Innlent

Enginn hefur tilkynnt lögreglu um horfna ketti

BBI skrifar
Það hafa engar tilkynningar um horfna ketti á Eyrarbakka borist til lögreglunnar í Árnessýslu samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Fyrr í vikunni kom fram í fréttum að kettir hefðu ítrekað horfið sporlaust á Eyrarbakka en Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, efast um að það sé rétt.

„Þessa umræðu hef ég ekki heyrt um," segir hann. „Ég man eftir sögu eftir H. C. Andersen sem ég held að eigi vel við," bætir hann við og rekur söguna, sem nefnist Það er alveg áreiðanlegt.

Eitt sinn var hæna í hænsnakofa að snyrta sig og kroppa í fiður sitt. Við það losnaði fjöður sem féll á gólfið. Hænan sagði: Þar fór þessi, og hélt áfram að kroppa í sig. Hinar hænurnar í kofanum heyrðu á tal hennar og sögðu síðar frá því að ein hæna í kofanum hefði reitt af sér fjaðrirnar til að ganga í augun á hananum. Og sagan gekk áfram meðal dýranna og nú hafði hænan reitt af sér allar fjaðrirnar til að skera sig úr hópnum. Í hvert sinn sem sagan var endursögð var einhverju bætt við hana og brátt voru hænurnar sem reittu allar fjaðrirnar af sér orðnar fimm og búnar að drepa hver aðra vegna öfundsýki frammi fyrir hananum. Þannig varð ein fjöður að fimm hænum.

Þorgrímur Óli telur sem sagt að dæmisagan eigi vel við um kattahvörfin á Eyrarbakka og efast um að 16-18 dýrir kettir hafi horfið í bænum.


Tengdar fréttir

Kettir hverfa sporlaust á Eyrarbakka

Fjölmargir kettir hafa horfið sporlaust á Eyrarbakka það sem af er ári. Það eru alla jafna skógarkettir eða aðrir dýrir kettir sem hverfa og eftir það sést hvorki tangur né tetur af þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×