Fleiri fréttir

Eldur laus í nýbyggingu við Bergstaðastræti

Að ganga klukkan fjögur í nótt logaði eldur í stigahúsi nýbyggingar við Bergstaðastræti. Borgari sem átti leið hjá gerði lögreglu viðvart og gerði tilraun til að slökkva eldinn með vatnsfötu og náði þannig að tefja útbreiðslu eldsins þar til lögregla og slökkvilið kom á vettvang.

Suðurskautið líktist Íslandi

Strendur Suðurskautslandsins voru grónar fyrir fimmtán milljónum ára en þá hlýnaði vegna aukins koltvísýrings í andrúmsloftinu. Vísindamenn telja þessar niðurstöður rannsókna á plöntuleifum á hafsbotni geta gefið vísbendingu um þróun mála þegar loftslag hlýnar á ný.

Seglskúta í vandræðum komst til Eyja í nótt

Seglskútan Strýta, sem lenti í vandræðum út af suðurströndinni í gær þegar aðal seglið rifnaði og vélin fór ekki gang, komst fyrir eigin vélarafli og seglabúnaði til Vestmannaeyja upp úr klukkan tvö í nótt.

Óttast að verða framseldur til Bandaríkjanna

Julian Assange, forsprakki Wikileaks, verður handtekinn ef hann yfirgefur sendiráð Ekvadors í Lundúnum, þar sem hann dvelur. Meðan hann heldur sig þar inni getur breska lögreglan hins vegar ekkert aðhafst.

Eldur í ruslagámi undir fjölbýlishúsi

Eldur var kveiktur í plastruslagámi í bílageymslu undir fjölbýlishúsi í Hamraborg í Kópavogi um þrjú leitið í nótt. Slökkviliðið var kallað á vettvang og slökkti eldinn, en þá var gámurinn ónýtur.

Fundu sprengiefni við kjarnorkuver í Svíþjóð

Sænska lögreglan hefur gripið til víðtækra öryggisráðstafana við kjarnorkuver landsins. Þetta kemur í framhaldi af því að nokkurt magn af sprengjuefni fannst í flutningabíl sem staddur var inni á starfssvæði Ringhals kjarnorkuversins.

Kveiktu í fjórum tonnum af flugeldum og tertum

Litskrúðugar eldglæringar stigu til himins við undirleik mikilla sprenginga og hverskonar ýlfra, þegar sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar kveiktu í fjórum tonnum af flugeldum og tertum í sandgrifju við Stapafell á Reykjanesi í gær.

Þrír opnaðir en engum lokað

Formlegar viðræður hefjast um þrjá samningskafla á fimmtu ríkjaráðstefnu Íslands og ESB á föstudag. 15 kaflar hafa þegar verið opnaðir. Ólíklegt að köflum verði lokað. Átta kaflar opnir eftir ríkjaráðstefnuna.

Unga fólkið heldur uppi vinnslu

Full starfsemi verður í fiskiðjuverum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi í sumar. Á meðan starfsfólk fiskiðjuveranna er í sumarleyfum standa skólanemar vaktina.

Styrkurinn forsenda verkefnisins

Háskólafélag Suðurlands fær 90 milljóna króna IPA-styrk til að koma upp Kötlu-jarðvangi og vinna þróunaráætlun fyrir Eyjafjallajökulssvæðið. Hafist verður handa í sumar, verkefnisstjóri ráðinn og einn til tveir starfsmenn til að sinna gerð fræðsluverkefnis. Heimamenn verða síðan ráðnir í uppsetningu fræðsluskilta og fleira. Til að setja 90 milljóna króna styrkinn í samhengi fékk háskólafélagið hálfa milljón króna úr ríkissjóði árið 2012.

Tveir milljarðar í IPA-styrki

Sjö verkefni eru í startholunum eftir að Alþingi samþykkti frumvarp um IPA-styrki frá Evrópusambandinu. Alls koma tæpir 2 milljarðar króna inn í hagkerfið. Matvælaeftirlit og jarðvangur á meðal verkefna.

Solveig kjörin vígslubiskup

Solveig Lára Guðmundsdóttir hefur verið valin vígslubiskup á Hólum. Atkvæði voru talin í síðari umferð kosninga til embættisins í gær.

Messunni lauk á tilsettum tíma

Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur vísar ásökunum á bug um að dagskrá á Austurvelli á 17. júní hafi riðlast vegna þess hversu snemma guðsþjónustu í Dómkirkjunni lauk. Henni hafi aðeins lokið fjórum mínútum fyrr en áætlað var.

