Innlent

Karlmaður bauð 7 ára stúlku upp í bíl

BBI skrifar
Karlmaður bauð 7 ára gamalli stúlku upp í bíl hjá sér í nágrenni Áslandsskóla í Hafnarfirði á mánudaginn var. Lögreglan í Hafnarfirði fékk málið til rannsóknar, fór á staðinn og tók skýrslu af stúlkunni.

Stúlkan brást hárrétt við, afþakkaði boðið og flýtti sér heim. Stúlkan gat að sögn lýst manninum nokkuð vel en Ólafur Emilsson, stöðvarstjóri í Hafnarfirði, telur engu að síður borna von að finna hann út frá þeirri lýsingu. „Það er ekkert annað að hafa, ekki númer á bíl og ekki neitt," sagði Ólafur.

Ólafur segir mikilvægt að fólk sé á varðbergi gagnvart boðum af þessum toga og brýnt sé fyrir börnum að afþakka þau. Lögregla fær fjölda svipaðra tilkynninga á borð til sín. Þeim er alltaf sinnt og það tekið inn í dagbók lögreglunnar. Þær leiða hins vegar sjaldnast til sérstakrar lögreglurannsóknar enda gjarna lítið til að styðjast við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×