Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þekkta fólkið neytir kókaíns Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir hóp fíkniefnaneytenda orðinn breiðari. Áður hafi verið litið á fíkniefnaneytendur sem hálfgerða aumingja en annað eigi við þá sem eru í kókaínneyslu sem eru mikið til þekkta og fína fólkið. 19.1.2005 00:01
Fleygði hassinu fram af svölum Fjögur hundruð grömm af hassi fundust í húsleit á heimili tuttugu og fimm ára manns í Reykjavík seinni partinn á þriðjudag. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu. 19.1.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar lítillega Á fjórða ársfjórðungi 2004 var atvinnuleysi 2,5 prósent samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysið 2,9 prósent. 19.1.2005 00:01
Fór strax úr landi Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við innflutning á tæpu kílói kókaíni fyrir tveimur vikum hefur verið látinn laus. Sá sem flutti kókaíni inn er tæplega þrítugur Ungverji en hann situr enn í gæsluvarðhaldi. 19.1.2005 00:01
Viðurkennir fyrningu kærunnar Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum viðurkennir að kæra sem kona lagði fram á hendur fyrrverandi eiginmanni sínum fyrir líkamsárás var orðin fyrnd þegar maðurinn var ákærður. 19.1.2005 00:01
Halldór neitar að tjá sig Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra neitar að tjá sig um ákvörðun hans og Davíðs Oddssonar um stuðning Íslands við Íraksstríðið. Fréttastofan hefur nú í þrjá daga leitað eftir skýringum hans á svörum þess efnis að ákvörðunin hafi verið rædd í utanríkismálanefnd. 19.1.2005 00:01
Afkoman versnar Afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2002 til ársins 2003 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði. Þetta kemur fram í hefti Hagstofunnar um sjávarútveg. Helstu botnfisktegundir eru þorskur, ýsa og karfi. 19.1.2005 00:01
Þiggja eftirlaun í fullu starfi Sex fyrrverandi ráðherrar, sem enn eru í fullu starfi á vegum ríkisins, þiggja eftirlaun í samræmi við lög um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins sem samþykkt voru í árslok 2003. 19.1.2005 00:01
Nauðugur einn kostur Sr. Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn, hefur vísað ágreiningi sínum við formann og varaformann sóknarnefndar, auk sóknarprests og djákna, til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar. 19.1.2005 00:01
Bara bréf frá biskup Matthías G. Pétursson, formaður sóknarnefndar Garðanefndar segir að greinargerð verði send úrskurðanefnd þjóðkirkjunnar þann 8. febrúar og úrskurði sé að vænta eftir þann tíma. 19.1.2005 00:01
Koma fjörutíu Kínverja stöðvuð Koma rúmlega 40 Kínverja sem hugðust starfa á Kárahnjúkum hefur verið stöðvuð. Þeir fá ekki atvinnuleyfi meðan rannsókn ráðuneyta á starfsmannamálum Impregilo fer fram. Kínverjarnir höfðu fengið dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun þrátt fyrir að atvinnuleyfi lægi ekki fyrir. 19.1.2005 00:01
Kennara að taka til eftir sig Skilaboð frá borgarfulltrúum til kennara eru að þeir hafi gengið of langt, segir Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOKS, sambands foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur. 19.1.2005 00:01
Mjöll Frigg gæti átt rétt á bótum Eigandi Mjallar Friggjar hafði samband við skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar áður en klórverksmiðjan fluttist þangað. Hafi fyrirtækið fengið vilyrði fyrir starfsleyfi gæti bærinn verið skaðabótaskyldur. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Ofsaveður á Hellisheiði Ofsaveður gekk yfir Hellisheiði og Hveragerði í dag. Loka þurfti heiðinni fyrir umferð vegna veðurs og björgunarsveitarmenn hjálpuðu gangandi vegfarendum og skólabörn í Hveragerði. 19.1.2005 00:01
Fleiri þarf í iðngreinar Það er áhyggjuefni hversu fáir sækja iðn- og tæknimenntun hér á landi og það þarf að breyta ríkjandi viðhorfum í garð iðnmenntunar þar sem aukin þörf er fyrir verk- og iðnmenntað fólk. Þetta var meðal þess sem kom fram á málþingi í tilefni Menntadags iðnaðarins á þriðjudag. 19.1.2005 00:01
Margir fastir á Hellisheiði Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út um hádegi í gær til að aðstoða bíla sem voru í vandræðum á Hellisheiði. Margir bílar lentu í vandræðum í gær vegna ófærðar. Þá voru björgunarsveitarmenn úr Hveragerði beðnir um aðstoð innanbæjar í Hveragerði við að koma skólabörnum til síns heima og aðstoða heilbrigðisstarfsfólk við að komast leiðar sinnar. 19.1.2005 00:01
