Innlent

Segja fólkið vera agndofa

Björn Ingimarsson
Björn Ingimarsson

Byggðaráð Norðurþings og Langanesbyggðar á Norðausturlandi mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar um frestun vegaframkvæmda í fjórðungnum harðlega og telja að framkvæmdir til að slá á þenslu í samfélaginu eigi ekki að koma til framkvæmda í landshlutum þar sem þensluáhrifa gætir ekki og hefur ekki gætt á undanförnum misserum. Þvert á móti hafi þar verið samdráttur og fólksfækkun á síðustu áratugum.

Björn Ingimarsson, sveitarstjóri í Langanesbyggð, segir að fólk sé agndofa yfir þessum áformum ríkisstjórnarinnar. Þetta eru vegabætur sem hefðu átt að vera komnar á fyrir áratugum og þá bara til að koma á eðlilegum samgöngutengingum á milli svæða. Loksins þegar menn sáu hilla undir að þetta yrði boðið út þá er það hoggið af með vísun til þensluáhrifa, sem er með hreinum ólíkindum. Hér ríkir mikil reiði.

Vegna þessa hafa forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækja miklar áhyggjur og stjórn Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hefur skorað á stjórnvöld að láta útboð við vegaframkvæmdir í fjórðungnum fara fram eins og til stóð. Í sama streng hafa stærstu sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum tekið.

Hörð mótmæli íbúa á Norðurausturlandi koma í kjölfar sterkra viðbragða frá Vestfjörðum vegna frestunar vegaframkvæmda þar. Allt útlit er fyrir að þverun Mjóafjarðar verði frestað sem þýðir að bundið slitlag frá norðanverðum fjörðunum á hringveginn verður ekki að veruleika á næstunni.

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að það væri æskilegt að fresta ýmsum öðrum framkvæmdum en samgöngubótum. Vegaframkvæmdir í Djúpi mega einfaldlega ekki bíða. Sá kafli sem er eftir er ónýtur því hann hefur beðið eftir því lengi að þessi brú yfir Mjóafjörð yrði gerð. Ég get ekki stutt þennan tiltekna þátt í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×