Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þegar er unnið út frá nýrri auðlindastefnu Þegar er hafin frumvarpsgerð innan ráðuneyta um hvernig auðlindastefna stjórnvalda verður innleidd. Stefnan liggur nú fyrir en Auðlindastefnunefnd skilar lokaskýrslu sinni í dag. Horfið er frá stofnun Auðlindasjóðs, tímabundið, en í þess stað verður stofnaður Auðlindareikningur sem hefur með höndum að ráðstafa auðlindaarði á sýnilegan hátt. 17.9.2012 05:00
Myntsafn fékk safn Kristjáns Eldjárns að gjöf Börn Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi forseta Íslands og þjóðminjavarðar, afhentu Myntsafni Seðlabankans og Þjóðminjasafnsins minnis- og heiðurspeninga Kristjáns á föstudag. Hátíðleg athöfn var í anddyri Seðlabankans við tilefnið. 17.9.2012 04:00
Leið Íslands getur verið fyrirmynd annarra þjóða Villy Søvndal, utanríkisráðherra Danmerkur, sótti Ísland heim í lok síðustu viku. Í samtali við Fréttablaðið segir hann upprisu Íslands eftir hrun hafa komið ánægjulega á óvart og önnur lönd líti til þess hvernig til hafi tekist. Hann segist aukinheldur vonast til þess að pólitísk lausn finnist á makríldeilunni, þar sem Danir eru í sérstakri stöðu sem ESB-land og einnig í ríkjasambandi við Færeyjar. 17.9.2012 03:00
Foreldrar berjast við kerfið fyrir talþjálfun Það er óskiljanlegt að ekki sé meiri skilningur hjá stjórnvöldum vegna talþjálfunar,? segir Sigurður Jónas Eggertsson, faðir barns sem er með þroskahömlun og þarf á aðstoð talmeinafræðings að halda. 17.9.2012 02:00
Brúður með þýðingarmikil augu Kvennaathvarfið stendur nú fyrir tölusölu í fjáröflunarskyni til þess að unnt sé að flytja starfsemi athvarfsins í stærra og hentugra húsnæði. Þörfin er brýn enda eru aðeins fjögur svefnherbergi í núverandi húsnæði athvarfsins þar sem rúmlega hundrað konur hafa dvalið ár hvert undanfarin ár, þar af um þriðjungur með eitt eða fleiri börn með sér. 17.9.2012 01:00
Hundurinn slapp ómeiddur - íbúar þurfa að gista annarsstaðar í nótt Um fimmtán íbúar í húsinu í Ofanleiti, þar sem sprenging varð í morgun, leituðu til Rauða Krossins, sem er með höfuðstöðvar skammt frá húsinu. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Rauða Krossins, Teiti Þorkelssyni, fengu íbúarnir að sækja helstu nauðsynjar í dag en þeir þurfa að gista annarsstaðar í nótt. 16.9.2012 21:00
Óvissa með sumarbúðir fyrir börn með athyglisbrest Óvíst er hvort að hægt verið að bjóða áfram upp á sérstakar sumarbúðir í Vatnaskógi fyrir drengi með athyglisbrest eftir að ríkið ákvað að fella niður fjárframlög til sumarbúðanna. Þetta segir framkvæmdastjóri Vatnaskógar. 16.9.2012 20:00
Bjarni Ben: Fyrsta verkefni að stöðva aðildarviðræðurnar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ef Sjálfstæðisflokkurinn komist í ríkisstjórn muni hann draga aðildarumsókn að Evrópusambandinu til baka og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi viðræðum áfram. 16.9.2012 18:45
Manninum haldið sofandi eftir sprengingu Maðurinn, sem var staddur í íbúðinni í Ofanleiti í morgun þegar öflug sprenging varð, er haldið sofandi í öndunarvél. Ástand hans er alvarlegt en maðurinn er í lífshættu samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni. Hann er með mikil brunasár en ekki var hægt að fá nánari upplýsingar um ástand mannsins. Maðurinn gat gengið skömmu eftir sprenginguna en sjónarvottur sá manninn fyrir utan logandi íbúðina þegar sjúkraflutningamenn komu að og fluttu manninn á spítala. 16.9.2012 16:51
Kærðu tengdasoninn fyrir að nauðga önd Tyrkneska dagblaðið Habertürk greindi frá því um helgina að karlmaður hefði verið handtekinn í Marmara-héraðinu grunaður um að hafa nauðgað önd. Það voru tengdaforeldrar mannsins sem kærðu hann til lögreglu eftir að þau fundu blóð og fjaðrir í rúmi mannsins. Maðurinn gisti hjá tengdaforeldrunum yfir nóttina. 16.9.2012 23:00