Minnka áhættu á vímuefnafíkn Hægt er að draga úr áhættu á vímuefnafíkn og afbrotahneigð til muna með því að meðhöndla væga ofvirkni og athyglisbrest þegar í barnæsku. Stefán J. Hreiðarsson, barnalæknir á Greiningarstöð ríkisins, segir umræðuna um geðraskanir barna á villigötum. Um mikilvægt forvarnarstarf sé að ræða. 19.1.2005 00:01
Eþíópímaður dæmdur í fangelsi Eþíópíumaður með sænskt ríkisfang var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir aðstoða par frá Eþíópíu við að komast ólöglega inn í landið. Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð skömmu fyrir áramót ásamt fólkinu sem kom hingað frá Osló, en ferðinni var heitið áfram vestur til Bandaríkjanna. 19.1.2005 00:01
Kjör eldri borgara versna Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, segir að kjör eldri borgara hafi dregist verulega aftur úr kjörum annarra og opinber þjónusta hafi hækkað verulega umfram kjör þessa hóps. 19.1.2005 00:01
Essó afturkallaði hækkun Essó afturkallað tveggja krónu hækkun á eldsneyti aðeins sólahring eftir að hafa hækkað verðið. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Essó, segir að verðið hafi verið lækkað aftur vegna samkeppninnar á markaðnum. 19.1.2005 00:01
Kennsla aukin í Kópavogi Skólanefnd Kópavogs hefur ákveðið að bæta nemendum 9. og 10. bekkja upp hluta þeirrar kennslu sem féll niður vegna kennaraverkfallsins í haust. 19.1.2005 00:01
Fyrsta íslenska fluguveiðihjólið Fyrsta íslenska fluguveiðihjólið kemur á markað í vor og er sérhannað fyrir hinn sterka íslenska lax. Heiti hjólsins tengist veiðivon og hjátrú. 19.1.2005 00:01
Skoða aðstæður á Kárahnjúkum Fulltrúar ítölsku verkalýðshreyfingarinnar og Alþjóðasambands byggingaverkamanna skoða aðstæður verkamanna hjá Impregilo á Kárahnjúkum í dag. Þeir ætla að segja skoðun sína hreinskilnislega eftir ferðina. 19.1.2005 00:01
Opinberir starfsmenn á sérkjörum Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi sendiherra í Finnlandi, hefur rétt á tæplega 400.000 króna eftirlaunum á mánuði auk fullra launa vegna sendiherrastöðu sinnar, sem nema tæpri milljón króna sem er að stórum hluta skattfrjáls. Sjö fyrrverandi ráðherrar fá greidd eftirlaun þrátt fyrir að vera í fullu starfi á vegum ríkisins og samtals þáðu þeir sautján milljónir í eftirlaunagreiðslur á liðnu ári. 19.1.2005 00:01
Festi bíl sinn á Fróðárheiði Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsvík komu ökumanni til aðstoðar eftir að hann festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði. 18.1.2005 00:01
Enn að heiman Hjálmar Sigurðsson ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan að snjóflóð féll á bæ þeirra í síðustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur verið til viðgerðar. 18.1.2005 00:01
Hættuástandi aflétt á Vestfjörðum Almannavarnanefnd á Ísafirði ákvað á sjöunda tímanum í morgun að aflétta hættuástandi á Ísafirði og getur fólk, sem rýma þurfti hús sín þar í gær, snúið aftur til síns heima. Hættuástandi hefur líka verið aflétt í Bolungarvík og á Patreksfirði. 18.1.2005 00:01
Fleiri fá ríkisborgararétt Aldrei hefur jafnmörgum verið veittur íslenskur ríkisborgararéttur og í fyrra en þá fengu 637 útlendingar ríkisborgararétt. Fjölgunin á milli ára er veruleg því árið 2003 fengu 436 útlendingar ríkisborgararétt og árið 2002 voru þeir 364 samkvæmt tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 18.1.2005 00:01
Tafir vegna árekstrar Töluverðar umferðartafir urðu eftir þrír bílar lentu í árekstri á mótum Miklubrautar, Hringbrautar og Snorrabrautar um áttaleytið í morgun. Engan í bílunum sakaði en þeir skemmdust mikið. 18.1.2005 00:01
ÍE og SÁÁ rannsaka fíkn Íslensk erfðagreining og SÁÁ hafa samið um að starfa saman að rannsóknum á erfðafræði áfengissýki og fíknar. Samningurinn er liður í viðamiklu evrópsku samstarfsverkefni átta rannsóknastofa en rannsaka á líffræðilegar orsakir fíknar, eins og fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu. 18.1.2005 00:01
Gengi krónunnar í sögulegu hámarki Gengi krónunnar náði sögulegu hámarki í gær þegar gengisvísitalan mældist lægri en hún hefur verið í fjögur og hálft ár. Á rúmum þremur árum hefur gengi krónunnar hækkað um meira en þriðjung. 18.1.2005 00:01
Esso hækkar bensínverð Olíufélagið Esso hækkaði bensínlítrann um tvær krónur í gær og kostar lítrinn nú liðlega hundrað krónur á sjálfsafgreiðslustöðvum félagsins. Hin félögin hafa ekki hækkað bensínverð. 18.1.2005 00:01
