Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fréttaskýring: Refsiaðgerðir frekar ólíkleg framtíðarsýn Eru refsiaðgerðir af hendi Evrópusambandsins yfirvofandi vegna makrílveiða? Nú liggur fyrir samkomulag fulltrúa Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins, þar sem Danir fara með forsæti, um að reglugerð verði sett sem veitir heimild til aðgerða gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar. Reglugerðin er sett til höfuðs Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiða. Refsiaðgerðir gegn Íslandi hafa hins vegar ekki verið samþykktar, og myndu reynast bitlitlar ef til þeirra kæmi. Framhald málsins ræðst líklega á haustmánuðum. 29.6.2012 02:30
Gamalt sláturhús verður hótel Fosshótel opnar 41 herbergis hótel á Patreksfirði í maí á næsta ári. Samningar þess efnis voru undirritaðir á Patreksfirði í gær. Það verður langstærsta hótelið á svæðinu segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstýra Vesturbyggðar. Hótelið verður í endurbyggðu vinnsluhúsi en í því var áður rekið sláturhús og fiskvinnsla. 29.6.2012 02:15
Risagígur á Grænlandi Gígur, sem er 600 km í þvermál og stærri en Danmörk, myndaðist á Grænlandi þegar loftsteinn, sem var þrír kílómetrar í þvermál, hrapaði þar fyrir þremur milljörðum ára. 29.6.2012 02:00
Krakkar í Kópavogi með hærri laun Unglingar í vinnuskólanum í Kópavogi fá allt að þrjátíu prósent hærri laun en jafnaldrar sínir í vinnuskólanum í Reykjavík. Vinnuskólinn er á vegum sveitarfélagana sem ákveða sjálf laun unglingana. 28.6.2012 23:45
Langar raðir á kjörstað í kvöld Nú klukkan hálf tíu í kvöld voru langar raðir fyrir utan Laugardalshöllina af fólki sem ætlaði að greiða atkvæði fyrir forsetakosningarnar utan kjörfundar. 28.6.2012 22:53
Cruise grillaði pylsur í eldfjallagíg Sonur Tom Cruise skemmtir sér stórkostlega á Íslandi og virðist elska land og þjóð. Á þriðjudaginn grillaði hann pylsur ofan í eldfjallagíg. Hann er búinn að fara og kafa í Silfru, fara í jöklaferðir og nú síðast fór hann í river rafting. 28.6.2012 20:59
Heilbrigðislöggjöf Obama stenst stjórnarskrá Meirihluti Hæstaréttar Bandaríkjanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að heilbrigðislöggjöf Baracks Obama stenst stjórnarskrá landsins. Því hefur verið varpað að þetta sé eitt stærsta mál dómstólsins í fjölda ára. 28.6.2012 22:36
Vélmenni sem sigrar alltaf í Steinn, skæri, blað Verkfræðingar við háskólann í Tókýó hafa þróað vélmenni sem mun ávallt trompa mannkynið þegar kemur að fingraleiknum Steinn, skæri, blað. 28.6.2012 22:30
Erfiðasta Sudoku-þraut veraldar Vinsældir Sudoku virðast engan enda ætla að taka. Áhugamenn um þessa ávanabindandi talnaþraut ættu nú að ydda blýanta sína því erfiðasta Sudoku þrautin hefur nú verið birt. 28.6.2012 22:00
Fékk heldur ekki að heita Blær og fagnar málaferlum Þuríður Blær, leikaranemi, fagnar málaferlum gegn innanríkisráðherra til að fá úrskurði mannanafnanefndar um að konur megi ekki heita Blær ógilta. Þuríður er einn þeirra stúlkna sem aldrei fékk að heita Blær opinberlega og hefur gegnum tíðina staðið í miklu stappi við mannanafnanefnd vegna þessa. 28.6.2012 21:55
Komst í hann krappan á Esjunni Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fóru á Esju nú í kvöld til aðstoðar ungum manni sem veiktist á göngu á fjallinu. Þegar hann var kominn upp að Steini þvarr honum kraftur og komst ekki lengra. Menn frá slökkviliðinu voru fyrstir á staðinn og hjálpuðu þeir honum niður hluta af leiðinni, þangað sem björgunarsveitir biðu með fjórhjól. Aðgerðinni lauk á níunda tímanum. 28.6.2012 21:21