Ráðherra verðlaunar flokksbróður og blaðamann Morgunblaðsins Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Rúnari Pálmasyni, blaðamanni á Morgunblaðinu, Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hún Hjörleifi Guttormssyni, fyrrverandi ráðherra og félaga í Vg, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefndir til Fjölmiðlaverðlaunanna voru: 16.9.2012 17:57
Slasaður smali fluttur á spítala Karlmaður á fertugsaldri var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í gær en hann hafði fótbrotnað við smalamennsku á Fellsströnd í Dalasýslu samkvæmt fréttavefnum Skessuhorni. 16.9.2012 17:01
Kandíska ferðafólkið skrifar þakkarbréf til bjargvættanna Kanadíska ferðafólkið sem var innlyksa í Laugafelli í sex sólarhringa hefur sent þeim Páli Rúnari Traustasyni og Einari Hjartarsyni þakkarbréf sem birtist á vef Vikudags í dag. Fólkið segir hárrétt hafi verið að bíða í skálanum eftir hjálp og þeim er mjög létt, enda veðurteppt í tæpa viku við erfiðar aðstæður. 16.9.2012 16:00
Kjötsúpa á hverjum bæ í Biskupstungum í dag Réttað var í dag í Tungnaréttum í Biskupstungum í blíðaskaparveðri. Um 6.000 fjár voru í réttunum og stemmingin gríðarlega góð á meðal þeirra þúsunda gesta sem mættu í réttirnar. 16.9.2012 15:19
John Major gagnrýnir myndbirtingu Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, John Major, gagnrýnir franska blaðið Closer sem og írska tímaritið Irish Daily harðlega fyrir að birta myndir af hertogaynjunni Kate Middelton berbrjósta. 16.9.2012 15:06
Óheppnir lottó-spilarar töpuðu hálfum milljarði Óheppnir Lottó-spilarar glötuðu alls tæplega hálfum milljarði króna í New York á síðasta ári en það er heildarupphæð vinningar sem enginn sótti árið 2011. 16.9.2012 14:22
Mesta sprenging sem sést hefur í langan tíma Það er mjög erfitt að átta sig á því hvar í íbúðinni sprengingin varð í Ofanleiti í morgun, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. "Það er eiginlega ekki hægt að átta sig á því fyrr en maður er búinn að rannsaka vettvang. Það er mjög öflug sprenging sem á sér stað þarna,“ segir Jón Viðar. 16.9.2012 13:31
Illugi vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík áfram Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti þingmaður flokksins í Reykjavík, hyggst bjóða sig fram til forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík í prófkjöri flokksins fyrir næstu þingkosningar. 16.9.2012 12:53
Hinn slasaði gekk sjálfur út Sjónarvottur sem Vísir ræddi við segir að hann hafi komið fljótlega að húsinu í Ofanleiti eftir að sprengingin varð í morgun. Sprengingin var svo öflug að hann taldi í fyrstu að flugvél hefði hrapað í íbúðarhverfið. 16.9.2012 12:35
Hélt að sprengingin væri jarðskjálfti Einn maður er alvarlega slasaður eftir að sprenging varð í búð í fjölbýlishúsi í Ofanleitinu um klukkan ellefu í morgun. Nágranni sem fréttastofa ræddi við, og býr um 40 metrum frá í fjölbýlishúsi, segir sprenginguna hafa verið svo öfluga að hann taldi í fyrstu að jarðskjálfta hefði verið að ræða. 16.9.2012 11:36
Sprenging í Ofanleiti - einn mikið slasaður Sprenging varð í Ofanleiti í Reykjavík um klukkan ellefu. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni logar eldur og slys urðu á fólki. Einn hefur verið fluttur á slysadeild. 16.9.2012 11:19
Þátttakendum Ólympíuleika fatlaðra boðið á Bessastaði Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson heiðrar í dag íslensku þátttakendurna á Ólympíuleikum fatlaðra í Lundúnum með sérstakri móttöku á Bessastöðum. 16.9.2012 10:18
