Fleiri fréttir

Sjálfboðaliðar gera Þingvelli upp

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd munu vinna að endurbótum á göngustígum í Þingvallaþjóðgarði um Jónsmessuhelgina næstu helgi.

Reykvíkingur ársins veiddi Maríulaxinn í Elliðaánum

Theodóra Rafnsdóttir, Reykvíkingur ársins, landaði fyrsta laxinum úr Elliðaánum, eftir að veiðitímabilið hófst þar klukkan sjö í morgun. Sex punda laxinn beit á nánast strax eftir að beitan lenti á vatnsfletinum.

Mikil aukning í sjúkraflugi hjá Mýflugi

Sjúkraflugum Mýflugs til Grænlands fer fjölgandi og þannig sótti félagið tvo sjúklinga til Kulusuk í fyrradag og flutti þá á sjúkrahús í Reykjavík.

Kvartað undan öryggisvörðum Tom Cruise

Íslenskir öryggisverðir virðast fara offari í grennd við íverustað leikarans Toms Cruise að Hrafnabjörgum við Eyjafjörð, samkvæmt viðtölum DV við nokkra íbúa í grenndinni.

Assange vill hæli í Ekvador

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur sótt um pólitískt hæli í Ekvador og var í sendiráði landsins í London í gærkvöldi. Þetta sagði utanríkisráðherra Ekvadors, Ricardo Patino, við breska ríkisútvarpið.

Alþingi greiðir líkamsrækt fyrir þingmenn

Alþingismenn munu fá greiddan ýmsan kostnað, svo sem við kaup á gleraugum eða heyrnartækjum, krabbameinsleit, líkamsrækt og fleira, samkvæmt frumvarpi að nýjum þingskapalögum sem samþykkt voru í gærkvöld. Í greinargerð með frumvarpinu segir að alþingismenn fái með þessu rétt sem er sambærilegur rétti embættismanna. Jafnframt felur þetta ákvæði í sér rétt alþingismanna til fæðingarstyrks eins og á við um embættismenn. Er fyrirhugað að forsætisnefnd Alþingis setji nánari reglur um hann.

Skrásetja hundruð eyðibýla

Ljóst er að mörg hundruð eyðibýli eru á Íslandi. 103 yfirgefin hús voru skrásett og könnuð í fyrra og heldur verkefnið áfram í sumar. Alltaf að færast í aukana að fólk geri upp hús, segir forsvarsmaður verkefnisins.

Skýra þarf lagaheimildir LHG

Ríkisendurskoðun telur að komast þurfi skýrar að orði um það í lögum en nú er að Landhelgisgæslunni sé heimilt að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila. Innanríkisráðuneytið þurfi að fylgjast með því að umsvif stofnunarinnar erlendis komi ekki í veg fyrir að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu hér við land.

ÍLS sagður hlaupast frá samkomulagi

Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga sakar Íbúðalánasjóð um að standa ekki við samkomulag um niðurfellingu skulda Bolungarvíkur. Sjóðurinn segist ekki vera aðili samningsins. Bolungarvík krefst aðgerða innanríkisráðuneytis.

Grænt og blátt hagkerfi

Engar líkur eru á lagalega bindandi samkomulagi á ráðstefnu SÞ um sjálfbæra þróun sem hefst í dag. Tuttugu árum eftir loftslagsráðstefnuna í Ríó hefur útblástur gróðurhúsalofttegunda aldrei verið meiri.

Sex kærðir fyrir vörslu fíkniefna í nótt

Sex voru kærðir fyrir vörslu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þar af var einn farþegi í bíl, sem var stöðvaður þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Vélarbilun í tveimur strandveiðibátum

Vélarbilun varð í tveimur strandveiðibátum undir kvöld í gær. Annar var þá noðraustur af landinu og kom nálægur bátur bátsverjanum til hjálpar og dró bátinn inn til Bakkafjarðar.

Óvíst hvort Mubarak sé lífs eða liðinn

Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands liggur nú fyrir dauðanum á hersjúkrahúsi í Kaíró. Raunar hafa borist fréttir af því að Mubarak sé þegar látinn en þær hafa ekki fengist staðfestar.

Fordæmisgildi dóms gæti kostað milljarða

Dómur í máli Toyota gegn íslenska ríkinu í síðustu viku er fordæmisgefandi. Samkvæmt honum er vaxtakostnaður vegna öfugs samruna ekki frádráttarbær frá skatti. Tugir fyrirtækja hafa fengið sambærilega endurálagningu.

Gengur tíu sinnum á Esjuna

Gunnlaugur Júlíusson ætlar að fara tíu ferðir upp á topp Esjunnar og fagna þannig glæstum árangri Rótarýhreyfingarinnar í baráttunni gegn lömunarveiki í heiminum.

Veiðigjöld fara yfir 20 milljarða 2016/2017

Veiðigjöld munu skila ríkissjóði rúmlega 83 milljörðum króna á næstu fimm fiskveiðiárum, samkvæmt áætlun sjávarútvegsráðuneytisins. Strax á næsta fiskveiðiári, sem hefst 1. september, verða tekjurnar 12,8 milljarðar króna, en fiskveiðiárið 2016/2017 verða þær rúmir tuttugu milljarðar.

Fara langar leiðir til að sækja fisk á grillið

Fiskbúðin Sjávarkistan í Ólafsvík er eina fiskbúðin á Vesturlandi. Hún er aðeins rekin í þrjá mánuði á sumrin og verslar aðeins með fisk af Snæfellsnesinu. Sumarbústaðafólk leggur langa lykkju á leið sína til að komast í fiskbúð.