Góð reynsla af að líta ekki á fíkniefnaneyslu sem afbrot Reynsla Portúgala af því að hætta að líta á fíkniefnaneyslu sem afbrot er góð og hefur engar skaðlegar hliðar í för með sér. Fyrir tveimur dögum birtu Sameinuðu Þjóðirnar skýrslu um að fíkniefnastríðið væri tapað og hefði meiri skaðlegar afleiðingar en góðar. Reynsla Portúgala gæti verið vatn á myllu þessa málstaðar. 28.6.2012 20:25
Tyrkir búast til varnar Tyrkir hafa sent hermenn, eldflaugar og önnur hergögn að landamærum Sýrlands samkvæmt fréttastofu Sky News. Forsætisráðherra Tyrklands hefur jafnframt gefið út skipun um að bregðast við ógnum sem kunna að steðja að landamærunum. Hann lýsti því yfir í kjölfar þess að Sýrlendingar skutu niður tyrkneska herflugvél fyrir skömmu. 28.6.2012 18:20
Bein útsending frá setningarathöfn Landsmóts Setningarathöfn Landsmóts hestamanna hefst núna klukkan hálfníu og er sýnd í beinni útsendingu á Vísi. Á athöfninni er meðal annars hópreið, sem þau Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, og Dorrit Moussaief leiða. Smelltu á hnappinn "Horfa á myndskeið með frétt“ til að fylgjast með athöfninni. 28.6.2012 20:02
Verið að gera stjórnvöld að blóraböggli Sjávarútvegsráðherra segir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum reyna að gera stjórnvöld að blóraböggli í rekstravanda fyrirtækisins. Útskýringar stjórnenda gangi ekki upp. 28.6.2012 19:48
Aðeins einn forsetaframbjóðandi lagði á Esjuna Hannes Bjarnason var eini forsetaframbjóðandinn sem mætti í viðtal í Reykjavík síðdegis á Esjunni í dag. Þáttarstjórnendurnir sendu þáttinn út af toppi Esjunnar í dag og buðu öllum forsetaframbjóðendunum að koma í viðtal. 28.6.2012 19:07
Í sjöunda himni eftir heimsókn til lögreglunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bjargaði degi konu nokkurrar sem kom á stöðina til að tilkynna um týnda Sony videotökuvél. Konan var að vonum niðurdregin og gerði sér engar vonir um að vélina væri að finna hjá lögreglunni, kom bara á stöðina til að fylla út þar til gert eyðublað eins og ber að gera í tilvikum sem þessum. 28.6.2012 17:41
Breytingar í Egyptalandi Eiginkona Morsi, forseta Egyptalands, vill ekki láta kalla sig „helsta konan" (e. first lady). Ef hún þarf að bera einhvern titil vill hún heldur vera kölluð „helsti þjónn" (e. first servant) landsins. 28.6.2012 16:40
„Þetta er gríðarlega þungt högg fyrir okkur" "Þetta er gríðarlega þungt högg fyrir okkur. Það sem er kannski verst er að sjá þennan helkalda veruleika berast fyrir framan sig eftir að hafa fengið það ítrekað í andlitið frá þingmönnum að við séum að stunda hræðsluáróður." 28.6.2012 16:27
Krummi krunkaði með börnunum Hann Krummi var kátur þegar hann hitti krakkana í sumarskóla Ísaksskóla í Skaftahlíðinni í morgun. Krummi, sem er heimaalningur í húsi í nágrenni við skólann og 365 miðla, þáði kex og brauðmylsnu úr hendi krakkanna og foreldrarnir fylgdust spenntir með. Krummi krunkaði síðan til þeirra allra í þakklætisskyni. Samkvæmt upplýsingum frá Ísaksskóla er sumarskólinn rekinn fyrir 5 og 6 ára gömul börn. 28.6.2012 16:13
Kærasti Amy Winehouse kærður fyrir nauðgun Kærasti söngkonunnar Amy Winehouse hefur verið kærður fyrir nauðgun, samkvæmt heimildarmanni sem talaði við Huffington Post. 28.6.2012 15:42
Ögmundur biðst afsökunar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra biður fólk með fötlun afsökunar á því að hafa ekki breytt kosningalöggjöfinni á þann hátt að fólk geti valið sér aðstoðarmenn þegar það fer inn í kjörklefa. Freyja Haraldsdóttir, ötull talsmaður fyrir réttindum fólks með fötlun, vakti athygli á því í tölvupósti til þingmanna og fjölmiðla í gær að löggjöfinni hafi ekki verið breytt. Nokkrir þingmenn hafa þegar brugðist við og lofað því að flytja þingmál á næsta þingi. 28.6.2012 15:20
