Fleiri
Úrskurðurinn breytir engu 1.7.2006 07:15 Mætti strax aftur til vinnu Sundlaugin á Eskifirði var opnuð aftur í gær eftir að hafa verið tæmd og hreinsuð vandlega vegna klórgasmengunarinnar frá því á þriðjudaginn. Margir lögðu leið sína í laugina yfir daginn og enginn beygur var í fólki vegna slyssins að sögn Andra Bergmanns Þórhallssonar sundlaugarvarðar. 1.7.2006 07:15 Bæturnar verða tekjutengdar Ný lög um atvinnuleysisbætur taka gildi í dag. Samkvæmt þeim eiga einstaklingar nú rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum fyrstu þrjá mánuði atvinnuleysis, sem nema 70 prósent af heildarlaunum viðkomandi, en þó aldrei hærri fjárhæð en 185.400 krónum á mánuði. 1.7.2006 07:15 Fannst hann vera snuðaður og reiddist Kópavogsbúi keypti Voltaren Rapid hjá Lyfjum og heilsu áður en verðkönnun ASÍ var gerð. Honum var ekki bent á samheitalyf. Hefði hann farið í Garðs Apótek, þar sem vísað er á samheitalyf, hefði hann sparað sér 1.500 krónur. 1.7.2006 07:15 Ósammála rökstuðningnum Það er engin hoppandi gleði hjá okkur yfir úrskurðinum. Mér finnst þetta þunnur rökstuðningur og rangur, ég er ósammála honum og tel að hann standist ekki, segir Brynjar Níelsson, lögmaður Jóns Geralds Sullenberger. 1.7.2006 07:00 Sjá næstu 50 fréttir
Fimm teknir fyrir hrað akstur Fimm teknir fyrir ofhraðan akstur af Lögreglunni á Keflavíkurvelli. Einn grunaður um ölvun við akstur. 1.7.2006 15:34
Gremst ítrekaðar lágflugsæfingar Varnarliðsins Landeigendur og ferðamenn á Rauðasandi á Barðaströnd eru gramir yfir ítrekuðum lágflugsæfingum Varnarliðsins á Breiðafirði. Um miðja síðustu viku flugu tvær F-15 orrustuþotur afar nærri Látrabjargi og í þar síðustu viku gerðist slíkt hið sama. 1.7.2006 15:27
Einleikjahátíð á Ísafirði Hin árlega leiklistarhátíð Act Alone stendur nú yfir á Ísafirði og lýkur á morgun. Fullt var á opnunar sýningu hátíðarinnar og er hátíðin almennt mjög vel sótt. 1.7.2006 14:59
Rólegt á Landsmóti hestamanna í nótt Allt var með ró og spekt á Landsmóti hestamanna í Skagafirði í nótt. Nokkrir voru þó teknir fyrir ölvunar akstur innan svæðis undir morgun. Lögreglan á Sauðárkróki segir að það sé óvenju gott ástand á svæðinu, miðað við fólksfjölda, en hátt í níu þúsund manns voru komnir á mótið í gærkvöldi. Mikill fjöldi fólks streymdi inn á svæðið í gær til að eyða þar helginni. Umferð var því að vonum þung og undir kvöldið hafði um 10 km löng bílaröð myndast frá mótsvæði til Varmahlíðar. 1.7.2006 13:30
Um 10.000 manns á Landsmóti Nóttin var með rólegasta móti á Landsmóti hestamanna að Vindheimamelum. Nálægt tíu þúsund manns eru nú á svæðinu en mótinu líkur á morgun. Einhver væta féll á gesti í nótt en í morgun braust sólin fram og að sögn Huldu G. Geirsdóttur fjölmiðlafulltrúa mótsins fer vel um fólkið, þótt töluvert sé farið að þéttast á svæðinu. 1.7.2006 13:30
Landhelgisgæslan áttatíu ára Landhelgisgæslan fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í dag og boðið var til veislu í varðskipinu Óðni. Einnig var verið að fagna nýjum lögum um Landhelgisgæsluna sem taka gildi á morgun. Tvö varðskip sigldu inn höfnina fánum prýdd, skipslúðrar voru þeyttir og skotið var úr fallbyssum. Georg Lárusson, forstjóri 1.7.2006 13:11
Samfylkingin bretti upp ermar Samfylkingin þarf að bretta upp ermar ef ekki á illa að fara í næstu kosningum, segir varaþingmaður flokksins í norðausturkjördæmi. Ekki er hægt að kenna formanninum einum um hversu illa gengur. Samfylkingin mældist aðeins með rúmlega 24% prósenta fylgi í skoðanakönnun. Fréttablaðsins í gær. Fylgið er heilum 6%-stigum undir kjörfylgi í síðustu kosningum, -og hið minnsta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum eftir kosningarnar 2003. Sjálfstæðisflokkurinn og minni flokkarnir vinna hins vegar á. 1.7.2006 12:54
Tæplega 10 þúsund manns komnir á Vindheimamela í Skagafirði Tæplega 10 þúsund manns eru komnir á Vindheimamela í Skagafirði til þess að fylgjast með Landsmóti hestamanna. Í gærkvöldi var haldinn stórdansleikur með Todmobil sem stóð fram eftir nóttu og að sögn lögreglu á svæðinu fór allt vel fram fyrir utan einstaka pústra. 1.7.2006 12:20
Íbúðalánasjóður hækkar húsnæðisvexti Íbúðalánasjóður hefur hækkað húsnæðisvexti sína um 0,1 prósent og eru þeir nú 4,95 prósent. Þetta er gert eftir útboð á íbúðabréfum sem haldið var í fyrradag að því er fram kemur í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands. 1.7.2006 11:45
