Fleiri fréttir

Bauð gestum 250 þúsund fyrir að ganga í skrokk á öryggisverði

Karlmaður var handtekinn í Kringlunni um klukkan eitt í dag. Öryggisvörður hafði afskipti af manninum, sem er um þrítugt, vegna gruns um þjófnað. Maðurinn brást hin versti við og er meðal annars grunaður um að hafa slegið öryggisvörðinn í bringuna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Gestir fá að smakka sinnepsís og BBQ-ís

Hinn svokallaði Ísdagur Kjöríss fer fram á laugardaginn í Hveragerði. Ísdagurinn er árviss viðburður en þá gefst gestum kostur á að hesthúsa eins mikinn ís og þeir geta. Í fyrra hurfu um tvö og hálft tonn af ís ofan í 20 þúsund gesti.

Tveir handteknir vegna sprengjuhótunarinnar

Sprengjuleit er lokið í flugvélinni sem lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli í morgun. Engin sprengja fannst í vélinni. Vél mun koma og sækja farþegana seinna í dag og er áætlað að þeir fari í loftið um hálfsjö. Farþegarnir hafa verið í Leifsstöð, en þeir hafa verið í góðu yfirlæti í flugskýli.

Fatimusjóðurinn lagði fram fimm milljónir í styrk til Sýrlendinga

Fatimusjóðurinn hefur lagt fram fimm milljónir króna til aðstoðar fórnarlömbum átakanna í Sýrlandi. Rauði krossinn á Íslandi veitti styrknum viðtöku í dag og munu Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn í Sýrlandi nýta féð til að aðstoða óbreytta borgara sem orðið hafa illa úti vegna átakanna þar í landi.

Segja sænsku leiðina góða - lögreglan sökuð um lélega eftirfylgni

Femínistafélag Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumræðu um sænsku leiðina svokölluðu og hefur verið til umfjöllunar á fréttastofu Stöðvar 2 síðastliðna daga. Í yfirlýsingunni, sem birtist á vefnum Smugan.is, kemur fram að lögin séu ekki slæm, heldur heillaskref, vandamálið sé hinsvegar lögreglan sem framfylgir ekki lögunum.

Vill fleiri sannleiksnefndir um dulræn fyrirbæri

"Þetta er mjög gott fordæmi og þyrfti að gerast oftar eftir því sem svona mál koma upp,“ segir Magnús Skarphéðinsson, skólastjóri og sérfræðingur í dulrænum fyrirbærum en hann situr í fyrstu sannleiksnefnd sem hefur verið sett saman um dulrænt fyrirbæri hér á landi, að því best er vitað.

Assange veitt hæli í Ekvador

Julian Assange, stofnanda upplýsingaveitunnar WikiLeaks, hefur verið veitt hæli í Ekvador. Þetta tilkynnti Ricardo Patino, utanríkisráðherra Ekvador fyrir stuttu.

Hreyfihömluð kona fær ekki að keppa um tíma í Reykjavíkurmaraþoni

Arna Sigríður Albertsdóttir, ísfirsk kona sem lenti í skíðaslysi árið 2006 og hefur verið bundin við hjólastól síðan, fær ekki að keppa um tíma á Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer um helgina. Hún hefur æft markvisst fyrir hlaupið og ætlaði sér heilt maraþon. Þegar á hólmin er komið fær hún ekki að keppa um tíma og er stillt upp aftast í rásröð með þeim fyrirmælum að hún megi ekki taka fram úr neinum.

Stefnir í breytingar á Landeyjahöfn

Breytingar eru fyrirhugaðar á Landeyjahöfn. Til stendur að gera um 20 metra langan viðlegukant innst í norðurenda hafnarinnar. Kanturinn er hugsaður fyrir dýpkunarskip. Þá er einnig gert ráð fyrir steyptum rampi norðan við ferjubryggju hafnarinnar. Hann er hugsaður svo hægt sé að aka smærri bátum beint út í höfnina.

Annþór og Börkur ekki viðstaddir fyrirtökuna

Þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson verða ekki viðstaddir fyrirtöku sem fer fram núna klukkan ellefu í Heraðsdómi Reykjaness í líkamsárásarmáli sem höfðað hefur veirð gegn þeim. Þeir eru ákærðir fyrir ítrekuð líkamsárásarbrot á menn víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem þeir réðust með bareflum á fólk. Alls eru tíu manns ákærðir fyrir aðild að árásunum.

