Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar á kjörskrá Um tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum í vor en í kosningunum fyrir fjórum árum. Þá hafa nærri 2500 manns þegar neytt atkvæðisréttar síns í utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Laugardalshöll frá mánaðamótum. 17.5.2006 17:30
Fleyttu kertum vegna Péturs Grunnskólabörn á Egilsstöðum fleyttu kertum í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum í gærkvöldi fyrir Pétur Þorvarðarson sem enn er ófundinn. Með þessu vildu þau sýna samstöðu með þeim sem leita Péturs og þeim sem eiga um sárt að binda heima, meðan hann er ófundinn. 17.5.2006 17:00
Framsóknarflokkurinn vill sérstakan Kópavogsstrætó Framsóknarflokkurinn í Kópavogi vill halda áfram að lækka dagvistargjöld og koma á fót sérstökum Kópavogsstrætó. Oddviti B-listans segist ekki leggja áherslu á að Framsóknarflokkurinn endurheimti bæjarstjórastólinn í Kópavogi. 17.5.2006 16:52
Halda áfram undirbúningi álvers Alcoa, ríkisstjórnin og Húsavíkurbær undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að halda áfram rannsóknum á hagkvæmni þess að bygja 250 þúsund tonna álver á Norðurlandi. Viljayfirlýsingin kemur í framhaldi af staðarvalssamkomulagi frá í mars. 17.5.2006 16:45
Samið um kaup í Fjarðaáli Í dag var gengið frá kjarasamningum fyrir þá starfsmenn sem koma til með að vinna hjá álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði. Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls, Starfsgreinafélags Austurlands, Rafiðnaðarsambands Íslands og Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar skrifuðu undir vinnustaðasamninginn í dag. 17.5.2006 16:06
Veita kannski aðstoð við eftirlit Færeyingar eru reiðubúnir að skoða hvort færeyskt eftirlitsskip geti orðið Landhelgisgæslu Íslands að liði við eftirlit með veiðum á Reykjaneshrygg. Þetta kom fram í viðræðum Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra við Björn Kalsö, starfsbróður hans frá Færeyjum. 17.5.2006 15:59
Margir vilja vinna hjá Landhelgisgæslunni Mikill áhugi er á störfum hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Um 120 manns sóttu um vinnu hjá Landhelgisgæslunni eftir að auglýst var eftir fólki til starfa hjá þyrlusveitinni vegna stækkunar hennar. 17.5.2006 15:21
Samþykktu nýgerðan samning við OR Félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkur sem vinna hjá Orkuveitu Reykjavíkur samþykktu í dag nýjan kjarasamning sem gerður var í fyrradag. Tæplega helmingur félaganna, eða 108 manns, neytti atkvæðisréttar síns og sögðu 85 prósent já við samningnum. Kjaraviðræður hafa staðið lengi en síðasti kjarasamningur rann út 1. desember síðastliðinn. 17.5.2006 15:16
Dæmdir fyrir gabb og ölvunarakstur Ölvunarakstur og gabb reyndist tveimur átján ára Sauðkrækingum dýrkeypt því þeir voru dæmdir til að greiða 80 þúsund krónur í sekt hvor um sig. 17.5.2006 14:57
Greiða atkvæði um samning við OR Félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar greiða í dag atkvæði um kjarasamning við Orkuveitu Reykjavíkur. Samningurinn, sem er fyrsti sjálfstæðis kjarasamningurinn sem félagið gerir við Orkuveituna verður kynntur félagsmönnum síðdegis. Að kynningu lokinni verða greidd atkvæði um samninginn. 17.5.2006 14:00
Tré gegn útblæstri Iðntæknistofnun hefur samið við Skógræktarfélag Hafnarfjarðar um gróðursetningju trjáa til mótvægis við koltvísýringsútblástur frá stofnuninni. 17.5.2006 13:44