Landsbjörg kemur útlendingum til bjargar Björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu, sem hleyptu af stokki nýju slysavarnaverkefni á hálendinu í gær, biðu ekki lengi eftir fyrsta viðfangsefninu. Þeir komu útlendum ferðamönnum til aðstoðar í gærkvöld. Björgunarsveitarmenn verða á fjórum stöðum á hálendinu í sumar með það að markmiði að fækka slysum. 1.7.2006 11:45
Afmælishátíð Landsbankans Í dag býður Landsbankinn öllum landsmönnum til veislu í tilefni 120 ára afmælis bankans. Hátíðin verður haldin á alls 14 stöðum á landinu öllu og hefst hún kl. 12:00 í miðbæ Reykjavíkur en 12:30 víðast hvar annars staðar. Björgólfur Guðmundsson mun ávarpa gesti kl. 13:00 á Ingólfstorgi í Reykjavík og verður 120 metra kaka staðsett í Austurstræti sem gestir geta gætt sér á. Þegar Björgólfur hefur talað munu fjölmargir kórar syngja afmælissönginn fyrir bankann samtímis á öllum hátíðarstöðum landsins. Sýnt verður beint frá ávarpi Björgólfs úti á landi og boðið verður upp á eins kökur. 1.7.2006 11:44
Færeyskir dagar í Ólafsvík Færeyskir dagar hófust í Ólafsvík í gær. Töluverð ölvun var í bænum og hafði lögreglan í nógu að snúast. Öflug gæsla er á staðnum og hefur komist upp um þrjú minni háttar fíkniefnamál þar sem bútur af hassi hefur fundist á hátíðargestum. Um 5.000 manns eru í bænum vegna hátíðarinnar. 1.7.2006 11:30
Bílslys á Snæfellsvegi Tveir voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík í nótt eftir alvarlegt bílslys á Snæfellsnesvegi. Hvorugir eru þó í lífshættu. Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan fimm við Hólslæk skammt frá Kvíabryggju. 1.7.2006 11:05
Reyndu að stinga lögguna af Lögreglan í Reykjavík mátti hafa sig alla við í nótt þegar tveir ölvaðir ökumenn gerðu tilraunir til að stinga laganna verði af. 1.7.2006 10:23
Færeyskir dagar vel sóttir Að sögn Þóris Rúnars Geirssonar, varðstjóra lögreglunnar á Snæfellsnesi, búast menn við rúmlega sex þúsund gestum á færeyska daga í Ólafsvík. Í fyrra heimsóttu á bilinu fimm til sex þúsund manns hátíðina. 1.7.2006 07:45
Helmingur styður sitjandi ríkisstjórn Tæplega 51 prósent segist styðja núverandi ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde sem er heldur minna en samanlagt fylgi ríkistjórnarflokkanna. Meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu styður ekki ríkisstjórnina. Mun meiri stuðningur utan höfuðborgarsvæðið. 1.7.2006 07:45
Sýnir ógöngur málsins "Þessi niðurstaða sýnir í hvers konar ógöngum saksóknari er með málið og niðurstaðan er auðvitað jákvæðar fréttir," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, um niðurstöðu héraðsdóms í Baugsmálinu í gær. 1.7.2006 07:45
Skemmtiferðaskipin full af Þjóðverjum Þau verða tæp áttatíu, skemmtiferðaskipin sem koma til Reykjavíkur í sumar. Þjóðverjar eru fjölmennastir í hópi farþega sem koma sjóleiðis til Íslands. 1.7.2006 07:30
Lækka um 50 milljónir á ári Fóðurtollar verða afnumdir á hráefni til fóðurgerðar og tollur á fullbúnar fóðurblöndur lækkar um helming samkvæmt nýrri reglugerð landbúnaðarráðuneytisins. Breytingin tekur gildi 1. júlí. 1.7.2006 07:30
Hefur áhrif á námsárangur Á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á dögunum um heilsusamlegar byggingar kom fram að loftgóðar skólastofur bæta námsárangur. Flestir eyða um 90 til 95 prósentum ævi sinnar innandyra og margir eyða innan við klukkutíma utanhúss á dag. 1.7.2006 07:15
Mætti strax aftur til vinnu Sundlaugin á Eskifirði var opnuð aftur í gær eftir að hafa verið tæmd og hreinsuð vandlega vegna klórgasmengunarinnar frá því á þriðjudaginn. Margir lögðu leið sína í laugina yfir daginn og enginn beygur var í fólki vegna slyssins að sögn Andra Bergmanns Þórhallssonar sundlaugarvarðar. 1.7.2006 07:15
Bæturnar verða tekjutengdar Ný lög um atvinnuleysisbætur taka gildi í dag. Samkvæmt þeim eiga einstaklingar nú rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum fyrstu þrjá mánuði atvinnuleysis, sem nema 70 prósent af heildarlaunum viðkomandi, en þó aldrei hærri fjárhæð en 185.400 krónum á mánuði. 1.7.2006 07:15
Fannst hann vera snuðaður og reiddist Kópavogsbúi keypti Voltaren Rapid hjá Lyfjum og heilsu áður en verðkönnun ASÍ var gerð. Honum var ekki bent á samheitalyf. Hefði hann farið í Garðs Apótek, þar sem vísað er á samheitalyf, hefði hann sparað sér 1.500 krónur. 1.7.2006 07:15
Ósammála rökstuðningnum Það er engin hoppandi gleði hjá okkur yfir úrskurðinum. Mér finnst þetta þunnur rökstuðningur og rangur, ég er ósammála honum og tel að hann standist ekki, segir Brynjar Níelsson, lögmaður Jóns Geralds Sullenberger. 1.7.2006 07:00