Innlent

Krummi krunkaði með börnunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hann Krummi var kátur þegar hann hitti krakkana í sumarskóla Ísaksskóla í Skaftahlíðinni í morgun. Krummi, sem er heimalningur í húsi í nágrenni við skólann og 365 miðla, þáði kex og brauðmylsnu úr hendi krakkanna og foreldrarnir fylgdust spenntir með. Krummi krunkaði síðan til þeirra allra í þakklætisskyni. Samkvæmt upplýsingum frá Ísaksskóla er sumarskólinn rekinn fyrir 5 og 6 ára gömul börn.

Smelltu á hlekkinn „Horfa á myndskeið með frétt" til að sjá Krumma. Bjarni Einarsson tók myndirnar en Hákon Logi Sigurðarson klippti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×