Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi Nú í morgun var í Héraðsdómi Vesturlands framlengt gæsluvarðhald yfir manni á fertugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum stúlkum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Akranesi. 25.1.2013 13:53
Mesta sala á einu ári í sögu Porsche Fleiri Porsche sportbílar seldust á árinu 2012 en nokkru sinni fyrr í sögu þýska framleiðandans. Alls voru afhentir 141.075 Porsche sportbílar sem er 18,7% aukning frá árinu 2011. Þetta þykir umtalsverður árangur í ljósi efnahagskreppunnar. Sala á Porsche hefur aukist á hverju ári síðastliðin þrjú ár. Á þessu tímabili hefur salan aukist um 83,9%. "Árið 2012 var það árangursríkasta í sögu fyrirtækisins,“ sagði Matthias Müller, forstjóri og aðalframkvæmdastjóri Porsche á bílasýningunni í Detroit sem nú stendur yfir. "Lykilatriði í velgengni okkar er samheldinn og traustur hópur starfsmanna. Við höfum öll spil á hendi til að árið 2013 verði Porsche einnig gæfuríkt. Porsche hyggur á mikla markaðssetningu á þessu ári með nýjum tvinnbílum, eins og t.d. 918 Spyder og sportjeppanum Macan. Söluaukning Porsche var yfir 10% á öllum markaðssvæðum en mest var hún í Asíu og Kyrrahafslöndunum þar sem afhentir voru 50.376 nýir bílar sem er 23,6% aukning. Í Evrópu jókst salan um 13,5%. Í Bandaríkjunum jókst sala á Porsche um 20,7%. Á heimamarkaði, í Þýskalandi, naut Porsche einnig mikillar velgengni þar sem vinsældir 911, Cayenne, Panamera, Boxster og Cayman eru miklar. Þar nam aukningin tæpum 17%. Porsche 911 Carrera var sá bíll sem naut mestu söluaukningar hjá Porsche á síðasta ári. Aukningin nam alls 31,4%. Það er hins vegar Cayenne sportjeppinn sem er söluhæsta einstaka gerðin. Alls seldust 74.763 bílar á síðasta ári sem er 24,8% aukning. Þar af seldust 19.000 eintök af Cayenne S, Cayenne GTS og Cayenne Turbo og þar með heldur Porsche stöðu sinni sem söluhæsti bíllinn í flokki aflmestu sportjeppanna. 25.1.2013 13:15
Slys á leikskóla ekki lögreglumál Slys sem varð á leikskóla í Reykjavík á þriðjudag, þar sem þriggja ára stúlka höfuðkúpubrotnaði, var ekki þess eðlis að kalla þyrfti til lögreglu. 25.1.2013 13:01
Flokksráðsfundur VG um helgina Flokksráðsfundur Vinstri grænna er haldinn á Grand hótel um helgina og hefst seinnipartinn með ræðu Katrínar Jakobsdóttur varaformanns en um klukkan hálf sex heldur Steingrímur J. Sigfússon ræðu. Þar mun hann fara yfir stjórnmálin á kosningavetri en búast má við heitum fundi eftir þær miklu hræringar sem verið hafa í flokknum og stjórnarsamstarfinu að undanförnu. Nú síðast sagði Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra sig úr þingflokki VG og hafa þá fjórir þingmenn yfirgefið þingflokkinn á kjörtímabilinu. Almennar stjórnmálaumræður verða á fundinum klukkan átta í kvöld og má reikna með að órólega deild flokksins láti heyra í sér í þeim umræðum. 25.1.2013 12:07
Enginn samningsvilji af hálfu sveitarfélaganna "Kennarar vinna allt of mikið og skortir tíma til að sinna verkefnum sínum, en þeim hefur fjölgað mikið og áherslurnar breyst," segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara 25.1.2013 11:46