Íslandsdvöl Russells Crowe senn á enda

Russell Crowe er ánægður með Íslandsdvöl sína enn sem komið er, en hún er senn á enda eins og hann segir sjálfur frá á Twitter síðu sinni "Vangaveltur mínar um Ísland; þetta er mjög sérstakur staður, dulrænn, krefjandi, meðvitaður, heiðarlegur og ánægjulegur #Ísland rokkar," segir hann á Twitter.

Vill lokka listamenn til Ísafjarðar

Forsvarsmaður Listakaupstaðar á Ísafirði segir að um þessar mundir sé laus aðstaða í Listakaupstað sem er vinnustofa á Ísafirði þar sem listamenn geta fengið aðstöðu og rými til að skapa list. Hún hvetur fólk til að sækja um og segir að fljótlega verði farið að auglýsa eftir listamönnum.

Þýskir ferðamenn í vandræðum

Fimm þýskir ferðamenn komust í hann krappann seint í gærkvöldi þegar tveir stórir fjallatrukkar þeirra festust í sandbleytu út í miðri þverárkvísl, sem rennur úr Hofsjökli, og kölluðu eftir hjálp.

Of mikið kadmíum í áburði Bauhaus

Við reglubundið eftirlit Matvælastofnunar með áburði kom í ljós að áburðartegundin Plænekalk + gödning, sem Bauhaus Ísland ehf. flytur inn, reyndist innihalda þrefalt meira kadmíum (Cd) en leyfilegt er hérlendis.

Ákvörðun ráðamanna í Ekvador væntanleg

Yfirvöld í Bretlandi munu koma í veg fyrir að Julian Assange, stofnandi upplýsingaveitunnar WikiLeaks, fari úr landi þó svo að stjórnvöld í Ekvador veiti honum hæli. Ráðamenn í Ekvador munu tilkynna um ákvörðun sína í dag.

Skotárás á herflugvelli í Pakistan

Íslamskir vígamenn réðust á einn stærsta herflugvöll Pakistans í nótt. Tveir hermenn og sex ódæðismenn létust í átökunum en skotbardaginn stóð yfir í nokkrar klukkustundir.

Leitað í farþegaflugvél í Rússlandi vegna sprengjuhótunar

Leitað var í flugvél í Rússlandi í morgun vegna sprengjuhótunarinnar sem barst Areoflot flugvélinni, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun, vegna hótunar um að fimm ferðatöskur innihéldu sprengiefni og að þær myndu sprynga við lendingu í Moskvu.

Viðbragðsaðilar af höfuðborgarsvæðinu afturkallaðir

Viðbragðsaðilar sem kallaðir voru út frá höfuðborgarsvæðinu vegna vélarinnar sem lenti á Keflavíkurflugvelli hafa verið afturkallaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Tugir fórust í námuslysi

Að minnsta kosti sextíu verkamenn fórust þegar gullnáma í Kongó hrundi. Mennirnir voru á rúmlega hundrað metra dýpi. Slysið átti sér stað í suðurhluta Kongó.

Fönix - Fæðingardeild stjarnanna

Vísindamenn við Tækniháskólann í Massachusetts hafa uppgötvað risavaxna þyrpingu vetrarbrauta þar sem hundruð nýrra stjarna vakna til lífsins á ári hverju.

Stefnir í eitt albesta berjaárið

„Þetta berjaár er eitt af þessum allra bestu sýnist mér,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og áhugamaður um ber.

Bandaríkjamenn óðir í Kalashnikov

Bandaríkjamenn eru nú á meðal stærstu viðskiptavina rússneskra vopnaframleiðenda. Izhevsk vopnaverksmiðjan í Rússland hefur séð betri tíma.

Vilja opna safn um Gísla í vor

Unnið er að því að opna safn um einbúann Gísla Gíslason á bænum þar sem hann bjó, það er að segja á Uppsölum í Arnarfirði.

Skip Robert Falcon Scotts fundið við Grænland

Hópur fræðimanna rannsakar nú skipsflak sem fannst undan suðvesturströnd Grænlands fyrir nokkru. Grunur leikur á að flakið sé hið fornfræga SS Terra Nova sem flutti breska landkönnuðinn Robert Scott að Suðurskautinu fyrir rúmri öld síðan.

Endalok Ragnars seld til Ítalíu

Ítalskur safnari hefur keypt verkið Endalokin eftir Ragnar Kjartansson myndlistarmann. Verkið samanstendur af 144 málverkum sem Ragnar málaði í samnefndum gjörningi á Feneyjatvíæringnum 2009.

Tekinn á bifhjóli - margbraut lögin

Ökumaður bifhjóls reyndist marg brotlegur við ýmsar lagagreinar og reglugerðir þegar hann var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu um miðnætti.

