Fleiri fréttir

Talið að hinn látni sé erlendur ferðamaður

Talið er að maðurinn sem fannst látinn á Snæfellsnesi í gær, sé erlendur ferðamaður, að öllum líkindum frönskumælandi. Ekki er vitað nákvæmlega hver hann er. Talið er að hann hafi látist eftir 22. mars.

Heittrúaðir létu krossfesta sig og húðstrýkja

Krossfesting Jesú var sett á svið á Filippseyjum í nótt þegar fámennur hópur kaþólskra tilbiðjenda freistaði þess að upplifa síðustu stundir krists. Þetta er árviss viðburður á Filippseyjum og vekur ávallt heimsathygli. Í þetta skipti voru að minnsta kosti sextán kaþólikkar sem létu bæði húðstrýkja sig og krossfesta. Þúsundir fylgdust með krossfestingunum í nótt. Kaþólska kirkja hefur ekki lagt blessun sína á þessi uppátæki enda er hér um að ræða blöndu af bænagjörð kristinna manna og filipeyskri alþýðutrú á fórnir.

Nánast öll skíðasvæði landsins opin

Opið er á nánast öllum skíðasvæðum landsins í dag og verða þau flest með skemmtidagskrá í tilefni páskanna. Gestir eru þegar farnir að renna sér í Bláfjöllum en þar verður opið til fimm í dag og sama gildir um skíðasvæði Ísafjarðarbæjar, Tindaöxl í Ólafsfirði, Böggvisstaðafjall við Dalvík og Oddskarð. Hlíðarfjall og skíðasvæðið í Tindastól lokar svo klukkutíma fyrr, eða klukkan fjögur. Þá verður Skálafell lokað í dag vegna snjóleysis.

Líkfundur á Snæfellsnesi

Lík fannst á Snæfellsnesi í gær. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi fer með rannsókn málsins ásamt lögreglunni á Snæfellsnesi. Lögreglan á Akranesi veitti fréttastofu ekki upplýsingar um málið þegar eftir þeim var leitað í morgun en fram kemur á mbl.is að bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar séu þær að andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti.

Óttast að 7000 manns hafi smitast af HIV hjá tannlækni

Óttast er að 7000 manns sem leituðu til tannlæknis í Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjunum hafi getað smitast af HIV veirunni. Tannlæknirinn notaði gömul og úrelt tæki, 20 ára gömul lyf og notaðar nálar við störf sín.

Tónlistarhátíðin sett í kvöld

Mikill fjöldi fólks er á Ísafirði núna en tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður sett í kvöld. Þá var skíðavikan sett á miðvikudaginn. Skemmtanahald fer þó vel fram að sögn lögreglunnar fyrir utan það að nokkrir voru teknir fyrir vörslu fíkniefna í gær.

Hughreystir þjóð sína vegna veikina Mandela

Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, sendi í gær út sérstaka yfirlýsingu til þjóðar sinnar vegna síendurtekinna veikinda Nelsons Mandela. Mandela, sem er orðinn 94 ára gamall, hefur barist við þrálát lungnaveikindi undanfarna mánuði. Hann var lagður inn á spítala á miðvikudag og var átján daga á spítala í desember vegna veikinda sinna. Í yfirlýsingunni sem Zuma sendi út sagði hann að Mandela svaraði meðferð á spítalanum vel.

Fyrstu fermingar vetrarins

Í dag er skírdagur en þá minnast kristnir menn þess er Kristur þvoði fætur lærisveinanna fyrir síðustu kvöldmáltíðina. Um er að ræða almennan frídag og nýta margir fríið í að fara á skíði, nú eða til að sækja guðsþjónustur. Víða á Vestfjörðum er messað í dag en tvær fermingar messur eru á norðanverðum Vestfjörðum. Á Ísafirði fermast sjö börn í fermingarguðsþjónustu sem hefst kl. 14.00. Í Hólskirkju í Bolungarvík fermast tvö börn og hefst guðsþjónustan kl. 11.00.

"Gjörsamlega nötraði í sætinu"

Uppselt var á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og nemenda úr Tónlistarskólanum á Akureyri í kvöld.

