Erlent

Hóta að ráðast inn í sendiráð Ekvador

Yfirvöld í Bretlandi hafa hótað að brjótast inn í sendiráðsbyggingu Ekvador í Lundúnum. Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, hefur búið í sendiráðinu frá því að hann bað um hæli í Ekvador fyrir nokkru.

Breskir lögreglumenn hafa farið inn fyrir hlið sendiráðsins en óvíst er hvort að þeir hafi farið inn í bygginguna sjálfa. Brjóti þeir sér leið inn í sendiráðið er um brot á diplómatísku friðhelgi að ræða.

Ekvador hefur ekki enn tekið ákvörðun um hvort að Assange verði veitt hæli í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×