Öskjuhlíðarskóli fær Grænfánann Gleði og stolt skein út hverju andliti nemenda og starfsmanna Öskjuhlíðarskóla í morgun þegar þau tóku við Grænfánanum, viðurkenningu fyrir ötullt starf í umhverfismálum. Skólinn mun flagga fánanum næstu tvö árin í það minnsta. 17.5.2006 13:23
Fallið frá beiðni um gæsluvarðhald Tveir ungir menn voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 30. maí fyrir að nema mann á brott og misþyrma honum í Heiðmörk um síðustu helgi. Þriðji maðurinn var einnig talinn tengjast málinu en í morgun var fallið frá beiðni um gæsluvarðhald yfir honum. 17.5.2006 13:15
KEA úthlutar 5 milljónum króna úr Háskólasjóði Á aðalfundi KEA þann 6. maí síðastliðinn var tilkynnt um úthlutun úr Háskólasjóði KEA árið 2006. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, afhenti styrkina við formlega athöfn í húsnæði Háskólans á Borgum í dag kl. 11:00. 17.5.2006 12:53
Aldrei fleiri leikskólakennarar útskrifaðir 85 manns munu útskrifast sem leikskólakennarar frá Kennaraháskóla Íslands í júní. Þetta er stærsti árgangur leikskólakennara til þessa en svo virðist sem kjaradeila leikskólakennara hafi lítil áhrif á ásóknina í námið. 17.5.2006 12:30
Fljúga til sex nýrra áfangastaða Iceland Express opnaði i gær áætlunarferðir til sex nýrra áfangastaða í Evrópu. Félagið er að skoða fleiri áfangastaði og einnig innanlandsflug á Íslandi. 17.5.2006 12:15
Heitt í kolunum á fundi um aldraða Heilbrigðisráðherra voru afhentar hátt í þrettán þúsund undirskriftir aldraðra og fatlaðra um bætt kjör, á hátt í þúsund manna fundi þessara hópa með fulltrúum stjórnvalda í Háskólabíói í gærkvöldi, þar sem heitt var í kolunum. 17.5.2006 12:05
Par slasaðist í bílslysi Bíll valt út af veginum við bæinn Gröf í Eyjafjarðarsveit laust undir hádegi í morgun. Par var í bílnum og var það flutt á slysadeild með sjúkrabíl. 17.5.2006 11:48
Gefur lítið fyrir gagnrýnina Iðnaðarráðherra gaf lítið fyrir gagnrýni á frumvarp um nýsköpunarsjóð á ársfundi Iðntæknistofnunar í morgun. Frumvarpið væri tilraun til að skera á aðskilnað milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins þegar kæmi að stuðningi við nýsköpun og atvinnuþróun. 17.5.2006 11:30
FL Group til Lundúna FL Group hefur opnað skrifstofu í Lundúnum og ráðið framkvæmdastjóra til að stýra starfsemi félagsins í Bretlandi. Sá heitir Adam Shaw og hefur meðal annars starfað hjá KB banka í Lundúnum. 17.5.2006 11:15
Sjálfsinnritun í Leifsstöð Farþegar Icelandair á leið til útlanda geta frá og með deginum í dag innritað sig sjálfir til brottfarar frá Leifsstöð. Sex nýjar sjálfsafgreiðsluvélar verða teknar í notkun í hádeginu. Markmiðið er að flýta fyrir innritun og stytta biðraðir. 17.5.2006 11:00
Skyr selt í Danmörku Skyr er fæða hreystinnar, fegurðarinnar og aflsins, sagði Guðni Ágústosson landbúnaðarráðherra við blaðamann Morgunblaðsins í gær, þegar hann afhenti fyrstu skyrdósirnar til sölu í verslun IRMA í Kaupmannahöfn. 17.5.2006 10:30
Forsetahjónin keyptu fyrsta álfinn Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu Vog í morgun og keyptu fyrsta álfinn í árlegri álfasölu SÁÁ. Álfasalan í ár er sú sautjánda í röðinni en hún er mikilvægasta fjáröflun SÁÁ. 17.5.2006 10:15
Alræmds plastblómasala leitað Lögregla á Suðvesturlandi leitar nú að alræmdum plastblómasala af erlendu bergi brotinn, eftir að hann steig á vítalínuna í gær með því að stela fimm þúsund krónum frá konu, sem býr á sambýli aldraðra í Keflavík. 17.5.2006 09:30
Reikult ökulag vakti athygli Reikult ökulag á fólksbíl, vakti athygli lögreglunnar í Keflavík í gærkvöldi og stöðvaði hún ökumanninn. Kom þá í ljós að hann reyndist í meira lagi drukkinn. 17.5.2006 09:15
