Innlent

Flugfélagið nú í farsímanum

Vefsíður Flugfélags Íslands eru nú virkar í snjallsímum. Á síðunum er hægt að bóka flug, sjá komur og brottfarir flugvéla og áætlun flugfélagsins. Einnig er hægt að skoða allar upplýsingar um vörur og þjónustu.

Farsímaútgáfan hentar vel fyrir flestar gerðir snjallsíma, Android, Iphone, Ipad og nýrri gerðir af Nokia og Blackberry. Vefslóðir Flugfélags Íslands í snjallsímum eru: m.flugfelag.is, m.airiceland.is og m.airiceland.dk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×