Innlent

Sprenging í Ofanleiti - einn mikið slasaður

Sprenging varð í Ofanleiti í Reykjavík um klukkan ellefu. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni logar eldur og slys urðu á fólki. Einn hefur verið fluttur á slysadeild með alvarleg brunasár. Reykakafarar eru nú að störfum inni í húsinu og leita að fólki.

Um er að ræða íbúðarhús. Sprengingin var mjög kröftug og fannst um allt hverfið samkvæmt heimildum fréttastofu.

Nánar verður fjallað um málið þegar upplýsingar berast.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×