Innlent

189 frávik frá starfsleyfum - flest í úrgangs og efnamóttökum

Jónas Margeir Ingólfsson skrifar
Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Fulltrúar umhverfisstofnunar fóru á síðasta ári í eftirlit til rúmlega hundrað og tuttugu aðila en í ferðinni komu í ljós tæplega eitt hundrað og níutíu frávik frá starfsleyfum, lögum og reglugerðum. Flest frávik voru í úrgangs- og efnamóttökum en aðeins eitt frávik var hjá álverum.

Nú þegar hafa sextíu og þrjú prósent frávika annað hvort bætt frávik sín að fullu eða fengið samþykktan úrbótafrest. Önnur frávik eru í vinnslu og hugsanlega á leið í frekar þvingun. Hins vegar fundu fulltrúar umhverfisstofnunar engin frávik frá starfsleyfum, lögum og reglugerðum hjá um fjörtíu prósent fyrirtækja.

Að því er fram kemur í tilkynningu Umhverfisstofnunar voru áberandi flest frávik hjá urðunarstöðum og sorpbrennslum eða um 130 frávik sem gera að meðaltali 3,4 frávik á hvern eftirlitsþega. Einnig er þó nokkuð um frávik hjá fiskimjölsverksmiðjum og verksmiðjum, en fæst frávik greinast hjá fiskeldisstöðvum, olíubirgðastöðvum og stjóriðju, eða um það bil eitt frávik í öðru hverju eftirliti. Aðeins eitt frávik fannst hjá álverunum.

Umhverfisstofnun segir viðbrögð efirlitsskylda aðila vera misjöfn. Í mörgum tilvikum hafi þó verið nóg að krefjast úrbóta en í öðrum tilvikum þarf meira til. Umhverfisstofnun hefur til þess beitt áminningum og dagsektum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×