Ofgreitt fyrir Stjörnubíósreit Reykjavíkurborg borgaði 55 prósentum meira en hæsta markaðsverð á svæðinu þegar hún keypti Stjörnubíósreitinn við Laugaveg. Þetta kemur fram í úttekt sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um hreina spillingu hafi verið að ræða. 18.1.2005 00:01
Fagnar áformum um sölu Símans Frjálshyggjufélagið fagnar í ályktun áformum ríkisstjórnarinnar um að selja Símann en hafnar hins vegar öllum hugmyndum um aukinn ríkisrekstur á heilbrigðissviði. Sala ríkisfyrirtækis sé ekki einkavæðing ef andvirði sölunnar sé notað til að auka ríkisrekstur á öðrum sviðum. Reisa megi nýtt sjúkrahús en ekki á vegum ríkisins. 18.1.2005 00:01
Selja félagslegar íbúðir Sveitarfélagið Austurbyggð er nú sem óðast að losna við félagslegar íbúðir sínar, en slíkar íbúðir eru víða þungur baggi á sveitarsjóðum. Þrjár félagslegar íbúðir vour seldar í fyrra og nú er verið að ganga frá sölusamningum um þrjár í viðbót að því er fram kemur á vef Austurbyggðar. 18.1.2005 00:01
Mörg ágreiningsatriði um Impregilo Ljóst er að fjölmörg ágreiningsatriði eru uppi milli Impregilo annars vegar og hagsmunasamtaka vinnumarkaðarins, að sögn Sivjar Friðleifsdóttur formanns félagsmálanefndar 18.1.2005 00:01
Fela ekki lengur ólöglega vinnu Grunur leikur á að útlendingar starfi mjög víða ólöglega að byggingastörfum hér á landi. Samiðn segir, að það séu "smákallarnir" sem standi í því að ráða slíkt vinnuafl. Þeir séu í smáverkum og geti þar látið sitthvað hverfa eins og vinnulaun. </font /></b /> 18.1.2005 00:01
Lægsta tilboð 24% af kostnaði Lægsta boð í fyrsta áfanga Suðurstrandarvegar reyndist aðeins 23,6 prósent af kostnaðaráætlun en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Fyrirtækið Vegamenn í Reykjavík bauð lægst, 35 milljónir króna, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 150 milljónir króna. 18.1.2005 00:01
Rannsaka erfðir á alkahólisma Íslensk erfðagreining og SÁÁ taka nú til óspilltra málana við rannsókn á erfðum áfengissýki og fíknar. Til þessa verkefnis hefur Evrópusambandið veitt 330 milljónum, sem er stærsti styrkur sem það hefur veitt til íslensks rannsóknarverkefnis. Markmiðið er að lækna og fyrirbyggja. </font /></b /> 18.1.2005 00:01
Staða eldra starfsfólks styrkt Árni Magnússon félagsmálaráðherra vill að hafið verði sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Hefur nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins lagt það til við stjórnvöld að slíku verkefni verði hrundið úr vör. 18.1.2005 00:01
Kostnaður hækkar meira en laun Kostnaðarliðir heimilanna hækkuðu meira um áramót en laun og ýmsar bætur að mati Alþýðusambands Íslands. Að mati sambandsins má ekki mikið út af bera til að forsendur kjarasamninga bresti og kjarasamningum verði sagt upp í haust. 18.1.2005 00:01
Össur fái aðeins laun frá flokknum Formaður Samfylkingarinnar má ekki þiggja laun fyrir það starf frá öðrum en flokknum ef tillaga Birgis Dýrfjörð verður samþykkt á komandi landsþingi flokksins. Samkvæmt eftirlaunalögunum sem samþykkt voru í lok árs 2003 fá formenn stjórnmálaflokka á þingi um 230.000 krónur á mánuði auk þingmannalauna. 18.1.2005 00:01
Neytendasamtökin styrkja prófmál Stjórn Neytendasamtakanna hefur ákveðið að samtökin styðji fjárhagslega við bakið á skaðabótamáli einstaklings gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Jóhannes Gunnarsson, formaður samtakanna, segir að þau geti ekki sjálf farið í mál fyrir hönd neytenda. Þess vegna hafi þessi leið verið valin og það hafi verið óumdeilt í stjórninni. 18.1.2005 00:01
Hluti sekta renni til eftirlits Ef áfrýjunarnefnd samkeppnismála kemst að þeirri niðurstöðu að olíufélögin eigi að greiða sektir vegna samráðs munu fjármunirnir renna nánast samstundis í ríkissjóð. Í niðurstöðu samkeppnisráðs, sem olíufélögin hafa áfrýjað til áfrýjunarnefndarinnar, kom fram að olíufélögin ættu að greiða tæpa þrjá milljarða í sektir. 18.1.2005 00:01
Skapar tortryggni í garð HÍ Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, segir að það kunni að orka tvímælis að starfsmenn skólans taki beinan þátt í rannsóknum á umdeildum þjóðfélagsmálum. Þetta segir hann aðspurður um skýrslu Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Jóns Þórs Sturlusonar, sérfræðings á stofnuninni, sem þeir gerðu í eigin nafni fyrir olíufélögin. 18.1.2005 00:01