Ráðherra verðlaunar flokksbróður og blaðamann Morgunblaðsins 16. september 2012 17:57 Hjörleifur Guttormsson tekur við viðurkenningu.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Rúnari Pálmasyni, blaðamanni á Morgunblaðinu, Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hún Hjörleifi Guttormssyni, fyrrverandi ráðherra og félaga í Vg, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefndir til Fjölmiðlaverðlaunanna voru: Tímaritið Fuglar fyrir umfjöllun um fugla í náttúru Íslands. Herdís Þorvaldsdóttir fyrir heimildamynd sína „Fjallkonan hrópar á vægð" en hún fjallar um landeyðingu og afleiðingar ofbeitar sauðfjár hér á landi. Rúnar Pálmason, blaðamaður á Morgunblaðinu, fyrir ítarlega umfjöllun um akstur utan vega. Í rökstuðningi dómnefndar segir: Rúnar Pálmason blaðamaður á Morgunblaðinu hlýtur Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir umfjöllun sína um akstur utan vega og umgengni við náttúru Íslands. Með skrifum sínum hefur hann vakið athygli á skemmdum sem unnar hafa verið með utanvegaakstri víða um landið, bæði á hálendi Íslands og á láglendi. Má þar nefna ítrekaða umfjöllun um utanvegaakstur í Reykjanesfólkvangi og á hálendinu norðan Vatnajökuls; hann hefur fjallað um skemmdir sem unnar hafa verið með torfæruakstri á fjöllum og útivistarsvæðum í nágrenni Reykjavíkur, á láglendi sunnanlands og víðar. Rúnar hefur verið einkar fylginn sér í umfjöllun sinni en skrif hans má rekja a.m.k. aftur til ársins 2004. Með reglubundnum hætti hefur hann krafið stjórnvöld og ólíka hagsmunaaðila svara, gengið á eftir svörum varðandi gerð hálendiskorts og viðrað ólík sjónarmið um útgáfu einkaaðila á kortum og kortagrunnum. Umfjöllun hans einkennist af hlutleysi og jafnvægi þar sem ólík sjónarmið koma fram. Hann byggir skrif sín m.a. á viðtölum við landeigendur, jeppafólk, veiðimenn, ferðaþjónustuaðila og fulltrúa umhverfis- og ferðafélaga og leitar jafnan eftir viðbrögðum sveitarstjórnarfólks og fulltrúar stjórnvalda. Myndefnið með skrifum Rúnars kemur víða að og er sláandi vitnisburður um hvernig akstur vélknúinna ökutækja og óvarleg umgengni getur spillt náttúru landsins. Hjörleifur Guttormsson hefur um áratuga skeið barist fyrir verndun náttúru Íslands. Hann átti frumkvæði að stofnun Náttúruverndarsamtaka Austurlands og var þar formaður um níu ára skeið. Hjörleifur hefur átt beina aðkomu að stofnun og þróun margra helstu þjóðgarða landsins og var m.a. hvatamaður að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Hann beitti sér með ýmsum hætti í þágu náttúruverndar sem þingmaður og m.a. á rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða rætur í þingsályktunartillögu hans. Hjörleifur hefur einnig látið til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum á alþjóðavettvangi og verið fulltrúi á helstu ráðstefnum um umhverfismál sem efnt hefur verið til á alþjóðavísu á undanförnum 40 árum. Loks er Hjörleifur Guttormsson höfundur fjölmargra bóka og greina um umhverfismál og íslenska náttúru. M.a. skrifaði hann sex árbækur Ferðafélags Íslands þar sem fjallað er um austanvert landið, bókina „Hallormsstaður í Skógum" sem kom út árið 2005 og „Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð" sem kom út í fyrra.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira