Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tímaspurning hvenær banaslys hlýst af Tveggja ára stúlka var hætt komin þegar að hún hékk í gardínusnúru í heimahúsi í síðustu viku. Tildrög slyssins voru þau að rúm barnsins hafði verið fært í annað herbergi deginum áður og komið fyrir við glugga. Telpunni tókst að klifra upp í gluggann og setja snúru úr gardínu um hálsinn á sér með fyrrnefndum afleiðingum. Það voru 9 ára og 16 ára bræður telpunnar sem komu henni til bjargar. Í samtali við móður hennar kom í ljós að litlu mátti muna að ekki fór ver en telpan hékk í snúrunni og var orðin rauð í framann þegar að henni var komið til bjargar. Telpan slapp án teljandi áverka. 4.7.2012 13:50
Mannréttindadómstóllinn fjallar um mál gegn Íslandi Mannréttindadómstóll Evrópu mun fjalla um mál blaðamannanna Bjarkar Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur gegn Íslandi á þriðjudaginn næsta. 4.7.2012 13:48
Viltu láta pynta þig? Það var töluverður fjöldi fólks sem fylgdist með því þegar ungliðahreyfing Amnesty á Íslandi sýndi pyntingaraðferðir sem beitt er víða um heim. Tilefnið er alþjóðlegur dagur pyndinga sem haldinn var á dögunum. Fréttamaður fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis var á Austurvelli og prófaði þetta sjálf. Að hennar sögn voru þrír félagar í ungliðahreyfingunni sem sýndu hvernig pyndingarnar fara fram, meðal annars með gargandi þungarokkstónlist á hæsta styrk. 4.7.2012 13:27
Boða til blaðamannafundar vegna njósna Iceland Express hefur boðað til fréttamannafundar vegna "alvarlegra en jafnframt fáránlegra ásakana" um ólöglegar hleranir, eftir því sem segir í tilkynningu. Fundurinn fer fram kl 15:00 í höfuðstöðvum fyrirtækisins við Ármúla 7. 4.7.2012 12:14
Bændur stigu gleðidans í rigningu Bændur í Valþórsdal stigu gleðidans og fóru með ástaróð til rigningarinnar í gær þegar rigndi í fyrsta sinn í sex vikur á svæðinu. 4.7.2012 11:44
Eldsvoðinn í Kópavogi rannsakaður Rannsókn á orsökum eldsvoðans sem varð við Vesturvör 24 í Kópavogi á miðnætti er hafin. Í morgun voru starfsmenn Orkuveitu Reykjavikur og lögreglunnar að kanna vettvang. Gríðarlegur eldur braust út í húsinu, en þar er rekin bílasprautun. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út og tók mesta slökkvistarfið um tvo klukkutíma. 4.7.2012 11:32
Fjórir látnir í gíslatöku Þrír menn sem voru teknir í gíslingu í Karlsruhe í Þýskalandi í morgun eru látnir, eftir því sem fram kemur á vef norska blaðsins Aftenposten. Lögreglan þar segir að gíslatökumaður sé líklegast einn af þeim sem létust. Fram kemur í þýska blaðinu Bild að gíslatökumaðurinn hafi verið með fleira en eitt vopn meðferðis og verið skotglaður. Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hver fjöldi látinna er. Svæðið í kringum húsið hefur verið girt af og lögreglan er með aukalið á staðnum. Vitni segja að gíslatökumaðurinn hafi verið með handsprengju í höndunum. Hann hafi verið mjög ógnandi þegar hann tók gíslana. 4.7.2012 11:11
Þurrasti júní frá upphafi mælinga Júnímánuður var sá þurrasti sem um getur frá því mælingar hófust á norðvesturlandi. 4.7.2012 10:40
Vill endurtalningu í Mexíkó Forsetaframbjóðandi í Mexíkó fer fram á að atkvæðin úr forsetakosningunum um helgina verði talin aftur. Hann sakar nýkjörinn forseta landsins, Pena Nieto, um að brjóta kosningalög. 4.7.2012 10:03
