Innlent

Í anda siðareglna að upplýsa fyrirfram um boðsferðir

Einar Örn Benediktsson t.h. ásamt S. Birni Blöndal.
Einar Örn Benediktsson t.h. ásamt S. Birni Blöndal.
Fram kemur í áliti innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar að það sé í anda siðareglna og góða starfshætti að borgarfulltrúar upplýsi fyrirfram um ferðir sem þeim eru boðnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tveggja blaðsíðna úttekt innri endurskoðunar borgarinnar á boðsferð sem Einar Örn Benediktsson þáði hjá WOW Air í lok maí.

Minnihluti borgarstjórnar óskaði eftir áliti innri endurskoðanda á ferðalaginu með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna á vegum borgarinnar.

Í raun er enga eiginlega afstöðu að finna um málið hjá Innri endurskoðun. Aftur á móti er hvatt til þess að settur verði á fót vettvangur til þess að fjalla um möguleg brot á siðareglum.

Eins sé mikilvægt að sambærilegur vettvangur verði til vegna álitaefna um siðareglur kjörinna fulltrúa og um ætluð brot á þeim líkt og sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir að verði til innan Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Tengdar fréttir

Borgarfulltrúi: Alls ekki við hæfi að þiggja boðsferðina

"Einar Örn hefur eitthvað misskilið það hvernig fara eigi með siðareglur ef hann heldur að hann geti túlkað þær með þessum hætti," segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Vilja skýringu á boðsferð WOW

Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í borgarráði hafa óskað eftir áliti innri endurskoðanda á boðsferð flugfélagsins WOW Air með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar.

Einar Örn: Borgaði 5.900 krónur fyrir sætið

"Ég tel mig ekki hafa verið að brjóta siðreglurnar, mér var ekki boðið sem borgarfulltrúa,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferðmálanefndar Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×