Hátt í 40 skjálftar frá miðnætti Hátt í fjörutíu jarðskjálftar hafa riðið yfir á Reykjaneshrygg frá miðnætti í nótt. Flestir voru þeir um og yfir tvö stig en þó eru tveir sem ná yfir þrjú stig, sá stærri mælist 3, 6 stig að því er fram kemur á heimasíðu Veðurstofunnar. 16.9.2012 10:14
Stunginn í handlegginn með bitvopni Karlmaður var stunginn í handlegginni í Breiðholti í gærkvöldi með bitvopni. Þrír voru handteknir vegna málsins en lögreglan rannsakar það. Mikil ölvun var í miðbænum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og erill eftir því. 16.9.2012 10:11
Svaf af sér sáran barnsgrát Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að heimahúsi um fjögurleytið í nótt þar sem mikill barnsgrátur hafði borist þaðan lungann úr nóttinni. 16.9.2012 10:10
Ferðamenn fastir í sex daga á Norðurlandi Félagar í Ferðafélagi Akureyrar fóru í gær í eftirlitsferð í skála félagsins í Laugafelli í gær. Þeim til talsverðrar undrunar sáu þeir bíl fyrir utan skálann þegar þeir nálguðust húsnæðið. Samkvæmt fréttavefnum Vikudegi fóru þeir inni í skálann en þar fundu þeir kanadískt par sem hafði leitað þar skjóls fyrir óveðrinu í byrjun vikunnar. Parið hafðist því við í skálanum í nærri sex sólarhringa. 16.9.2012 09:22
Ætluðu að safna fé fyrir klíkuforingja Hætt hefur verið við fjársöfnun fyrir leiðtoga hinnar alræmdu New York-klíku, Bloods, eftir að það fréttist að gengið ætlaði að safna fé fyrir leiðtogann. Foringinn, Ronald Herron, er almennt álitinn leiðtogi klíkunnar sem hefur fjölmörg líf á samviskunni í gegnum árin. Herron sætir nú ákærum fyrir morð, skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnasölu. 16.9.2012 06:00
Matthías Villhjálmsson enn einu sinni á skotskónum Íslendingurinn Matthías Vilhjálmsson virðist ekki geta hætt að skora fyrir Start í norsku 1. deildinni í knattspyrnu en hann gerði enn eitt markið fyrir félagið í dag þegar Start bar sigur úr býtum gegn HamKam 2-1. 16.9.2012 15:38
Fíkniefni og fjármuni fundust á heimili Outlaws-konu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á nokkra tugi gramma af því sem talið er vera amfetamín við húsleit í umdæminu á föstudagskvöldinu. Á sama stað var einnig að finna töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. 16.9.2012 10:43
Fjórir hermenn drepnir í Afganistan Fjórir hermenn úr fjölþjóðaliði NATÓ í Afganistan voru drepnir í árás á varðstöð í Zabul héraði. Afganskir lögreglumenn sem störfuðu með hermönnunum í varðstöðinni eru grunaðir um verknaðinn. 16.9.2012 10:22
Skemmdi bíl í Hveragerði Karlmaður um tvítugt var handtekinn í Hveragerði í nótt þar sem hann var að skemma bíl fyrir utan íbúðarhús. Lögreglan var kölluð til en maðurinn var enn á vettvangi þegar lögregluþjónar mættu á staðinn. Hann var handtekinn og færður í fangageymslur lögreglunnar þar sem hann sefur úr sér. 16.9.2012 10:15
Írar og Ítalir geta líklega skoðað brjóst hertogaynjunnar á næstu dögum Írska dagblaðið Daily Star hefur ákveðið að birta myndir af hertogaynjunni Katrínar Middelton þar sem hún sést berbrjósta í fríi í Frakklandi. Áður birti blaðið Closer myndirnar en konungsfjölskyldan er æf vegna birtingarinnar og hefur meðal annars kært blaðið vegna málsins. 16.9.2012 00:00
Handritshöfundur „sakleysi múslima“ kom vopnaður til dyra Kvikmyndagerðarmaðurinn Nakoula Basseley Nakoula, mætti til yfirheyrslu hjá lögreglunni í heimabæ sínum Cerritos í Kaliforníu fyrr í dag. 15.9.2012 22:00
Með ólíkindum hvað íslenska kindin þolir Kindur geta lifað grafnar í fönn jafnvel svo vikum skipti án matar. Þetta segir ráðunautur hjá Bændasamtökunum enda sé íslenska sauðkindin með harðgerðustu kindum í heimi. 15.9.2012 21:00