Hani var til stórra vandræða Hani, sem staðsettur var í parhúsi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, var til svo stórra vandræða á dögunum að kvartað var undan því við lögregluna. Í kvörtuninni kom fram að haninn léti í sér heyra á öllum tímum sólarhrings, ekki síst á nóttunni og væri þá ekkert á lágu nótunum. Hefði hann ýmist haldið fólki vakandi stóran hluta nætur, eða vakið þá sem náðu að festa svefn. Lögregla ræddi við eiganda hanans sem lofaði að fjarlægja hann úr þéttbýlinu. Nágrönnum var greint frá því og önduðu þeir léttar. 25.1.2013 11:31
Krufningaskýrslan mun ekki hafa áhrif á aðbúnað Annþórs og Barkar "Ég get ekki tjáð mig um einstök mál, en ef trúnaðargögn úr sakamáli berast Fangelsismálastofnun þá hefur það engin áhrif á vistun einstaklinga,“ segir Páll Winkel, fangelsismálastjóri, spurður út í aðbúnað Barkar Birgissonar og Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem eru grunaðir um að hafa valdið samfanga sínum dauða í fangaklefa hans í maí á síðasta ári. 25.1.2013 11:27
Grunaður fíkniefnasali handtekinn Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn á Suðurnesjum í gær, en sá hafði í fórum sínum talsvert magn af kannabisefnum. Lögregla var á leið í húsleit á heimili mannsins, að fengnum dómsúrskurði, en mætti honum fyrir utan húsnæðið. Þar framvísaði hann þegar nokkum kannabisskömmtum. Þegar inn var komið framvísaði hann poka með talsverðu magni af sama efni. Grunur leikur á að maðurinn hafi stundað fíkniefnasölu. 25.1.2013 11:21
Öruggustu bílarnir að mati Euro NCAP Euro NCAP birti í vikunni lista yfir öruggustu bílana sem í boði eru í Evrópu í hverjum flokki. Sá bíll sem allra hæstu einkunn hlaut fyrir framúrskarandi öryggi var Volvo V40 og hefur enginn bíll hlotið eins háa einkunn og hann frá upphafi. Renault Clio reyndist öruggasti bíllinn í flokknum „Supermini". Í flokki minni fjölskyldubíla (Small MPV) stóðu Fiat 500L og Ford B-Max jafnir og hæstir á blaði. BMW 320d reyndist bestur meðal stærri fjölskyldubíla, Ford Kuga í flokki minni fjórhjóladrifsbíla og Hyundai Santa Fe í flokki stærri fjórhjóladrifsbíla. Ford Transit Custom reyndist bestur á meðal stærri fjölskyldubíla. Allir fengu þessir bíla 5 stjörnur í öryggisprófunum Euro NCAP. 25.1.2013 11:15
Íslensk yfirvöld sökuð um daufar aðgerðir gagnvart hælisleitendum Ameríska-íslenska viðskiptaráðið (AMIS) sakar ríkisstjórnina um daufar aðgerðir við úrlausnir málefna hælisleitenda en þeir hafa undanfarin ár reynt nokkrum sinnum að að smygla sér um borð í skip Eimskips í Sundahöfn sem halda uppi áætlunarsiglingum milli Íslands og Bandaríkjanna. 25.1.2013 10:20
Seldi dóttur sína á 1,5 milljónir króna Indversk móðir hefur verið handtekin fyrir að selja dóttur sína á 650 þúsund rúpíur, eða því sem nemur 1,5 milljónum króna. Móðirin segir að hún hafi selt stelpuna til þess að geta greitt skuld sem nemur um einni milljón króna, en hún skuldar þorpinu sem hún býr í þann pening. Lögreglan hefur líka handtekið parið sem keypti stelpuna og sakar þau um mansal. Indverjar neyðast oft til þess að selja börn sín vegna fátæktar og örbirgðar og margar stelpur eru seldar. Fréttastofa BBC hefur það eftir lögreglunni á Indlandi að stúlkan hafi verið seld fyrir mánuði en glæpurinn upplýstist þegar hún reyndi að strjúka frá parinu. 25.1.2013 10:03