Risapottur í bandarísku happdrætti

Einn var með allar tölur réttar í bandaríska Powerball happdrættinu í gær. Það var til mikils að vinna enda var potturinn einn sá stærsti í sögu Norður-Ameríku.

Vélin lent án vandkvæða eftir að hafa fengið sprengjuhótun

Airbus farþegaþota frá rússneska flugfélaginu Aeroflot með 253 um borð, lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli um klukkan hálf sjö í morgun, eftir að tilkynnt var um sprengju í vélinni og flugstjórinn óskaði eftir tafarlausu lendingarleyfi á Keflavíkurflugvelli.

Gátskildir á miðjum þjóðvegi

Tveir gátskildir standa á miðjum vegi við innganginn í Þjóðgarðinn á Þingvöllum, þrátt fyrir að fulltrúi Vegagerðarinnar hafi lýst því yfir í síðasta mánuði að aðskotahlutir mættu ekki vera á óupplýstum vegi.

Hóta að ráðast inn í sendiráð Ekvador

Yfirvöld í Bretlandi hafa hótað að brjótast inn í sendiráðsbyggingu Ekvador í Lundúnum. Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, hefur búið í sendiráðinu frá því að hann bað um hæli í Ekvador fyrir nokkru.

Dökkt súkkulaði gott við háþrýstingi

Niðurstöður nýlegrar rannsóknar gefa til kynna að dökkt súkkulaði geti verið mikil heilsubót fyrir þá sem þjást af háþrýstingi. Það var hópur ástralska vísindamanna sem stóð fyrir rannsókninni.

Þúsundir vilja fá atvinnuleyfi

Hundruð þúsunda ólöglegra innflytjenda sækja um dvalarleyfi í Bandaríkjunum eftir að reglur voru rýmkaðar nú í vikunni.

Ábyrgðin sögð liggja hjá Sýrlandsstjórn

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna sakar Sýrlandsstjórn um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Uppreisnarmenn hafa einnig gerst sekir um morð, pyntingar og kynferðisofbeldi, en þó í minna mæli en stjórnarliðar.

Húsnæðisskortur en samt mörg tóm hús

Eftir margra ára þrengingar er nú uppgangur á sunnanverðum Vestfjörðum. Það vantar húsnæði fyrir fjölskyldur á Bíldudal en á sama tíma standa sumarhús auð langtímum saman. Íbúar segja heldur ekki hlaupið að því að byggja.

Brjóstkassi úr ull sigurvegari

Brjóstkassinn á bænum Sléttu í Eyjafirði bar sigur úr býtum í samkeppni um best prýdda póstkassann í Eyjafjarðarsveit. Það var Margrét Benediktsdóttir sem prjónaði brjóstin úr ull og skreytti póstkassann.

Mikil innspýting í brasilíska hagkerfið

Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, kynnti í gær áform um umfangsmiklar efnahagslegar örvunaraðgerðir í landinu. Hyggst ríkisstjórn hennar verja jafngildi tæplega 8.000 milljarða íslenskra króna í fjárfestingar í innviðum landsins, svo sem í gatna- og járnbrautarkerfi.

Vaxandi harka í deilu um eyjar

Enn á ný deila Japanar og Suður-Kóreumenn hart um yfirráð nokkurra lítilla eyja í hafinu á milli þeirra. Spenna milli ríkjanna hefur vaxið eftir að Lee Myung-bak, forsætisráðherra Suður-Kóreu, sigldi í síðustu viku til eyjanna, sem nefnast Takeshima á japönsku en Dokdo á kóresku.

Fús til að veita Grikkjum frest

Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, segist alveg til í að veita Grikkjum lengri frest til að ná fram ströngum sparnaði í ríkisútgjöldum. Frá þessu er skýrt í þýskum fjölmiðlum á Netinu.

Óáhugaverður völlur í bænum

Innbæjarsamtökin á Akureyri merktu leikvöllinn við Hafnarstræti sem „óáhugaverðan stað“ til að skopast að bæjaryfirvöldum. Samtökin notuðu skilti, sem venjulega auðkennir áhugaverða staði, og teiknuðu á það rauðan kross. Akureyri vikublað greinir frá málinu á vef sínum.

Ströng lög um tóbak staðfest

Hæstiréttur Ástralíu hefur staðfest að ströngustu lög heims um tóbakssölu standist stjórnarskrá landsins.

Lögreglan leitar að öðrum bíl

Leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Giskegjerde Schjetne hefur enn engan árangur borið, en í gær voru tíu dagar síðan hún hvarf. Leitin að stúlkunni heldur þó áfram.

Sjá næstu 50 fréttir