„Hann beindi sprengjuvörpu að höfðinu á mér"

Helga Þórólfsdóttir hefur í starfi sínu fyrir Rauða krossinn upplifað aðstæður sem flestir þekkja aðeins úr kvikmyndum. Henni hefur verið haldið í gíslingu af hermönnum stríðsglæpamannsins Charles Taylor í Líberíu og komst naumlega undan skotárás sem gerð

Umferðarslys í Hvalfirði

Tveir fólksbílar lentu í árekstri nærri bænum Gröf í Hvalfjarðarsveit um sjöleytið í kvöld. Tveir sjúkrabílar fluttu slasaða af vettvangi.

Saknar saumavélar ömmu sinnar

Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi fangelsisstjóri á Kvíabryggju segir Pál Winkel, forstjóra fangelsimálstofnunnar, neita að afhenda sér persónulega muni sem urðu eftir á hans gamla vinnustað. Páll vísar ásökunum Geirmundar á bug.

"Það var alls ekki meiningin að svindla"

Fimmtán ára gömlum vinkonum úr Breiðholtinu var stórlega misboðið þegar vagnstjóri hjá Strætó vísaði þeim á dyr, síðla kvölds í gær. Harðort bréf frá þeim til Strætó hefur síðan valdið miklu fjaðrafoki á veraldarvefnum.

Varhugavert að auglýsa ferðaáætlunina

Landsmenn leggja nú margir land undir fót og sem fyrr er mikilvægt að ganga frá sínum málum heima fyrir. Varhugavert er að auglýsa ferðaáætlunina á Facebook en svo virðist sem að margir gleymi öðrum samfélagsmiðlum.

Vilji er allt sem þarf

Hægt er að spá fyrir um það hverjir muni fá krabbamein og jafnvel koma í veg fyrir að fólk þrói með sér sjúkdóminn, samkvæmt niðurstöðum stórrar erlendrar rannsóknar. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir þetta lengi hafa verið hægt á Íslandi, en að pólitískan vilja skorti.

Hvernig getum við hjálpað öðrum þjóðum?

"Maður horfir upp á fólk vera matarlaust síðustu tíu daga mánaðarins. Svo verður maður vitni að því að Alþingi samþykkir að senda 24 milljarða í neyðaraðstoð til annarra þjóða. Hvernig getur jafn illa stödd þjóð og okkar hjálpað öðrum þjóðum?“

Mandela allur að koma til

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður Afríku, bregst vel við meðferð sem hann gengst nú undir eftir að lungnabólga tók sig upp að nýju.

Óviðunandi ástand

Fornleifafræðingafélag Íslands gagnrýnir mennta- og menningarmálaráðherra og Minjastofnunum Íslands fyrir þann drátt sem orðið hefur á auglýsingu styrkja úr Fornminjasjóði.

15 nemendur létu lífið

Sprengjur féllu í dag á háskólann í Damaskus, höfuðborg Sýrlands með þeim afleiðingum að fimmtán nemendur létu lífið. Þetta fullyrða ríkisfjölmiðlar í landinu og kenna uppreisnarmönnum um árásina.

Tvær ungar stelpur brenndust við Geysi

"Íslenskir krakkar þekkja hættuna af heitu vatni en þetta fólk gerir sér ekki grein fyrir að það sé 100°C heitt vatn flæðandi meðfram gangstéttinni. Það er ekkert sem varar fólk við," segir Börkur Hrólfsson leiðsögumaður.

"Árni kryddaði tilveruna á Alþingi"

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sleit þingi í nótt. Í ræðu sinni minntist hún þeirra þingmanna sem nú hverfa af þingi. Auk hennar sjálfrar má nefna Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Árna Johnsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins.

Typpin fjarlægð af Laugavegi

Margir sem nú eiga leið um Laugaveginn taka kannski eftir því að hann virkar rýmri en áður. Ástæðan er sú að búið er að fjarlægja alla polla sem voru innan við fjóra metra frá húsvegg og einnig þá sem þóttu þrengja að gangandi og akandi vegfarendum. Útkoman er breiðari gangstétt og gata vegfarendum til hægðarauka.