Gíslataka í Þýskalandi Vopnaður maður hefur lokað sig af inni í byggingu og heldur þar nokkrum gíslum í borginni Karlsruhe í Suður-Þýskalandi. 4.7.2012 09:48
HIV heimapróf Matar- og lyfjaráðuneytið í Bandaríkjunum hefur samþykkt nýtt heimalyfjapróf fyrir HIV. 4.7.2012 09:42
Guðseindin að öllum líkindum fundin Vísindamenn sem vinna við sterkeindahraðal Cern segja að þeir hafi fundið öreind sem að öllum líkindum er Higgs bóseindin en hún hefur gengið undir nafninu guðseindin. 4.7.2012 08:23
Upprættu stærsta barnaklámshring í sögunni Lögregluyfirvöld í 141 landi hafa upprætt stærsta barnaklámshring í sögunni. Hundruðir manna hafa verið afhjúpaðir fyrir að skiptast á myndum og myndböndum með barnaklámi þar af 272 einstaklingar eingöngu í Austurríki. Búið er að leggja hald á mikið magn af barnaklámi. 4.7.2012 07:47
Tvennt slasast í bílveltu Tvennt slasaðist líttillega þegar bíll valt við Kerið í Grímsnesi um klukkan átta í gærkvöldi. 4.7.2012 06:57
Eldur í strandveiðibát austan við Papey Tilkynnt var um eld í strandveiðibát austan við Papey um fimm leytið í morgun. Landhelgisgæslan var að ræsa út björgunarlið þegar skiptstjórinn hafði samband að nýju og sagðist hafa ráðið niðurlögum eldsins og að allt væri í lagi. Björgunarliðið var því afturkallað. 4.7.2012 06:54
Fundu afarsjaldgæft landakort af Ameríku Afarsjaldgæft landakort af Ameríku frá 16. öld hefur komið í leitirnar en aðeins var vitað um fjögur eintök af þessu korti áður en það fimmta fannst nýlega inn í bók frá 19. öld. 4.7.2012 06:48
Reyna að bjarga skipi sem er að sökkva við Jólaeyju Áströlsk björgunarskip eru nú á leiðinni að skipi með 130 til 180 hælisleitendur innanborðs á leið frá Indónesíu til Jólaeyjar undan strönd Ástralíu. 4.7.2012 06:44
Sannanir fyrir guðseindinni lagðar fram í dag Mikil spenna ríkir meðal vísindamanna þennan morguninn þar sem reiknað er með að sannanir fyrir Higgs bóseindinni eða svokallaðri guðseind verði lagðar fram á ráðstefnu í Genf sem hefst nú fyrir hádegið. 4.7.2012 06:39
Öryggi og verndun er höfuðatriði við Silfru Þingvallanefnd ákveður á næsta fundi hvort innheimtu umdeilds gjalds fyrir kafara í Silfru verði frestað til 1. september. Nefndarformaðurinn segir áríðandi að stýra aðgangi að gjánni til að vernda umhverfið og tryggja öryggi kafara. 4.7.2012 06:30
OR leiðrétti lækkun en borgin ekki Orkuveita Reykjavíkur (OR) leiðrétti þær lækkanir launa sem starfsmenn tóku á sig í janúar 2009 við lok þess árs. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær var sú ekki raunin með Reykjavíkurborg, en nú hafa þeir starfsmenn sem heyra undir ákvörðun kjararáðs fengið leiðréttinguna, en aðrir ekki. 4.7.2012 05:30
Krefst greiningar á orðum um aflimun Landlæknir skoðar, að ósk velferðarráðherra, fullyrðingar formanns Læknafélags Íslands um að fjárskortur hafi verið orsök þess að taka þurfti fót af manni. Velferðarráðherra segir ekkert hafa komið á sitt borð um málið. 4.7.2012 05:00
Háttalag trjágeitungsins einsdæmi „Þetta er algert einsdæmi,“ segir Konráð Magnússon meindýraeyðir hjá meindýraeftirliti Firringar. „Það er svo ólíklegt að þetta geti skeð að ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.“ 4.7.2012 05:00
