Þrír opnaðir en engum lokað 21. júní 2012 06:30 Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, og hans fólk við samningsborðið í Brussel. Mynd/Ráðherraráð Evrópu
Formlegar viðræður hefjast um þrjá samningskafla á fimmtu ríkjaráðstefnu Íslands og ESB á föstudag. 15 kaflar hafa þegar verið opnaðir. Ólíklegt að köflum verði lokað. Átta kaflar opnir eftir ríkjaráðstefnuna.Hvað verður efst á baugi á ríkjaráðstefnu Íslands og ESB? Fimmta ríkjaráðstefnan í aðildarviðræðum Íslands við ESB verður haldin í Brussel á föstudag. Þessar ráðstefnur eru vettvangur formlegra viðræðna milli íslensku samninganefndarinnar og ESB og á þeim hefjast eiginlegar viðræður í hinum 33 málaflokkum tengdum löggjöf ESB, svokölluðum samningsköflum, en þar er samningsköflum einnig lokað ef samkomulag hefur náðst. Í millitíðinni hefur mikil vinna farið fram þar sem ESB útlistar annars vegar hvernig íslensk löggjöf samræmist ESB, og Ísland leggur fram samningsafstöðu sem í mörgum tilfellum inniheldur, eftir atvikum, óskir um sérlausnir eða aðlögunartíma. Mislangur tími getur liðið milli þess sem samningskafli er „opnaður“ þar til honum er lokað með samkomulagi, enda eru málaflokkar misjafnlega samrýmanlegir. Til dæmis heyra um tveir þriðju samningskafla að öllu eða nokkru leyti undir EES-samninginn, en það er þó ekki ávísun á skjótari afgreiðslu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu viðræður um þrjá samningskafla hefjast á föstudag. Það eru kaflarnir um flutningastarfsemi, félags- og vinnumál og fjárhagslegt eftirlit. Ekki er þó útlit fyrir að neinum köflum verði lokað að þessu sinni. Ef svo fer, hafa átján af samningsköflunum 33 verið opnaðir frá fyrstu ríkjaráðstefnunni í júní 2011 þegar efnislegar samningaviðræður hófust formlega. Þar af hefur tíu köflum verið lokað. Í samningsafstöðu Íslands um kaflann um flutningastarfsemi er beðið um undanþágur vegna hvíldartíma ökumanna hópbifreiða og einnig er þess óskað að Ísland þurfi ekki að taka upp sumartíma. Í kaflanum um félags- og vinnumál er ekki farið fram á sérlausnir eða undanþágur og einnig er fallist á að taka yfir regluverk ESB um fjárhagslegt eftirlit eins og það stóð á síðasta ári. Ekkert launungarmál er að þetta ferli hefur tekið lengri tíma en vonir íslenskra ráðamanna stóðu til. Fleiri kaflar standa út af og munar þá sérstaklega um veigamestu málaflokkana, til dæmis landbúnað, sjávarútveg og matvælaöryggi. Tafirnar má rekja til ýmissa þátta beggja vegna borðs. Til dæmis er enn beðið rýniskýrslu frá ESB um íslenskan sjávarútveg og þá er áætlun um breytingar á íslensku landbúnaðarkerfi, ef til aðildar kemur og með tilliti til niðurstöðu samninga, í vinnslu í íslensku stjórnsýslunni. Áætlunin ætti að liggja fyrir áður en langt um líður, en óljóst er hvenær rýniskýrslan um sjávarútveg verður tilbúin. Því er ekki ljóst hvenær hægt verður að hefja viðræður um þá kafla, en sjötta ríkjaráðstefnan verður haldin undir lok þessa árs.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjá meira