Thick as a Brick flutt í heild sinni í Hörpu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 20. júní 2012 20:30
Ian Anderson, forsprakki hljómsveitarinnar Jethro Tull heldur tónleika í Hörpu í vikunni og flytur sitt frægasta verk í heild sinni. Anderson heldur tvenna tónleika í Eldborgarsalnum í Hörpu á morgun og hinn. Þar mun hann spila tímamótaverkið Thick as a Brick í heild sinni en það hefur hann ekki gert í fjörutíu ár. Það þurfti því að huga að ýmsu. „Til að mögulegt væri að endurskapa upphaflega verkið á trúverðugan hátt og svo spilum við framhaldið sem kom 40 árum síðar, Thick As a Brick II, sem er stórt stökk til ársins 2012," segir Anderson. Thick as a Brick segir sögu átta ára drengs, Geralds Bostocks og á nýju plötunni veltir Anderson fyrir sér hvað á daga hans hafi drifið. Hann segir að plöturnar tvær eigi ýmislegt sameiginlegt þrátt fyrir að fjörutíu ár skilji þær að. „Þær hafa svipaða þætti því ég vildi halda sama hljóðsviði, líkt og samfelldni frá 1972, svo ég valdi þessi klassísku hljóðfæri sem við notuðum á þeirri plötu, eins og Fender-djassbassa, Gibson Les Paul gítar, Hammond-orgel og eitt og annað, flautan er til dæmis ekki algeng í rokktónlist." Anderson er ekki að koma hingað til lands í fyrsta skiptið og hefur hann spilað hér nokkrum sinnum í gegnum árin. „Við erum alls ekki ókunnugir á Íslandi og í Reykjavík sérstaklega. Flestir í hljómsveitinni hafa komið hingað áður og þeir þekkja verstu barina í bænum," segir Anderson. Anderson þakkar öðrum Íslandsvini það að hann hafi ákveðið að taka upp þverflautuna sem hann er svo þekktur fyrir. Og eftir tæp fimmtíu ár í bransanum er hann langt því frá hættur. „Tónlistarmenn geta haldið áfram. Ef ég væri ökumaður í Formúlu 1 keppninni væri öllu lokið núna. Ég hefði drepið mig eða gæti allavega ekki unnið við það lengur. En sem tónlistarmaður, listamaður eða rithöfundur, þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að maður haldi áfram og verði skapandi, gamall maður."
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjá meira