Fleiri fréttir

Ólétt á ný eftir að hafa misst tvíbura

Kristín Guðmundsdóttir handboltakona er ólétt á ný eftir að hafa misst tvíbura á síðasta ári. Hún sér eftir því að hafa ekki tekið ljósmyndir af tvíburunum.

Götublað á að bæta úr neyð útigangsmanna

Uppi eru hugmyndir um að stofna nýtt blað sem útigangsfólk fær í hendur til að selja. Útigangsfólkið fengi sjálft að eiga andvirðið til að kaupa sér mat eða annað og þannig myndi blaðið bæta úr neyð meðal útigangsmanna.

Öll met slegin á Keflavíkurflugvelli

Nýliðið sumar sló öll fyrri met í farþegafjölda á Keflavíkurflugvelli þegar um ein milljón farþega lögðu leið sína um völlinn. Ef fram fer sem horfir verður þetta ár stærsta ferðaár flugvallarins með 2,4 milljón farþega yfir árið.

Heiður að stýra milljarðsverkefni

Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur stýrir verkefninu ""Ofurstöð í eldfjallafræði" sem fær tæpan milljarð í styrk frá Evrópusambandinu. Þetta er eitt stærsta rannsóknarverkeffni sem íslenskur vísindamaður hefur stýrt.

Eins árs fangelsi fyrir árásir á sambýliskonu

Karlmaður var í dag dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Hæstarétti fyrir að ráðast á sambýliskonu sína í tvígang. Hann var á sama tíma dæmdur fyrir nokkur umferðarlagabrot.

Þingmenn upp til hópa ósammála Þór Saari

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, telur að þingmenn séu upp til hópa ósammála Þór Saari um að ferðamenn á Íslandi séu orðnir of margir. Að hennar mati er ferðaþjónustan og ferðamenn á landinu mjög mikilvægir fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.

Skiptar skoðanir um sveitarfélagið Heiðmörk

Bæjarráð Kópavogs samþykkti í morgun að senda mann út af örkinni til þess að kanna áhugann á því í nágrannasveitarfélögum að sameinast í eitt risasveitarfélag.

Ekki ánægður með allt í skýrslunni

Alfreð Þorsteinsson, fyrrum stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, er ekki sáttur við allt sem fram kemur í skýrslu úttektarnefndar Orkuveitunnar. Hann segir m.a. sorglega mikið af staðhæfulausu slúðri í skýrslunni og ekki farið nákvæmlega með heimildir.

Enginn hefur tilkynnt lögreglu um horfna ketti

Það hafa engar tilkynningar um horfna ketti á Eyrarbakka borist til lögreglunnar í Árnessýslu samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Fyrr í vikunni kom fram í fréttum að kettir hefðu ítrekað horfið sporlaust á Eyrarbakka en Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, efast um að það sé rétt.

Íslendingur framseldur til Danmerkur - Grunaður um fíkniefnaviðskipti

Íslenskur karlmaður var í dag framseldur til Danmerkur, en hann er grunaður um að hafa móttekið allt að 1,1 kíló af amfetamíni og 20 grömm af kókaíni í Danmörku á tímabilinu 1. október 2008 til 1. desember 2009. Brot mannsins eru talin varða allt að tíu ára fangelsi.

Rússnesk vopn á leið til Sýrlands

Vopn og skotfæri voru um borð í sýrlenskri farþegaflugvél sem gert var að lenda í tyrknesku borginni Ankara í gær. Nær öruggt þykir að vopnin hafi verið á leið til sýrlenska stjórnarhersins.

Með 200 lítra af vodka á heimilinu

Landaframleiðsla í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ var stöðvuð í gær. Lagt var hald á tæplega 400 lítra af landa, enn meira af gambra sem og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en maðurinn var vistaður í fangageymslu í nótt. Í sama húsi, en í óskyldu máli, var einnig lagt hald á rúmlega 200 lítra af sterku áfengi (vodka). Karl um þrítugt var yfirheyrður vegna þessa.

Hefndi sín eftir hrekk á bland.is

Um miðjan júní síðastliðinn var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um þjófnað á Scarlet Macaw páfagauki úr búri í dýragarðinum á Slakka í Laugarási. Síðast var vitað um fuglinn í búri sínu að kvöldi 16. júní en var horfinn að morgni þjóðhátíðardagsins.

