Síðustu vikur þær döprustu á ferlinum 28. mars 2013 13:53
Samkomulag náðist um þinglok og afgreiðslu mála á Alþingi um klukkan níu í gærkvöldi. Meðal mála sem voru samþykkt á þessum síðasta þingfundi var stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, frumvarp um kísilver á Bakka og frumvarp um stuðning um uppbyggingu vegna atvinnustarfsemi vegna iðnaðar á Bakka og þá voru ný náttúruverndarlög samþykkt. Þetta var síðasti þingfundur Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi eftir 35 ára starf þar. Í síðustu ræðu sinni þakkaði hún núverandi og fyrrverandi þingmönnum fyrir samstarfið. „Oft hefur umræða í þingsölum verið óvægin, einkum hin síðustu ár. Kannski óvægnari og hatramari en oft áður. Af þeim sökum hafa síðustu vikur mínar hér á Alþingi verið daprasta tímabilið á mínum þingferli," sagði Jóhanna Hún telur að mikilvægasta verkefni sem nú liggi fyrir á vettvangi stjórnmálanna sé að breyta þinghaldinu og koma því í svipað horf og er á öðrum Norðurlöndum svo ekki sé hægt að tefja endalaust framgang á stjórnarfrumvörpum lýðræðislega kjörinna stjórnvalda svo vitnað sé til orða hennar. Eitt helsta baráttumál Jóhönnu Sigurðardóttur á þessu kjörtímabili hefur verið ný stjórnarskrá. Henni tókst ekki að koma henni í gegnum þingið en breytingartillaga formannana þriggja, þeirra Árna Páls Árnasonar, arftaka Jóhönnu hjá Samfylkingunni, Katrínar Jakobsdóttur, formanns vinstri grænna, og Guðmundar Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. Tillagan gerir ráð fyrir að hægt verði að breyta stjórnarskrá á næsta kjörtímabili með því að aukinn meirihluti þingmanna samþykki það sem og 40 prósent kjósenda. Tillagan va samþykkt með 25 atkvæðum gegn tveimur en 21 þingmaður greiddi ekki atkvæði, vakti sérstaka athygli að Jóhanna Sigurðardóttir var á meðal þeirra þingmanna og veitti tillögu núverandi formanns því ekki stuðning inn á næsta kjörtímabil. Árni Páll segir ofmælt að þröskuldur til breytinga sé orðinn svo hár að þær verði nær ógjörningur. „Ég held að það sé nú ofmælt. Menn voru nú nálægt því að ná því í einstökum spurningum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í fyrra haust sem hefur nú verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki haft næga þátttöku. Þannig ég held að mönnum sé í lófa lagið að tryggja góða þátttöku, það er til dæmis hægt að láta atkvæðagreiðslu fara samhliða almennum kosningum. Það verða sveitastjórnarkosningar hér næsta vor, það verður forsetakosning 2016 þannig það eru margir kostir til að tryggja góða þátttöku." Árni Páll minnir á að breytingartillagan sé samningsniðurstaða, hann hefði kosið að hafa þröskuldinn lægri en þetta hafi verið leiðin til að ná friði um málið, hann líti svo á að það hafi tekist nokkuð vel þar sem tillagan hafi fengið stuðning víða að svo sem meðal allra flokka utan eins sem og meðal þingmanna utan flokka. „Já, það eru einstaka þingmenn sem tóku afstöðu í þessu máli sem er bara þeirra að útskýra."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira