Innlent

Gerir mynd um ævintýralegan ástarþríhyrning

Gissur Sigurðsson skrifar
Benedikt Erlingsson er leikstjóri myndarinnar.
Benedikt Erlingsson er leikstjóri myndarinnar.
Ævintýralegur ástarþríhyrningur merar, knapa og graðhests verður kvikmyndaður í Skagafirði í sumar, við undirleik 150 hestamanna og fjögur hundruð hrossa. Það er Benedikt Erlingsson leikstjóri og hestamaður sem stendur að þessari uppákomu við gerð myndarinnar Hross, sem þegar hefur hlotið styrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og ýmsum norrænum sjónvarpsstöðvum, að sögn Bændablaðsins.

Að sögn Benedikts snýst söguþráðurinn um, að mikill hestamaður er niðurlægður af verðlaunamerinni hans, sem gerir honum það til skammar og ærumissis að verða stöð undir honum fyrir framan sveitunga hans, og helypa auk þess graðfola upp á sig, með manninn enn á baki. Þetta hefur alvarlegar afleiðingar fyrir merina sem sveik hann, graðhestinn sem vanvirti hann, konuna sem elskaði hann og sveitina alla.

Til stendur að tökur hefjist í ágúst og að myndin verði frumsýnd á næsta ári.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×