Reykjavík síðdegis á Esjunni Þeir félagarnir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni munu standa skör hærra í þættinum í dag en venjulega því þeir ætla að senda þáttinn út ofan af Esjunni. 28.6.2012 15:12
Heilbrigðislöggjöf Obama stendur Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að heilbrigðislöggjöf Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, og Demókrata sé í samræmi við stjórnarskrá landsins. 28.6.2012 15:05
Maður frá Eritríu óskaði eftir hæli Í morgun knúði maður dyra á lögreglustöðinni á Egilsstöðum. Hann kvaðst hafa komið með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar frá Danmörku fyrr um morguninn og óskaði eftir hæli á Íslandi. 28.6.2012 15:02
Fjölda bjargað þegar skip sekkur nærri Ástralíu Yfir 120 manns hefur verið bjargað eftir að skip sökk nærri Ástralíu. Skipið var á leið frá Afganistan með flóttamenn í leit að hæli. 28.6.2012 14:51
Viltu eiga áritaða treyju Barcelona-manna Íslendingum gefst nú kostur á að eignast áritaða treyju fimm leikmanna knattspyrnuliðsins Barcelona. Unicef á Íslandi stendur fyrir SMS-leik þar sem allur ágóði rennur til samtakanna. Stórstjörnurnar Gerard Pique, Victor Valdés, Xavi Hernandez, Carlos Pyol og David Villa hafa skrifað nafn sitt á treyjuna. 28.6.2012 14:44
Í anda siðareglna að upplýsa fyrirfram um boðsferðir Fram kemur í áliti innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar að það sé í anda siðareglna og góða starfshætti að borgarfulltrúar upplýsi fyrirfram um ferðir sem þeim eru boðnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tveggja blaðsíðna úttekt innri endurskoðunar borgarinnar á boðsferð sem Einar Örn Benediktsson þáði hjá WOW Air í lok maí. 28.6.2012 14:44
Dorrit og Dagur í hópreið - bein útsending á Vísi Formleg setningarathöfn frá Landsmóti hestamanna í Víðidal verður klukkan hálfníu í kvöld. Athöfnin verður í beinni útsendingu hér á Vísi og á Stöð 2 sport. 28.6.2012 14:25
Ólína efast um rökstuðning Vinnslustöðvarinnar "Það er alveg viðbúið að menn fari nú að skella skuldinni á veiðigjaldið, frekar en að taka ábyrgð á eigin rekstrarákvörðunum og fjárfestingum." Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. 28.6.2012 13:58
Bensínþjófur á sextugsaldri dæmdur Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa stolið bensíni þrisvar sinnum á síðustu þremur árum. 28.6.2012 13:58
Segjast ekki sekir um að hafa svipt bræður frelsi sínu Elís Helgi Ævarsson og Steindór Hreinn Veigarsson neituðu báðir að hafa svipt tvo bræður frelsi og reynt að ræna þá þegar ákæra gegn þeim var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 28.6.2012 13:45
Leiðtogafundur ESB enn í gangi Fjárhagsvandamál á evrusvæðinu er aðalumræðuefnið og Angela Markel kanslari Þýskalands og Francois Hollande forseti Frakklands reyna að komast að niðurstöðu hvaða leiðir séu bestar til að leysa vandann. 28.6.2012 13:40
Mál Kim Dotcom í uppnámi - leitarheimildin ógild Dómstóll í Nýja-sjálandi hefur úrskurðað að leitarheimild sem lögreglan þar í landi notaði til að ráðast inn á heimili Kim Dotcom, stofnanda skráarskiptasíðunnar Megaupload, hafi verið ógild. 28.6.2012 13:18
Umboðsmaður skuldara: Ellefu prófmál fyrir héraðsdóm vegna lána Búið er að velja ellefu prófmál þar sem mun reyna á tuttugu álitaefni sem þarf að fá úr skorið fyrir dómstólum vegna lána. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umboðsmanni skuldara. 28.6.2012 13:07