Einum umbunað fyrir það sem hinir hafa gert Starfsfólk Landspítalans finnst að með launahækkun forstjórans sé verið að umbuna einum fyrir það sem allir hinir hafa gert. Þetta segir hjúkrunarfræðingur á spítalanum en töluverð óánægja kraumar meðal starfsmanna vegna launahækkunarinnar. 15.9.2012 20:00
Öðrum forstjórum hafnað Þeim forstöðumönnum ríkisstofnanna sem reynt hafa að sækja sér sambærilegar launahækkanir og forstjóri Landspítalans fékk nýlega hefur verið hafnað. Þetta segir formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnanna og að ófaglegt sé hvernig staðið var að hækkuninni. 15.9.2012 18:30
Lögreglan í Vestmannaeyjum leitar vitna vegna íkveikju Allt tiltækt slökkvilið var kallað út í Vestmannaeyjum rétt fyrir klukkan sjö í morgun þegar íbúð eyðilagðist í eldi. Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir vitnum sem geta gefið upplýsingar um málið en talið er að brennuvargur hafi kveikt í húsinu um klukkan sex í morgun. 15.9.2012 16:37
Hjálpræðisherinn flytur upp í Mjódd og leigir stúdentum í miðborginni Húsnæði Hjálpræðishersins að Kirkjustræti í miðborg Reykjavíkur breytist í gistiheimili fyrir stúdenta yfir vetratímann og verða herbergi leigð út til þeirra. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptablaðsins, vb.is í dag. 15.9.2012 15:43
Sá aðeins einn skotmann Franska lögreglan er búin að taka skýrslu af sjö ára gamalli stúlku sem komst lífs af ásamt fjögurra ára gamalli systur sinni þegar fjölskylda þeirra var myrt með köldu blóði í frönsku ölpunum fyrir um einni og hálfri viku síðan. 15.9.2012 15:15
UVG fagna nýrri mosku í Reykjavík Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu var haldinn í gærkvöldi en þar var því sérstaklega fagnað í ályktun á fundinum að Félag múslima á Íslandi (FMÍ) gæti loks reist mosku í Reykjavík. Félaginu var óskað til hamingju með áfangann á sama tíma og fundarmenn vonist til þess að "FMÍ gangi sem best í komandi framtíð og muni í tíð og tíma fella þá ógeðfelldu múra fordóma og staðalímynda sem umræðan um byggingu mosku í Reykjavík hefur sýnt að eru því miður enn ríkjandi í íslensku samfélagi“. 15.9.2012 15:23
Gekk berserksgang inni í sjúkrabíl Ölvuð kona var handtekinn um eitt leytið í nótt þegar hún ruddist inn í sjúkrabíl á sveitabæ í umdæmi lögreglunnar á Selfossi og gekk þar berserksgang. Sjúkrabíllinn var að sækja slasaða stúlku sem hafði ökklabrotnað. 15.9.2012 14:46
Tugir þúsunda mótmæltu í Moskvu í dag Tugir þúsunda kröfðust þess í Moskvu í dag að Vladimat Pútin, forsætisráðherra Rússlands, segði af sér. Þetta eru fyrstu stóru mótmælin í Moskvu í þrjá mánuði. Um sjö þúsund lögregluþjónar fylgdust með mótmælunum sem samanstóðu af afar ólíkum hópum. Þannig tók samkynhneigðir aðgerðarsinnar þátt í mótmælunum sem og þjóðernissinnar auk fjölda kennara og stúdenta. 15.9.2012 14:45
Mikið tjón á Norðausturlandi - leit heldur áfram í dag Almannarvarnarástandi var aflétt á Norðausturlandi seint í gærkvöldi. Leit stendur þó enn yfir að fé. 15.9.2012 14:15
500 lögreglumenn gerðu vopn námuverkamanna upptæk Um fimm hundruð lögreglumenn tóku þátt í umfangsmiklum húsleitum í húsakynnum námuverkamanna í Marikana í Suður-Afríku í morgun. Tólf voru handteknir og gríðarlegt magn vopna, þó aðallega sveðjur og önnur eggvopn, voru haldlögð. Fimm af þeim tólf sem voru handteknir reyndust vera með fíkniefni á sér samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. 15.9.2012 13:38
Guðni ósáttur við innflutning á nýsjálensku lambakjöti "Gróðrarhyggja og fíflaskapur" segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra um þá staðreynd að nú hefur fengist leyfi til að flytja inn nýsjálenskt lamakjöt til landsins. Hann segir Steingrím J. Sigfússon, bóndasoninn frá Gunnarsstöðum bera ábyrgð á þessu. 15.9.2012 13:00