Eldur í sumarbústað Sumarbústaður við Hreðavatn, skammt frá Bifröst, stórskemmdist í eldi seint í gærkvöldi. Bústaðurinn var mannlaus þegar eldurinn kom upp. 17.5.2006 08:30
Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 30. maí vegna gruns um frelsissviptingu og alvarlega líkamárás í Heiðmörk um helgina. Dómarinn frestaði úrskurði um gæsluvarðhald yfir þriðja manninum til kl. 11 í dag. 17.5.2006 07:30
Segir ríkið stærsta lífeyrisþegann Húsfyllir var í Háskólabíói þegar Þjóðfundur um þjóðarátak í málum aldraðra var haldinn. Á fundinn höfðu fulltrúar allrar stjórnmálaflokka verið boðaðir og vakti athygli að allir nema Steingrímur J. Sigfússon virtust sammála um að það bæri að flytja málefni eldri borgara Íslendinga frá ríki til sveitarfélaga. 16.5.2006 22:45
Umhverfisráðherra jákvæður í garð friðunar Langasjós Umhverfisráðherra segir vel koma til greina að Langisjór verði friðaður og að hann komi hugsanlega inn í stækkaðan Vatnajökulsþjóðgarð í framtíðinni. Landsvirkjun hefur sýnt stöðuvatninu áhuga með það fyrir augum að veita hluta Skaftár þar í gegn. 16.5.2006 22:29
Vetnisbílar á almennan markað eftir 4 til 8 ár Vetnisknúnir fólksbílar geta farið í fjöldaframleiðslu og á almennan markað eftir fjögur til átta ár. Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors er nú í kynningarferð hér á landi með hóp erlendra blaðamanna til að kynna þróun vetnistækninnar. 16.5.2006 22:27
Tveir menn í gæsluvarðhaldi vegna árásar í Heiðmörk Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 30. maí vegna gruns um frelsissviptingu og alvarlega líkamárás í Heiðmörk um helgina. Dómarinn frestaði úrskurði um gæsluvarðhald yfir þriðja manninum til klukkan ellefu í fyrramálið. Lögreglan í Kópavogi óskaði í dag í Héraðsdómi Reykjaness eftir gæsluvarðhaldi yfir þremur ungum mönnum sem grunaðir eru um líkamsárás og mannrán í Garðabæ á laugardagskvöld. 16.5.2006 20:47
Ætla ekki að starfa við spítalann Heill árgangur hjúkrunarfræðinga, sem útskrifast í vor, ætlar ekki að hefja störf á Landspítalanum nema laun verði hækkuð. Landspítalinn á í samningaviðræðum við erlendar starfsmannaleigur til þess að ráða bót á manneklunni á spítalanum. 16.5.2006 18:54
Umferðarstofa til fyrirmyndar Umferðarstofu var í dag veitt viðurkenning fyrir að vera fyrirmyndar ríkisstofnun ársins 2006. Tilgangur þessara verðlauna er að hvetja stofnannir til dáða í að bæta þjónustu, hagkvæmni, skilvirkni og árangur í ríkisrekstri. 16.5.2006 18:28
Dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt rúmlega tvítugan karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot með því að hafa í júní í fyrra haft samræði við konu sem ekki gat spornað gegn verknaðinum vegna svefndrunga og ölvunar. Þá er hann dæmdur til að greiða konunni 500 þúsund krónur í miskabætur sem og sakar- málskostnað upp á tæpar 7 hundruð þúsund krónur. 16.5.2006 18:08
Aðalskipulag Seltjarnarness staðfest Nýtt aðalskipulag Seltjarnarnessbæjar var staðfest og undirritað í dag af Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra. Með staðfestingunni er lokið viðamiklu skipulagsferli, sem hófst árið 2002, lokið. 16.5.2006 17:27
Vara við vaxtahækkunum Samtök atvinnulífsins lýsa yfir áhyggjum sínum af hugsanlegri vaxtahækkun Seðlabankans nú næstu daga í því skyni að vinna gegn hækkunum á verðlagi í landinu. Í bréfi til bankastjórnar Seðlabankans lýsa samtökin verulegum efasemdum um að vaxtahækkun nú muni skila tilætluðum árangri. Allt eins megi reikna með því að vaxtahækkun þyki ótrúverðug vegna þess hve vextir eru háir fyrir og vegna þess að gengið lækkaði þrátt fyrir þessa háu vexti. Þá benda SA á líkur á efnahagssamdrætti á næsta ári og telja vaxtahækkun því vafasama. SA hvetja því Seðlabankann til að halda að sér höndum með vaxtahækkun. 16.5.2006 17:10