Af hverju bæta tryggingafélög ekki tjón af völdum yfirliðs? Hin fjórtán ára Lena Sóley Þorvaldsdóttir lenti í því óskemmtilega óhappi að brjóta í sér tennur þegar leið yfir hana á gamlársdag. Tryggingafélag hennar neitar að greiða henni bætur þótt fjölskylda hennar sé með slysatryggingu. Ástæðan er sú að yfirlið telst ekki vera slys í skilmálum íslenskra tryggingafélaga. 25.1.2013 10:00
Ingibjörg og Ragnheiður hæfastar í héraðsdóm Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Ragnheiður Snorradóttir eru hæfastar umsækjenda til að hljóta skipun í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem auglýst voru laus til umsóknar í október. Þetta kemur fram í umsögn dómnefndar um umsækjendur. Umsækjendur voru átta. 25.1.2013 09:12
Garðfuglatalning Fuglaverndar fer fram um helgina Árleg garðfuglatalning Fuglaverndar fer fram núna um helgina. Fólk er hvatt til að fylgjast með garði í klukkutíma í dag, á morgun og á sunnudag eða mánudag. Þá þarf að skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, það er þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Svo getur fólk skráð niðurstöður á Garðfuglavefnum, eða sent upplýsingarnar á skráningarblaði til Fuglaverndar. Frekari upplýsingar um þetta má nálgast um þetta hér á vefnum. 25.1.2013 09:01
Aldrei fleiri hafa leitað til Barnahúss en nú í janúar Forsvarskona Barnahúss segist aldrei hafa upplifað aðra eins aðsókn og nú í janúar. Málafjöldinn löngu orðinn of mikill fyrir starfsemina. Kerfi sem annar ekki eftirspurn hefur verulega slæm áhrif á málin, segir dósent. 25.1.2013 07:00
"Ég var sýknuð" Florence Cassez var dæmd í sextíu ára fangelsi í Mexíkó fyrir aðild að mannránum. Hún er nú komin til Frakklands eftir að hæstiréttur Mexíkó ógilti dóminn vegna formgalla. Fórnarlömbin þó engan veginn sannfærð um sakleysi hennar. 25.1.2013 07:00
Íbúum fjölgar mest í Kópavogi og Garðabæ Landsmönnum fjölgaði um ríflega tvö þúsund á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2012. Þar af fjölgaði íbúum á höfuðborgarsvæðinu um 1.830 og íbúum á landsbyggðinni um 180. Íbúum fjölgaði sérstaklega mikið í Kópavogi og Garðabæ. 25.1.2013 07:00
Hið opinbera eykur verðbólgu Auknar opinberar álögur hafa hækkað hér verðbólgu síðustu ár um fimm til sex prósent, samkvæmt áætlun hagdeildar Alþýðusambands Íslands. 25.1.2013 07:00
Þrír fjórðu hlutar niðurhals ólöglegir Höfundar, flytjendur og framleiðendur íslenskrar tónlistar, kvikmynda og bóka, hófu í gær átak til að hvetja Íslendinga til að nýta sér löglegar leiðir til að nálgast tónlist, kvikmyndir og bækur á netinu. 25.1.2013 07:00
Vegagerðin bætir tjón vegna tjörublæðinga Eigendur ökutækja sem urðu fyrir skemmdum vegna malbiksblæðinga á þjóðvegum síðustu daga fá tjón sitt bætt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 25.1.2013 07:00
Kvótinn aukinn um 220 dýr í ár Heimilt verður að veiða allt að 1.229 hreindýr í ár. Það er fjölgun um 220 dýr frá síðasta ári en umhverfisráðherra ákveður þennan kvóta að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. 25.1.2013 07:00
Aukafjárframlög í augnsýn Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segist nú hafa umboð frá stjórnvöldum til að semja við hjúkrunarfræðinga spítalans. Slíkt mun kosta ríkissjóð hundruð milljóna króna. RÚV sagði frá þessu í gærkvöldi. 25.1.2013 07:00