Svipti sig lífi eftir hræðilegan hatursglæp

„Hann var rólegur, prúður og hógvær; brosmildur, glaðsinna og jákvæður. Lífið brosti við honum," segir Jens Guðmundsson, rokksérfræðingur og skrautskriftarkennari um færeyska tónlistarmanninn Rasmus Rasmussen. Sá svipti sig lífi fyrir tveimur dögum en hann barðist við afleiðingar hrottalegrar líkamsárásar sem hann varð fyrir árið 2006 í Færeyjum. Ástæðan fyrir árásinni var sú að Rasmus var samkynhneigður, og einn af örfáum í Færeyjum sem fór ekki leynt með það.

Óli Björn vill á þing

Óli Björn Kárason hefur ákveðið að bjóða sig fram í eitt af efstu sætunum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem haldið verður 10. nóvember næstkomandi. Hann hefur verið varaþingmaður flokksins á yfirstandandi kjörtímabili.

Dópsali handtekinn í Garðabæ - sterar, rafbyssa og þýfi á heimilinu

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Garðabæ í gær en á heimili hans fannst kókaín. Maðurinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, viðurkenndi að kókaíni0000000000000000000000000ð hefði verið ætlað til sölu. Á sama stað var einnig lagt hald á rafbyssu, stera og töluvert af þýfi, en hluta þess er þegar búið að tengja við innbrot á höfuðborgarsvæðinu.

Tekinn af lífi í Texas

Yfirvöld í Texas í Bandaríkjunum tóku 44 ára gamlan mann af lífi í nótt. Verjendur héldu því fram að maðurinn væri í raun andlega fatlaður og að hann hefði ekki verið ábyrgur gjörða sinn þegar hann myrti tólf ára gamla stúlku árið 2000.

Lýður og Bjarnfreður neituðu báðir sök

Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Exista, og Bjarnfreður Ólafsson neituðu báðir sök þegar ákæra sérstaks saksóknara gegn þeim var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Baráttan í Norðaustri: Óæskilegt að ræða málið mikið í fjölmiðlum

Þingmenn Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, þeir Ásmundur Einar Daðason og Gunnar Bragi Sveinsson, sendu kjördæmabréf á flokksmenn í gærkvöldi þar sem þeir reyna að skýra það sem þeir kalla "óljósar fréttir“ af framboðsmálum í Norðausturkjördæmi. Þar takast á þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, og Höskuldur Þórhallsson þingmaður, sem hefur ávallt boðið sig fram í kjördæminu.

Alfreð hafði mikinn áhuga á að mæta fyrir nefndina

Alfreð Þorsteinsson hafði mikinn áhuga á að mæta á fund úttektarnefndar um Orkuveitu Reykjavíkur, en hafði ekki tök á því vegna sjúkrahússlegu. Þetta kemur fram í orðsendingu frá úttektarnefndinni til fjölmiðla.

Ekki of margir ferðamenn - þeir koma bara allir á sama tíma

"Það er rétt að ferðaþjónusta hér á landi hefur vaxið mjög hratt, en ég hef ekki heyrt þetta sjónarmið áður frá stjórnmálamanni,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), um ummæli þingmanns Hreyfingarinnar, Þórs Saari, þar sem hann viðraði þá hugmyndi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær að það væri "einsýnt að það verði að bregðast við með fjöldatakmörkunum [ferðamanna] með einhverjum hætti“.

Magnús Orri um brotthvarf Róberts Marshall: Þetta var mjög óvænt

"Við erum búin að vera í 20 manna þingflokki í 3 ár og við höfum þurft að takast á við erfið verkefni. Samheldnin í hópnum hefur verið góð en ég óska honum alls hins besta á nýjum vettvangi - það gæti vel farið svo að við munum vinna saman áfram," segir Magnús Orri Schram, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, um þá ákvörðun Róberts Marshall, þingmanns flokksins, að ganga til liðs við Bjarta framtíð.

Vilja stuðla að aðskilnaði banka

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, mun skipa nefnd til að endurskoða bankastarfsem í landinu, með það markmið að aðskilja viðskiptabanka og fjárfestingabanka, verði þingsályktunartillaga þess efnis samþykkt á Alþingi.

Leitarvél Google skilar óvæntum niðurstöðum um Romney

Það má segja að Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, hafi staðið í ströngu síðustu daga. Ekki nóg með frambjóðandinn þurfi að kljást við Bandaríkjaforseta um atkvæði heldur þarf hann einnig að takast á við leitarvél Google.

Bæjarstjóri segir Heiðmerkurhugmynd áhugaverða

"Þetta er hugmynd sem er borin fram í fullri alvöru. Ég geri ráð fyrir því að við munum, í fullri alvöru, taka þetta fyrir á næsta fundi bæjarráðs," segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Vinstri grænna í bæjarstjórn, um tillögu bæjarfulltrúa Kópavogs, um að sameina Kópavog, Álftanes, Garðabæ og Hafnarfjörð í eitt sveitarfélag.