Samfélag frá víkingaöld fundið

„Við sjáum allavega eina smiðju ef ekki tvær, en einnig kolagrafir og járnbræðsluofna,“ segir Vala Garðarsdóttir, uppgraftarstjóri á Alþingisreitnum sem er á horni Tjarnargötu og Kirkjustrætis. Þar hefur frá árinu 2008 verið grafið eftir fornminjum á sumrin.

Nýjar íslenskar koma í verslanir 10. júlí

Íslenskar kartöflur hafa verið ófáanlegar í búðum landsins síðan í apríl. Orsökin er gríðarlegur uppskerubrestur síðasta sumar, þegar kartöflubændur í Eyjafirði og Þykkvabæ töpuðu um 30 til 40 prósentum af uppskeru sinni.

Flugfélagið nú í farsímanum

Vefsíður Flugfélags Íslands eru nú virkar í snjallsímum. Á síðunum er hægt að bóka flug, sjá komur og brottfarir flugvéla og áætlun flugfélagsins. Einnig er hægt að skoða allar upplýsingar um vörur og þjónustu.

Krónan styrkst síðustu daga

Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst nokkuð síðustu daga eftir að hafa staðið nokkurn veginn í stað síðan í byrjun maí. Hefur krónan ekki verið jafn sterk og um þessar mundir frá miðjum janúar.

Samaras orðinn forsætisráðherra

Antonis Samaras sór í gær embættiseið sem forsætisráðherra Grikklands. Flokkur hans, Nýi lýðræðisflokkurinn, myndaði stjórn með sósíalistaflokknum Pakos og Lýðræðislega vinstriflokknum. „Ég bið nýja ríkisstjórn, sem verður mynduð á morgun [í dag], að leggja hart að sér svo við getum veitt fólkinu okkar áþreifanlega von," sagði Samaras í gær. Hann er fjórði forsætisráðherra Grikkja á 8 mánuðum.

Gaf gömul hjól og býður fjölskyldunni til útlanda

Alls söfnuðust um 500 reiðhjól í hjólasöfnun Barnaheilla — Save the Children á Íslandi og WOW Cyclothons. Ung stúlka var vinningshafi söfnunarinnar en hún gaf tvö hjól og getur nú boðið fjölskyldu sinni til útlanda.

Fjórir bílar lentu saman

Beita þurfti klippum til að ná ökumanni í bifreið eftir að fjórir lentu saman á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar klukkan átta í kvöld.

"Ég hef gaman af því að reyna nýja hluti"

Athafnamaðurinn Einar Bárðarson hefur ákveðið að sækjast eftir starfi bæjarstjóra í Garði. Einar er stórhuga um framtíð bæjarfélagsins og vill ólmur fá að leggja sitt af mörkum.

Galtómt Alþingi

Þegar þingmenn voru að yfirgefa Alþingi í nótt á leið í sumarfrí mættu rafvirkjar og smiðir til að losa borð og aftengja tölvur til að undirbúa framkvæmdir á Alþingissalnum í sumar.

Fyrsti vinningur gekk út

Fyrsti vinningur í Víkingalottóinu gekk út í kvöld. Það var heppinn spilari í Noregi sem hreppti vinninginn. Hann fær því rúmlega 213 milljónir króna í vasann.

Gömul Hitlers-vél í Reykjavík

Þriggja hreyfla þýsk Junkers-flugvél frá stríðsárunum, samskonar og Hitler notaði sem einkavél, lenti á Reykjavíkurflugvelli nú undir kvöld í sögulegum leiðangri yfir Atlantshaf.

Reiknar með að Einar "Boom" fari í skaðabótamál

Fyrrverandi forsprakki Vítisengla var sýknaður í dag af líkamsárásarákæru. Hann hefur setið í hálft ár í gæsluvarðhaldi. Fjórir aðrir voru sakfelldir í málinu og fékk sú sem þyngstan dóminn hlaut, fjögurra og hálfs árs fangelsi.

"Hennar hugsun var fyrst og fremst að bjarga pabba sínum"

"Lífið - frá upphafi til enda - það er það sem maður hugsar um." Þetta segir Jón Karl Jónsson en hann féll útbyrðis á Borgarfirði fyrr í vikunni ásamt dóttur sinni. Hrein heppni réði því að feðgingin björguðust. Þau höfðu rekið úr fjörðinn í þó nokkurn tíma áður en þeim var bjargað.