Með hugann við náttúruna Íbúar á Kjalarnesi vilja fá bætta aðstöðu til sjósunds og betri fræðslu um náttúru. Þetta kom fram í vali íbúanna á verkefnum í "Betri hverfum“ á síðasta ári sem komast til framkvæmda. Íbúarnir sendu fyrst inn hugmyndir og síðan var kosið um þær í rafrænni kosningu, eins og í öðrum hverfum. 25.1.2013 07:00
Tekjutenging gjalda of flókin Meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hafnaði á síðasta fundi hugmyndum fulltrúa minnihlutans um að skoðað yrði að koma til móts við tekjulága hópa með því að miða gjaldskrána við fleiri þætti en félagslega stöðu, til dæmis með tekjutengingum. 25.1.2013 07:00
Kanna jarðsig í götu á Selfossi Starfsmenn Árborgar munu strax í birtingu kanna nánar jarðsig í götu í austurhluta Selfoss. 25.1.2013 06:52
Nokkur sjnóflóð langt frá byggð á Austurlandi Nokkur snjóflóð féllu til fjalla á Austurlandi, en þau voru fremur lítil og hlaust ekki tjón af. Spáð er snjókomu á Norðurlandi og Vestfjörðum um helgina og þá gæti skapast snjóflóðahætta til fjalla þar, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar. Þau yrðu þá væntanlega langt frá byggð. 25.1.2013 06:47
Haggis enn og aftur í sviðsljósinu í Bandaríkjunum Enn og aftur er þjóðarréttur Skota, haggis, kominn í sviðsljósið í Bandaríkjunum eins og gerst hefur árlega í töluvert langan tíma en haggis er bannað þar í landi. 25.1.2013 06:44
Líkur á að allir James Bond leikaranir komi saman Breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að einhverjar líkur séu á að allir þeir sex leikarar sem leikið hafa James Bond muni koma saman í fyrsta sinn í sögunni á næstu Óskarsverðlaunahátíð. 25.1.2013 06:40
Meirihluti Breta vill úrsögn úr Evrópusambandinu Ef kosið yrði í dag myndi naumur meirihluti Breta velja að Bretland segði sig úr Evrópusambandinu. 25.1.2013 06:38
Vestrænir menn hvattir til að yfirgefa Benghazi Bresk stjórnvöld hafa hvatt alla Breta sem staddir eru í borginni Benghazi í Líbýu að yfirgefa borgina strax vegna yfirvofandi ógnar í garð vestrænna manna. 25.1.2013 06:35
Um 15.000 krókudílar sluppu frá búgarði í Suður Afríku Um 15.000 krókudílar sluppu frá krókudílabúgarði í norðurhluta Suður Afríku í upphafi vikunnar. 25.1.2013 06:33
Ólétt kona á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur Þunguð kona var flutt á slysadeild Landsspítalans eftir að fjórir bílar lentu í hörðum árekstri efst í Kömbum á Suðurlandsvegi í gærkvöldi. 25.1.2013 06:27
Náði fyrstu myndinni af Oslóarúlfinum Náðst hefur mynd af úlfi sem heldur til í grennd við Osló í Noregi. Úlfur þessi hefur verið eitt helsta umtalsefni borgarbúa undanfarna daga enda tegundin talin útdauð á svæðinu í 200 ár. 25.1.2013 06:24
Vonast til að ekki komi til þvingana vegna makrílveiða Evrópumálaráðherra Írlands er vongóð um að lausn finnist á makríldeilunni og segir óvíst að ESB beiti boðuðum viðskiptaþvingunum. Hún segir ákvörðun um að hægja á aðildarviðræðunum vera óvænta en skiljanlega. 25.1.2013 06:00
Boða fleiri tilraunir með kjarnavopn Norður-Kóreumenn boða fleiri tilraunir með kjarnorkusprengingar og flugskeyti, þrátt fyrir alþjóðlegar refsiaðgerðir sem bitna harkalega á bágum efnahag þjóðarinnar. 25.1.2013 06:00