Arafat líklega byrlað eitur Yasser Arafat lést vegna eitrunar. Þetta segja niðurstöður rannsóknar sem rannsóknarstofa í Lausanne í Sviss hefur gert á persónulegum munum Arafats. 4.7.2012 05:00
Gamall gærukollur í tísku í útlöndum Gærukollur sem hannaður var fyrir fjörutíu og tveimur árum eykur nú hróður íslenskrar hönnunar víða um heim. Víða er bannað að sitja á kollinum. 4.7.2012 04:30
Fiskurinn með nælonroðið Úlfar Eysteinsson, veitingamaður á Þremur frökkum, komst heldur betur í feitt í gær þegar hann fékk 65 kílóa tunglfisk inn á borð til sín. Það var vinveittur sjómaður á Sighvati Bjarnasyni frá Vestmannaeyjum sem færði honum fenginn. 4.7.2012 04:00
Fékk átján mánuði fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 28 ára mann í átján mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Laugavegi í lok febrúar. Fórnarlambið, óreglumaður á fimmtugsaldri, slasaðist lífshættulega og lá á gjörgæsludeild um tíma. 4.7.2012 04:00
Húsleit gerð hjá Nicolas Sarkozy Franska lögreglan gerði húsleit heima hjá Nicolas Sarkozy, fyrrverandi Frakklandsforseta. Húsleitin tengdist rannsókn á meintum ólöglegum fjárframlögum í kosningasjóði hans árið 2007. 4.7.2012 03:00
Slökkvistarfi að ljúka við Vesturvör Slökkvistarfi er nú að mestu lokið að Vesturvör 24 í Kópavogi. Búið er að slökkva mesta eldinn og verið er að rífa þann hluta hússins sem þarf að rífa til að komast í glæður. Ljóst er að verulegt tjón hefur orðið í eldinum, en í húsinu var rekið bílasprautunarverkstæði. Eldurinn var verulegur og lagði mikinn reyk yfir Kópavog. Slökkvistarf tók um tvo klukkutíma. 4.7.2012 02:08
Eldurinn í Kópavogi: Nágrannar beðnir um að loka gluggum Fólk sem finnur fyrir reykjalykt vegna eldsvoðans í Vesturvör er vinsamlegast beðið um að loka fyrir gluggum í híbýlum sínum. Þetta kemur fram í fréttaskeyti sem slökkviliðið sendi fjölmiðlum nú rétt eftir klukkan hálfeitt. 4.7.2012 00:43
Eldur í Kópavogi Eldur kom upp í iðnaðarhúsi við Vesturvör í Kópavogi nú um miðnættið. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn. Samkvæmt sjónvarvottum teygja elddungurnar sig langt upp úr húsinu og leggur mikinn reyk yfir. 4.7.2012 00:10
Vélarvana fiskibátur við Neskaupstað Landhelgisgæslunni barst í völd aðstoðarbeiðni frá fiskibát sem var vélarvana um 15 sjómílur frá Neskaupstað. Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupstað var kallað út til aðstoðar og er reiknað með að skipið verði komið á staðinn um miðnætti. 3.7.2012 23:15
Hlakka til að spila á Íslandi eftir ótrúlegt tónleikaferðalag Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er nú komin aftur til landsins eftir vel heppnað tónleikaferðalag um Bandaríkin. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona, segir að sterk vináttutengsl hljómsveitarmeðlima hafi reynst nauðsynleg þegar á ferðalaginu stóð. 3.7.2012 20:52
Harmleikur í svissnesku ölpunum Fimm erlendir göngumenn féllu til bana þegar þeir gengu á Lagginhorn fjall í svissnesku ölpunum í dag. 3.7.2012 22:05
Eitt stærsta sterasmyglmál ársins Þetta er eitt stærsta málið í smygli og innflutningi á sterum á þessu ári, segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, um málið þar sem þrír starfsmenn Eimskips voru handteknir á sunnudaginn. Þeir höfðu meðal annars reynt að smygla tíu þúsund steratöflum til landsins. 3.7.2012 21:00
