Handritshöfundur „sakleysi múslima“ kom vopnaður til dyra 15. september 2012 22:00
Kvikmyndagerðarmaðurinn Nakoula Basseley Nakoula, mætti til yfirheyrslu hjá lögreglunni í heimabæ sínum Cerritos í Kaliforníu fyrr í dag. Nakoula gerði kvikmyndina Innoncence of muslims, eða sakleysi múslima, en myndin hefur meðal annars orðið til þess að ráðist hefur verið á sendiráðið í Líbíu, þar sem sendiherra Bandaríkjanna lét lífið ásamt fleirum, og á herstöð í Afganistan. Al Kaída og Talibanar hafa hvatt til frekari árása. Samkvæmt fréttavef AP gaf Nakoula sig fram á lögreglustöðina í morgun en hann var klæddur í síðan frakka, með húfu og sólgleraugu svo hann þekktist ekki. Hann snéri ekki aftur á heimili sitt þar sem meira eða minna allir fjölmiðlar Bandaríkjanna bíða hans. Nakoula er á fimm ára skilorði eftir að hann varð uppvís af fjársvikum fyrir tveimur árum síðan. Meðal takmarkana skilorðsins er að hann noti ekki tölvur eða veraldarvefinn. Rjúfi hann skilorð þarf hann að afplána fimm ára refsingu. Kvikmyndin, sem er vægast sagt gerð af vanefnum, virðist hafa verið tekin upp í húsnæði í eigu kristilegra samtaka. Handritshöfundur hennar, Steven Klein, virðist vera í töluverðu uppnámi vegna viðtaka myndarinnar, en AP greinir frá því að blaðamaður á vegum blaðsins Press-Enterprise hafi bankað upp á hjá honum í því skyni að taka viðtal við hann. Klein kom til dyranna aðeins klæddur í hvítar nærbuxur með blekblettum á og hann hélt á skammbyssu í hendinni. Blaðamaður lýsir samskiptum þeirra þannig að Klein hafi verið pirraður, sveiflað byssunni, og haldið því fram að hann ætlaði að verja málfrelsið fram í rauðan dauðann. Hann játaði þó fyrir blaðamanninum að hann væri orðinn verulega þreyttur.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira