Innlent

Benedikt skipar nýjan sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð

Benedikt páfi XVI hefur í dag (28. júní 2012) skipað sendiherra páfa í Nikaragúa, Henryk Jozef Nowacki erkibiskup, sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kaþólsku kirkjunni hér á landi.

Svo segir orðrétt í tilkynningunni:

Monsignor Henryk Jozef Nowacki, nafnbiskup í Blera, fæddist í Gunzenhausen í Bæjaralandi 11. ágúst 1946 af pólskum foreldrum. Hann hlaut prestvígslu í Tarnow 1970. Hann lærði guðfræði í Lublin og hélt síðar til Rómar.

Frá 1. júní 1983 hefur hann starfað sem fulltrúi Páfagarðs í Paragvæ og Angóla. Hann hefur starfað í 11 ár við utanríkisþjónustu Páfagarðs. Þann 8. febrúar 2001 var hann skipaður sendiherra páfa í Slóvakíu og 19. mars hlaut hann biskupsvígslu. Frá 28. nóvember 2007 hefur hann verið sendiherra í Nikaragúa.

Nýi sendiherrann tekur við af Emil Paul Tscherrig erkibiskupi sem skipaður var fulltrúi páfa í Argentínu.

Reykjavíkurbiskup, Peter Bürcher, óskar hinum nýja sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð til hamingju í nafni kaþólskra á Íslandi sem nú eru fleiri en tíu þúsund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×