Ísland í dag: Föst inni vegna húsnæðisskorts "Þau eru föst inni á geðsjúkrahúsi og geta ekki verið útskrifuð þar sem þau fá ekki húsnæði við hæfi.“ 3.7.2012 20:45
Tom Cruise geðugur, kurteis og hógvær Kvikmyndaleikarinn heimsfrægi, Tom Cruise, fékk afmælisgjafir í Veiðivötnum í gærkvöldi í tilefni fimmtugsafmælis síns í dag en hann flaug síðan af landi brott fyrir miðnætti, eftir nítján daga dvöl hérlendis. Tom Cruise leið vel á Íslandi, þrátt fyrir allt, og erlenda kvikmyndatökuliðið var mjög ánægt með hversu vel tökurnar heppnuðust hérlendis. 3.7.2012 20:00
Vill leysa makríldeiluna fyrir næsta fiskveiðiár Sjávarútvegsmálastjóri Evrópusambandsins segist hafa sýnt mikinn sveigjanleika í makríldeilunni. Íslensk stjórnvöld þurfi nú að koma til móts við samningsaðila sína. Þá þurfi að finna lausn á málinu fyrir næsta fiskveiðiár. 3.7.2012 19:00
Húsnæði vantar fyrir útskrifaða sjúklinga á geðdeildum Um tuttugu einstaklingar með langvinna geðsjúkdóma eru fastir inn á Kleppi og öðrum geðdeildum Landspítalans þar sem þá vantar húsnæði að útskrift lokinni. Lengst hefur sjúklingur beðið í fjögur ár. Kona sem var lögð inn á Klepp fyrir tæpu ári líkir dvölinni við fangavist og harmar að komast ekki út í samfélagið að nýju vegna húsnæðisskorts. 3.7.2012 18:30
Hefur miklar áhyggjur af hækkunum hjá Farice „Við hjá Símanum höfum miklar áhyggjur af þessu. Við þurfum á þessum strengjum halda, svo að landið okkar sé tengt umheiminum." 3.7.2012 17:37
Eldur kom upp á sambýli Eldur kom upp á sambýli á Selfossi á fimmta tímanum í dag. Um smávægilegan eld var að ræða og náði starfsmaður á sambýlinu að ráða niðurlögum hans. 3.7.2012 17:14
Íslensk söfn bjóða í heimsókn Íslenski safnadagurinn þetta árið verður á sunnudaginn kemur. Söfn munu almennt bjóða fólki ókeypis aðgang á þessum degi sem nýtist vel til að kynna starf íslenskra safna fyrir almenningi. 3.7.2012 16:57
Tom Cruise fékk mótorhjól og Íslandskort í afmælisgjöf Tökulið Oblivion myndarinnar hélt Tom Cruise afmælisveislu áður en hann fór af landi brott í gær. Sem kunnugt er fagnar Cruise fimmtugsafmæli í dag. Heimildarmaður Vísis segir að Cruise hafi meðal annars fengið að gjöf vélhjól sem notað var við tökur á myndinni. Þá mun hann jafnframt hafa fengið gamalt Íslandskort að gjöf. 3.7.2012 16:47
Andrea vill snúa sér að réttlætisbaráttu Andrea Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, býst við því að hún muni snúa sér aftur að einhvers konar réttlætisbaráttu fyrst hún hlaut ekki kjör sem forseti Íslands. Áður en hún fór í forsetaframboð gegndi hún hlutverki formanns Hagsmunasamtaka Heimilanna. 3.7.2012 16:22
Ásdís Olsen handtekin í Rússlandi Ásdís Olsen aðjúnkt var handtekin og sett í stofufangelsi í Rússlandi á sunnudaginn þegar hún var í vegabréfsskoðun á leiðinni heim. Landvistarleyfið hennar hafði runnið út fyrir mistök því einhver ágalli hafði verið á Vegabréfinu. Ásdís segir að upplifunin hafi verið hryllileg og að landamæraverðir í Moskvu hafi komið fram við sig eins og úrhrak. 3.7.2012 16:12
Andy Griffith er látinn Hinn heittelskaði leikari Andy Griffith lést á heimili sínu í morgun 86 ára að aldri. 3.7.2012 16:03