Gekon kortleggur ferðaþjónustuna

Yfir 40 aðilar í íslensku ferðaþjónustunni undirrituðu þjónustusamninga til eins árs við fyrirtækið Gekon um framkvæmd og verkstjórn á kortlagningu atvinnugreinarinnar.

Milljarður í eldfjallaverkefni íslensks vísindamanns

Einu stærsta rannsóknarverkefni sem íslenskur vísindamaður hefur stjórnað er ýtt úr vör í dag. Um er að ræða ofurstöð í eldfjallafræði og nemur styrkur til verkefnisins um 950 milljónum króna. Nú í hádeginu stendur yfir kynning á verkefninu í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Mo Yan hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels

Kínverski rithöfundurinn Mo Yan hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Mo Yan, sem er 57 ára gamall, á langan feril að baki en hann hefur gefið út fjölda skáldsagna og ritsafna.

"Snýst um að efla stjórnsýsluna og þjóna íbúum betur"

"Ég held að við Kópavogsbúar munum áfram vera stoltir Kópavogsbúar, og ég geri fastlega ráð fyrir því að Hafnfirðingar, Garðbæingar og Álftnesingar verði áfram stoltir af sínum byggðarlögum," segir Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi VG í Kópavogi.

Brutust inn í hesthús í eigu Landsbankans

Óprúttnir aðilar réðust inn í hesthús í eigu Landsbankans, sem staðsett er á Suðurnesjum, og hreinsuðu út úr því á dögunum. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú þjófnað og eignaspjöll. Landsbankinn eignaðist húsið á nauðungaruppboði í vor, en eftirlitsmaður með eignum bankans uppgötvaði þjófnaðinn eftir að honum barst upplýsingar um að farið hefði verið inn í húsið. Tiltækið var kært til lögreglu í lok síðasta mánaðar. Sá eða þeir sem voru að verki í hesthúsinu eiga yfir höfði sér kæru og skaðabótakröfu.

Bæjarráð Kópavogs vill búa til sveitarfélagið Heiðmörk

Bæjarfulltrúar Kópavogs, þeir Ómar Stefánsson, sem situr í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn, og Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vg, lögðu fram í vikunni tillögu þess efnis að leitast ætti eftir því að sameina Hafnarfjörð, Garðabæ, Álftanes og Kópavog í eitt sveitarfélag.

Dömulegir dekurdagar og handþrykktir taupokar á Akureyri

Búið er að skreyta miðbæ Akureyrar og svæðið í kring með bleikum slaufum, en samkvæmt tilkynningu frá bænum þá er tilefnið það að halda á Dömulega dekurdaga í bænum. Dekurdagarnir hefjast í dag og standa fram á sunnudag. Í tilkynningu frá bænum er viðburðurinn útskýrður svona:

Mynd af sprengjukúlunum sem fundust í gær

Sprengjukúlurnar tvær sem fundust á svæði Björgunar í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í gærmorgun var eytt síðdegis en talið er að þær séu úr síðari heimstyrjöldinni. Hér til hliðar má sjá mynd af kúlunum sem fréttastofa fékk senda frá Landhelgisgæslunni í morgun. Kúlurnar eru 75 mm og 40 cm að lengd. Að sögn landhelgisgæslunnar voru kúlurnar fullar af púðri og geta skapað mikla hættu, jafnvel þó þær hafi legið í sjó í áratugi.

Róbert Marshall styður ríkisstjórnina fram að kosningum

Róbert Marshall segir að hann muni styðja ríkisstjórnin fram að kosningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingmanninum þar sem hann boðar úrsögn sína úr Samfylkingunni og inngöngu í flokkinn Björt framtíð.

Strætóbílstjóri verður varaforseti Venesúela

Hugo Chavez forseti Venesúela hefur tilnefnt Nicolas Maduro sem nýjan varaforseta sinn. Mun Maduro því taka við stjórnartaumunum í landinu fari svo að barátta Chavez við krabbamein valdi því að hann verði að láta af embætti forseta.

Rússar krefja Tyrki um skýringar á lendingu farþegaþotu

Rússar hafa krafið Tyrki um nánari skýringar á því af hverju sýrlensk farþegaþota á leið frá Moskvu til Damaskus var neydd til lendingar af tyrkneska flughernum á flugvöll skammt frá Ankara höfuðborg Tyrklands.

Stórútkall hjá slökkviliðinu að Prikinu í nótt

Bílar og mannskapur frá öllum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru send af stað þegar boð kom um eld í veitingastaðnum Prikinu í miðborginni um klukkan fjögur í nótt, en Prikið er í gömlu timburhúsi.

Sjá næstu 50 fréttir