Óttast áhlaup uppreisnarmanna Íbúar í bænum Mopti í Malí hafa gripið til vopna og búið sig undir áhlaup íslamskra uppreisnarmanna. 25.1.2013 06:00
Jarðskjálfti við Keili Jarðskjálfti varð rétt við höfuðborgarsvæðið um tuttugu mínútur fyrir eitt. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar lítur út fyrir að upptök hans hafi verið um fimm kílómetrum austur af Keili. Óyfirfarnar niðurstöður benda til að stærð hans hafi verið á bilinu 2,8 – 3 stig. Skjálftinn fannst í Hafnarfirði, á Laugavegi og í Breiðholti. 25.1.2013 01:54
Vísindin gætu geymt lausnina í einu stærsta hagsmunamáli Íslands Evrópumálaráðherra Íra, sem fara nú með formennsku í ESB, telur að Íslendingar geti fengið sérlausn um sjávarútveg í samningaviðræðum við sambandið. Hún telur lausn makríldeilunnar felast í því að deiluaðilar sammælist um vísindalegar staðreyndir um makrílstofninn og því geti lausnin falist í frekari rannsóknum á stofninum. 24.1.2013 23:16
Kynþokkalist eða klám? Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að það sé verkefni sérfræðinga að skilgreina klám, en skilin milli kláms og kynþokkalistar eru óglögg að mati fræðimanna. Ögmundur telur að með afmörkun á klámhugtaki hegningarlaga sé hann að vernda börn fyrir óæskilegu efni. 24.1.2013 20:56
Destiny's Child spila í hálfleik á Super Bowl Nú er það komið á hreint hvaða listamenn skemmta í hálfleik á Super Bowl sem fer fram á sunnudagskvöldið 3. febrúar. Hálfleiks-skemmtunin er ein sú stærsta í heimi og margir sem vaka fram eftir einungis til að sjá sýninguna. 24.1.2013 22:43
Í mál við Subway - brjálaðir yfir 2,5 cm Tveir menn frá New Jersey í Bandaríkjunum hafa farið í mál við skyndibitakeðjuna Subway en þeir segja að bátarnir sem þeir keyptu á dögunum séu alltof litlir. 24.1.2013 20:50
Bílvelta á Hringbraut Umferðarslys varð á Hringbraut við Njarðargötu á áttunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu lentu tveir bílar saman og lenti annar þeirra á hliðinni. Tveir voru fluttir á slysadeild til skoðunar. Lögreglan rannsakar nú slysið. 24.1.2013 20:01
Fjögurra bíla árekstur í Kömbunum Fjögurra bíla árekstur varð efst í Kömbunum á áttunda tímanum í kvöld en erfið færð er á þessum slóðum, mikið slabb og ofankoma. 24.1.2013 19:36
Makríllinn á ekki að fá að éta frítt í lögsögu Íslands Makríldeila Íslendinga er komin í alþjóðlegt sviðsljós sem helsta dæmi um árekstra sem verða á milli ríkja vegna hlýnunar hafsins. Ræða Steingríms J. Sigfússonar á Norðurslóðaráðstefnu í Noregi vakti mikla athygli og sjálfur telur hann málstað Íslands styrkjast þegar deilan er sett í þetta samhengi. Ráðstefnan stendur yfir alla þessa viku í Tromsö og sækja hana um eitt þúsund manns, þeirra á meðal utanríkisráðherrar Noregs og Svíþjóðar, og sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins. 24.1.2013 19:19
Harður árekstur á Reykjanesbraut Harður árekstur varð á Reykjanesbrautinni við Kaplakrika á fjórða tímanum í dag. Lögregla og sjúkralið var sent á staðinn og drógu kranabílar tvær bifreiðar á brott. Reykjanesbrautinni var lokað um tíma vegna slyssins en engin slys urðu á fólki. 24.1.2013 18:06