Erilsöm helgi hjá lögreglu í Ólafsvík 3. júlí 2006 07:45
Þórir Rúnar Geirsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Snæfellsnesi, segir helgina hafa verið gríðarlega annasama og erfiða fyrir lögregluna í Ólafsvík. Hann segir meðalaldur um níutíu prósenta hátíðargesta, sem voru tæplega sex þúsund, hafa verið sextán til nítján ára og lítið sem ekkert hafi farið fyrir fjölskyldufólki. Hann segir unga fólkið hafa verið áberandi ölvað. Hann segir lögregluna ekki hafa tölu yfir lítrana af áfengi sem lögregla gerði upptæka. Hann segir ungmennin hafa tekið eftirlitinu með jafnaðargeði. Það voru yfirleitt foreldrarnir sem hringdu í okkur brjálaðir. Við fengum margar hringingar frá foreldrum sem skömmuðu okkur fyrir að taka áfengi af unglingunum, segir Þórir Rúnar. Auk mikilla afskipta af slagsmálum í bænum, voru þrettán ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur af lögreglu. Fjögur fíkniefnamál komu upp og tengist eitt þeirra dreifingu og sölu. Mikið var að gera á heilsugæslustöðinni í Ólafsvík og segir Kristinn Logi Hallgrímsson læknir, sem var á vakt um helgina, að lítið sem ekkert hafi verið að gera á daginn en fljótlega upp úr miðnætti hafi straumurinn verið nánast stöðugur. Þetta var aðallega fólk með skurði eftir áflog, segir Kristinn Logi. Töluvert var um minniháttar skemmdarverk að sögn lögreglu, þá voru bílar skemmdir og skemmdarverk unnin á hraðbanka Landsbankans. Lárus Einarsson talsmaður færeyskra daga, segir að hátíðarnefndin muni fara yfir málin á næstu dögum. Við erum að reyna að höfða til fjölskyldunnar og skiljum því ekki alveg af hverju við fengum alla þessa unglinga hingað, segir Lárus. Þetta á ekki að vera unglingahátíð. Um 2.500 manns voru staddir á Humarhátíðinni á Höfn, að sögn Árna Þorvaldssonar, talsmanns hátíðarinnar, og fór hún vel fram að sögn lögreglu. Lögreglan á Hvolsvelli segir að um fjögur hundruð háskólanemar hafi safnast saman í Hallgeirsey um helgina og þurfti lögregla ekki að hafa nein afskipti af samkomunni. Um eitt til tvö hundruð gestir söfnuðust saman í Tunguseli á Landsmóti Snigla sem haldið var um helgina og fór það vel fram að sögn lögreglunnar í Vík. Í Þórsmörk gistu um fjögur hundruð gestir og segir lögregla að fólk hafi hegðað sér vel. Að sögn lögreglu tók umferð að þyngjast á vegum landsins seinnipartinn og þá var mikil örtröð við Hvalfjarðargöngin að sögn lögreglunnar á Akranesi.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Sjá meira