Presturinn vill loka á Orkuveituna og grafa eigin skolplögn Presturinn í Reykholti íhugar að leggja eigin skolp- og vatnsveitu fyrir kirkjuna þar sem megnið af sóknargjöldunum fari í að greiða vatns- og fráveitugjöld. Kirkjur eru undanþegnar fasteignagjöldum, sem dekkuðu áður vatns- og fráveitugjöld, en þegar borgin og Orkuveita Reykjavíkur í fjárhagsvandræðum sínum tóku upp á því í fyrra að rukka gjöldin sérstaklega sat Reykholtskirkja í súpunni. 28.6.2012 13:00
Mál Karadzic heldur áfram - fallið frá einni ákæru Stríðsglæpadómstóllinn í Haag mun ekki falla frá kærum á hendur Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-serba. Hann var ákærður fyrir þjóðarmorð sem og aðra stríðsglæpi. 28.6.2012 12:31
Gerir mynd um ævintýralegan ástarþríhyrning Ævintýralegur ástarþríhyrningur merar, knapa og graðhests verður kvikmyndaður í Skagafirði í sumar, við undirleik 150 hestamanna og fjögur hundruð hrossa. Það er Benedikt Erlingsson leikstjóri og hestamaður sem stendur að þessari uppákomu við gerð myndarinnar Hross, sem þegar hefur hlotið styrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og ýmsum norrænum sjónvarpsstöðvum, að sögn Bændablaðsins. 28.6.2012 12:18
Tugir þúsunda manns heimilislaus eftir eldana Yfir þrjú þúsund heimili hafa brunnið í eldunum í Colorado Springs og gert um 32 þúsund manns heimilislaust og í leit að skjóli. 28.6.2012 12:17
189 frávik frá starfsleyfum - flest í úrgangs og efnamóttökum Fulltrúar umhverfisstofnunar fóru á síðasta ári í eftirlit til rúmlega hundrað og tuttugu aðila en í ferðinni komu í ljós tæplega eitt hundrað og níutíu frávik frá starfsleyfum, lögum og reglugerðum. Flest frávik voru í úrgangs- og efnamóttökum en aðeins eitt frávik var hjá álverum. 28.6.2012 12:15
Laug að dreng að foreldrar hans væru á sjúkrahúsi Lögreglan á Húsavík leitar karlmanns sem reyndi að tæla átta ára gamlan dreng upp í bíl til sín á mánudagskvöldinu. Talið er nokkuð öruggt að karlmaðurinn hafi haft illt í hyggju en hann laug að drengnum að foreldrar hans væru á sjúkrahúsi og að hann ætti að aka drengnum þangað. 28.6.2012 12:12
Átök milli lögreglu og mótmælenda Mótmæli útburðs ungrar fjölskyldu á Spáni leiddu til uppþots og átaka við lögregluna á dögunum. 28.6.2012 11:33
Benedikt skipar nýjan sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð Benedikt páfi XVI hefur í dag (28. júní 2012) skipað sendiherra páfa í Nikaragúa, Henryk Jozef Nowacki erkibiskup, sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kaþólsku kirkjunni hér á landi. 28.6.2012 11:11
Vantar leikara til að leika á móti Þorvaldi Davíð Vonarstræti er heiti á nýrri mynd sem Baldvin Z leikstýrir. Þetta er önnur kvikmynd hans, en hann leikstýrði jafnframt myndinni Órói. Um er að ræða mikla dramamynd sem verður tekin upp í byrjun næsta árs á Íslandi og víðar. "Ég er að byrja þetta skemmtilega ferli að finna leikara inn í Vonarstræti," segir Baldvin í samtali við Vísi. Hann bætir því við að hann vanti þrjár 5-8 ára gamlar stelpur og eina 13 - 17 ára til að leika í myndinni. 28.6.2012 10:39
Herdís gagnrýnir stjórnmálaprófessor harðlega Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðanda gagnrýnir orð Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði, sem sagði í viðtali við RÚV á þriðjudaginn, að opið bókhald frambjóðenda væri merkingarlítið þar sem upplýsingarnar yrðu ekki sannreyndar af Ríkisendurskoðanda fyrr en eftir kosningar. Hann benti jafnframt á að krafa annarra frambjóðanda um að opna bókhaldið væri eðlileg taktík fyrir þá sem hafa minna fé milli handanna í kosningunum og til þess fallið að snúa veikleikum slíkra frambjóðanda í styrk. 28.6.2012 10:35