestir, eða 42 prósent, telja að verðbólga muni aukast á komandi ári, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 32 prósent telja að verðbólgan muni dragast saman, en 26 prósent telja að verðbólgan muni standa í stað. Samkvæmt mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs var verðbólga í júní 8,0 prósent, sé miðað við síðustu 12 mánuði. Frá því í júní í fyrra hefur verðbólgan aukist verulega, en þá mældist hún 2,8 prósent á ársgrundvelli. Áður en könnunin var gerð höfðu ASÍ, Samtök atvinnulífisins og ríkið gert með sér samning til að tryggja stöðugleika í launaþróun, sem byggðist á því að launataxtar hækki um 15.000 krónur, skattar muni lækka um eitt prósentustig um næstu áramót, í stað tveggja, hækkun persónuafsláttar, hækkun vaxtabóta og að barnabætur verði greiddar þar til börn ná 18 ára aldri í stað 16 ára aldri áður. Þá hafði ríkisstjórnin tilkynnt að lánshlutfall og hámarkslán Íbúðarlánasjóðs muni lækka, til að draga úr þenslu, þá verði nýjum framkvæmdum frestað og leitast verði við að ná samningum við sveitarfélög til að draga úr nýjum fjárfestingum. Þar sem þessar helstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr verðbólgu höfðu verið kynntar má skoða niðurstöður könnunarinnar í því ljósi hvort fólk hafi trú á því að þessar aðgerðir muni hafa áhrif. Konur hafa minnsta trú á því að það dragi úr verðbólgu á komandi ári, en 46,1 prósent þeirra sögðust telja að verðbólga muni aukast á árinu. 23,1 prósent kvenna sögðu að verðbólgan muni standa í stað og 30,8 prósent kvenna telur að draga muni úr verðbólgu. Karlar hafa mesta trú á því að draga muni úr verðbólgu og segja 33,2 prósent þeirra að verðbólgan verði minni að ári. 29,0 prósent telja að verðbólgan verði eins og hún er í dag og 37,8 prósent karla telja að verðbólga muni aukast. Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa aðeins minni trú á því að dragi úr verðbólgu á árinu en íbúar landsbyggðarinnar. 42,7 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins telja að verðbólga muni aukast, 25,5 prósent telja að hún muni standa í stað en 31,8 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins telja að hún verði minni að ári. Þá telja 41,0 prósent íbúa landsbyggðarinnar að verðbólga muni aukast. 32,2 prósent telja að draga muni úr verðbólgu en 26,8 prósent að verðbólgan standi í stað. Hringt var í 800 kjósendur miðvikudaginn 28. júní. Svarendur skiptust jafn eftir kyni og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: Telur þú að verðbólga á komandi ári muni minnka, standa í stað eða aukast? 92,3 prósent aðspurðra tóku afstöðu til spurningarinnar.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Sjá meira