Júlli í Draumnum kaupir James Bönd

Júlíus Þorbergsson, betur þekktur sem Júlli í Draumnum, hefur fest kaup á myndbandaleigunni og söluturninum James Bönd í Skipholti.

Hafernir í beinni útsendingu

Á vefmyndavél sem staðsett er við hafarnarhreiður í Eistlandi má fylgjast með fuglinum sjaldgæfa við daglegt amstur.

Grunuð um að hafa myrt 300 sjúklinga

56 ára brasilískur læknir er grunaður um að bera ábyrgð á dauða allt að 300 sjúklinga á gjörgæsludeild á sjúkrahúsi þar í landi.

Síðustu vikur þær döprustu á ferlinum

Samkomulag náðist um þinglok og afgreiðslu mála á Alþingi um klukkan níu í gærkvöldi. Meðal mála sem voru samþykkt á þessum síðasta þingfundi var stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, frumvarp um kísilver á Bakka og frumvarp um stuðning um uppbyggingu vegna atvinnustarfsemi vegna iðnaðar á Bakka og þá voru ný náttúruverndarlög samþykkt.

Athugasemd frá Nóa Síríus

„Það er rétt sem fram kemur í frétt á Vísi.is að barnaþrælkun er ljótur blettur á kakóbaunarækt á Fílabeinsströndinni en vegna fátæktar og viðvarandi stríðsástands á þessum slóðum hefur gengið illa útrýma þessu vandamáli."

Leita á frekar til ungmenna

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, haldin á Egilsstöðum 20. - 22. mars 2013, skorar á íslensk stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum þau sem varða ungmennin sjálf. Bestu málsvarar ungmenna séu ungmennin sjálf.

Lokaballið flutt á spítalann

Hin 14 ára Katelyn Norman greindist með krabbamein í beini í handlegg sínum fyrir tveimur árum. Hún á aðeins nokkra daga eftir ólifaða.

Tollvörðurinn látinn laus

Tollvörður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 21. febrúar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli hefur verið látinn laus.

Stökkvararnir fá sálfræðiaðstoð

Fallhlífastökkvarinn Hjörtur Blöndal hefur skrifað pistil fyrir hönd stökkhópsins í Flórída þar sem hann útskýrir sjónarhorn hópsins sem enn dvelur vestanhafs.

Stigu trylltan dans

Óhætt er að segja að norðurljósin hafi skartað sínu fegursta þann 17. mars síðastliðinn við náttúruperlur Íslands.

Þingfundum frestað í nótt

Fundum Alþingis var frestað rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra las þá upp forsetabréf um þingfrestun og hélt síðan stutta ræðu en þetta var síðasti þingfundur hennar eftir um þrjátíu og fimm ára samfelldan feril á Alþingi. Hún hefur setið þar lengst allra kvenna í sögunni.

Braust inn í apótek

Brotist var inn í apótek í Salahverfinu á öðrum tímanum í nótt. Innbrotsþjófurinn var á bak og burt þegar lögregla og öryggisverðir komu á staðinn.

Gott skíðaveður

Landsmenn geta skellt sér á skíði víðast hvar á landinu í dag ef frá eru taldir íbúar á höfuðborgarsvæðinu.

Mandela á spítala

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku og mannréttindafrömuður, var lagður inn á sjúkrahús í nótt eftir að sýking hafði tekið sig upp að nýju í lungum hans.

48 þúsund króna hámarksútekt

Bankar á Kýpur opna á hádegi í dag, eftir að hafa verið lokaðir í tæpar tvær vikur. Fregnir herma að öryggisgæsla við fjármálastofnanir í landinu sé mikil.

Umhverfismat og þverun fjarðarins

Í mati á umhverfisáhrifum vegna Snæfellsnesvegar um Kolgrafafjörð, sem unnið var af Vegagerðinni, kemur fram að vatnsskipti fjarðarins hafi verið eitt af grundvallaratriðunum við hönnun vegarins.

Sjá næstu 50 fréttir