Andrea fékk þyngsta dóminn

Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn af þeim sem voru ákærðir fyrir árás á konu á höfuðborgarsvæðinu skömmu fyrir jól. Þetta er fullyrt á fréttavef DV, en heimildir Vísis herma það sama. Dómurinn, sem mun vera um 120 blaðsíður, hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna.

Sluppu með skrekkinn eftir bílveltu

Engin slys urðu á fólki þegar bíll valt í Lundarreykjadag fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi slapp fólkið með skrekkinn en bílinn fór á hvolf og hafnaði út í skurði.

Tekur tíma að fá viðtal hjá Stígamótum

Það getur tekið þó nokkurn tíma að fá viðtöl hjá Sígamótum. Anna Þóra Kristinsdóttir, starfskona Stígamóta, segir að biðin geti farið upp í tvær vikur í sumar vegna álags.

Solveig Lára vígslubiskup á Hólum

Solveig Lára Guðmundsdóttir verður vígslubiskup á Hólum, en atkvæði í síðar umferð kosninga til embættisins voru talin í dag. Tvö voru í kjöri í síðari umferð, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Atkvæði féllu þannig að sr. Kristján Björnsson fékk 70 atkvæði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fékk 96 atkvæði. Alls var 181 á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða 96 %. Þrjú atkvæði voru auð og fimm ógild.

Lögreglan leitar ökumanns sem stakk af

Ökumaður sem flúði vettvang þegar lögreglumaður féll af bifhjóli í gær er enn ófundinn. Lögreglan leitar vitna að atvikinu sem varð skömmu fyrir klukkan hálffjögur. Þar var lögreglumaður á bifhjóli að veita ökumanni á svörtu mótorhjóli eftirför. Lögreglumaðurinn, sem var á norðurleið, missti stjórn á hjólinu sínu á móts við Kópavogslæk og hafnaði utan vegar, austanmegin. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en reyndist ekki alvarlega slasaður.

Flestir treysta Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, nýtur meira fylgis en oddvitar allra hinna flokkanna í borginni. Könnunin var gerð af Capacent fyrir borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins.

Karlmaður bauð 7 ára stúlku upp í bíl

Karlmaður bauð 7 ára gamalli stúlku upp í bíl hjá sér í nágrenni Áslandsskóla í Hafnarfirði á mánudaginn var. Lögreglan í Hafnarfirði fékk málið til rannsóknar, fór á staðinn og tók skýrslu af stúlkunni.

Stefna að því að komast til Hafnar í dag

Slökkviliðsmennirnir sem lögðu af stað í hjólaferð hringinn í kringum landið á laugardagsmorgun stefna að því að komast til Hafnar í Hornafirði í dag. Slökkvilið Fjarðarbyggðar tók vel á móti þeim í gærkvöldi með 3 grilluð lambalæri og tilbúið gufubað sem kom sér vel því þó ferðin hafi almennt gengið að óskum er áreynslan gífurleg og upp hafa komið ýmis álagsmeiðsli.

Í vandræðum á skútu

Tveir menn lentu í vandræðum á skútu rétt undan Meðallandssandi rétt eftir klukkan tólf í dag. Björgunarveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suður- og Austurlandi og björgunarskipin á Höfn og Vestmannaeyjum voru kölluð út vegna skútu í vandræðum rétt undan Meðallandssandi. Skútan er með rifin segl en hefur þó einhverja stjórn.

Seifur er horfinn - frúin er miður sín

„Mig langar til þess að hvetja hvern þann sem veit um fuglinn eða hefur hann undir höndum að koma honum til skila," segir Jóhanna Björk Halldórsdóttir, eigandi páfagauksins Seifs sem hvarf aðfaranótt 17. júní, en talið er öruggt að einhver hafi tekinn hann ófrjálsri hendi. Hann er búsettur í dýragarðinum Slakka í Laugarási, skammt frá Skálholti, þaðan sem hann hvarf um helgina.

Fimmfaldur ræðukóngur segist sístur í málþófi

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, landaði titlinum ræðukóngur Alþingis í 5. sinn í röð þetta árið. Pétur talaði samtals í tæplega 33 klukkustundir og bætir þar með tímann sinn frá því í fyrra sem var 31 klukkustund og þrjú korter.

Sjá næstu 50 fréttir