Deilt um hugmyndir um gjaldskyldu Samfylkingin boðar gjaldskyldu fyrir bílastæði við leik- og grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla í Reykjavík á næsta kjörtímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins og sagt að þessar hugmyndir séu komnar í framkvæmdaáætlun um samgöngustefnu. Í fréttatilkynningunni var því einnig lýst yfir að Sjálfstæðismenn séu algerlega andvígir slíkri gjaldtöku. 16.5.2006 17:09
Treyja Ronaldinhos seldist á rúmlega milljón Rúmlega ein milljón króna safnaðist í uppboði á treyju Ronaldinhos, fótboltakappa í Barcelona, á vegum Glitnis. Uppboðið var til styrktar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og fór fram á sjávarútvegssýningunni í Brussel. 16.5.2006 16:59
Leitað á ákveðnum svæðum Dregið hefur verið úr umfangi leitarinnar að Pétri Þorvarðarsyni sem ekkert hefur spurst til síðan aðfaranótt sunnudags. Byrjað er að kalla björgunarsveitarmenn heim en leit verður haldið áfram á ákveðnum svæðum. 16.5.2006 16:55
Lögregla óskar eftir gæsluvarðhaldi Lögreglan í Kópavogi óskaði í dag í Héraðsdómi Reykjaness eftir gæsluvarðhaldi yfir þremur ungum mönnum sem grunaðir eru um líkamsárás og mannrán í Garðabæ á laugardagskvöld. Héraðsdómari er þessa stundina að taka afstöðu til gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar. Þeir grunuðu gáfu sig allir fram við lögregluna í Kópavogi í dag. Sá fyrsti ffyrir hádegi. Lögreglan hafði símasamband við hina tvo sem síðan gáfu sig fram í sitthvoru lagi, annar um hádegið og hinn um klukkan tvö. Mennirnir hafa verið í yfirheyrslu hjá lögreglunni í dag. En þeir eru runaðir um að hafa numið mann á brott af heimili hans í Garðabæ á laugardagskvöld, ekið með hann upp í Heiðmörk og gengið í skrokk á honum. Allir hinir grunuðu eru innan við tvítugt og hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður. Sá sem fyrir árásinni varð, liggur á sjúkrahúsi og mun ekki enn vera úr allri lífshættu. 16.5.2006 16:15
Dregið úr umfangi leitarinnar Byrjað er að kalla þá björgunarsveitarmenn heim sem hafa leitað að Pétri Þorvarðarsyni sem hvarf á Grímsstöðum á Fjöllum aðfaranótt laugardags. Mikill fjöldi björgunarsveitarmanna hefur verið við leit en nú verður dregið verulega úr umfangi leitarinnar. 16.5.2006 16:11
Rúmlega þúsund söfnuðust við Stóriðjulausum Vestfjörðum Um það bil ellefu hundrað undirskriftir söfnuðust við stuðningsyfirlýsingu um stóriðjulausa Vestfirði á sýningunni Perlan Vestfirðir, sem haldin var fyrstu helgi þessa mánaðar. 16.5.2006 14:57
Allir í haldi lögreglunnar Þriðji maðurinn sem grunaður er um líkamsárás í Heiðmörk um helgina er nú í haldi lögreglunnar í Kópavogi. Hann gaf sig fram nú fyrir stundu. Hinir tveir gáfu sig fram fyrr í dag. 16.5.2006 14:40
Gorbatsjof vinsæll Um fimm hundruð miðar hafa selst á fyrirlestur Mikhail Gorbatsjofs, síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem kemur til landsins í október en þá verða tuttugu liðin frá leiðtogafundi hans og Ronald Reagans, Bandaríkjaforseta, í Höfða. 16.5.2006 14:30
Tveir árásarmannanna í gæsluvarðhaldi Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Kópavogi vegna gruns um að hafa tekið þátt í líkamsárás ásamt einum til viðbótar á laugardagskvöldið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi er búist við því að þriðji maðurinn gefi sig fram nú um tvö leytið. 16.5.2006 14:15