Eigendastefna um OR samþykkt

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti eigendastefnu fyrir Orkuveitu Reykjavíkur á fundi sínum í gær. Reykjavíkurborg á 94% hlut í fyrirtækinu en auk höfuðborgarinnar á Akranesbær fimm prósenta hlut og Borgarbyggð eitt prósent.

Bolungarvík krefst þess að ráðuneyti virði samninga

Bolungarvíkurkaupstaður hefur sent innanríkisráðuneytinu erindi og krafist niðurfellingar tugmilljóna skulda á félagslegu húsnæði. Samningur er til þar um. Íbúðalánasjóður hafnar niðurfellingunni.

Drasli fleygt við yfirgefna lóð

Nokkuð hefur borið á því að rusli og drasli sé fleygt við hlið gömlu starfsstöðvar Sorpu við Miðhraun í Garðabæ. Þar er engin starfsemi eins og stendur.Þegar ljósmyndara bar að garði síðdegis í gær stóð sófi á gangstéttinni við hliðið. Það er ekki fyrsta mublan sem þar hefur verið skilin eftir. Sorpa lokaði starfsstöðinni um áramótin 2009-2010 og hefur hún verið lokuð síðan. Þar er jafnframt skilti sem bendir rusleigendum á að ný starfsstöð Sorpu fyrir svæðið sé á Breiðhellu í Hafnarfirði.

Tugir milljarða í jarðgöng næstu árin

Alþingi gerði ýmsar breytingar á samgönguáætlun sem samþykkt var í gær. Norðfjarðargöngum verður flýtt og fé sett í rannsóknir á Seyðisfjarðargöngum. 2,3 milljarðar fara í nýjan Herjólf og Landeyjahöfn. Bora á fjölda jarðganga.

26 nýnemar við HÍ hljóta styrki

Afburðanemendum sem hefja nám við Háskóla Íslands næsta haust voru veittir styrkir að heildarupphæð 9,3 milljónir króna í gær. Alls hljóta 26 nemendur 300.000 króna styrki auk niðurfellingar á skráningargjöldum sem nema 60.000 krónum. Aldrei hafa styrkþegar verið fleiri í þau fimm skipti sem styrkirnir hafa verið veittir.

235.784 Íslendingar kjörbærir

Alls 235.784 Íslendingar hafa kosningarétt í komandi forsetakosningum. Hefur Íslendingum með kosningarétt fjölgað um 7.941, eða 3,5%, frá Alþingiskosningunum 2009.

Arion átti Pennann í 39 mánuði

Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka, seldi á mánudag Pennann á Íslandi ehf. til fjárfestahóps undir forystu Ingimars Jónssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóri Pennans. Hann starfaði hjá Pennanum þegar Gunnar Dungal átti hann, en Gunnar seldi Pennann í júní 2005.

Ráðuneytið leiðréttir laun

Innanríkisráðuneytið ætlar að leiðrétta kynbundinn launamun í ráðuneytinu. Við jafnlaunaúttekt kom í ljós 2,5 prósent óútskýrður launamunur meðal sérfræðinga ráðuneytisins.Ráðuneytið telur óviðunandi að konur og karlar njóti ekki sömu launa fyrir sömu störf. Þá fagnar ráðuneytið úttektinni sem gefur tækifæri til að leiðrétta þessa skekkju.

Aflaverðmæti fjórðungi meira

Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa nam 47,3 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Til samanburðar var aflaverðmæti 37,6 milljarðar á sama tímabili 2011. Verðmætið jókst því um fjórðung á milli ára.

Stærsta auga jarðar

Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli (ESO) mun byggja stærsta stjörnusjónauka jarðar á tindi Cerro Armazones-fjallsins í norðurhluta Síle, skammt frá Paranal stjörnustöð ESO, eins og fram kemur á stjörnufræðivefnum.

Fatasöfnun Rauða krossins hrundi eftir 2008

Fatagjafir til Rauða krossins drógust saman um tæp 45% eftir hrunið. Árið 2007 fékk Rauði krossinn 1.233 tonn af fötum gefins, en það var metár. Árið 2009 fengust aðeins 796 tonn.

Hvítá notuð til vökvunar

Þurrkar hafa verið miklir í sumar og hvað gera bændur þá? Við Hvítá hefur vökvunarbúnaði verið komið fyrir svo hægt sé að vökva grænmetisgarðana við bakka hennar með árvatninu, dag og nótt.

Tímamót á kvenréttindadegi

Tímamótastaðall um launajafnrétti kynjanna var kynntur í morgun, hann á að tryggja launajafnrétti innan hvers vinnustaðar. Velferðarráðherra segir þetta reynt í fyrsta skipti í heiminum hér á landi.

Íhuga að örmerkja hnakka

"Menn standa náttúrulega ávallt ráðþrota fyrir því þegar farið er með skipulögðum hætti að eigum þeirra,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamanna.

Hallgrímskirkja ein fallegasta kirkja heims

Hallgrímskirkja er í öðru sæti á lista danska blaðsins Politiken yfir fallegustu kirkjur heims. Hallgrímskirkja fylgir fast á hæla Saint-Michel d'Aiguilhe í Frakklandi. Í umsögn um Hallgrímskirkju segir að hún sé 74 metra há og að Guðjón Samúelsson arkitekt hafi sótt mikinn innblástur í íslenska náttúru. Frá turninum sé hægt að sjá yfir höfuðborgina og til nágrannasveitarfélaganna.

Vélhjólið komið á þurrt land

Lögregluhjólið sem féll í Kópavogslæk fyrr í dag er komið á þurrt land. Lögreglumaðurinn sem féll af vélhjólinu kenndi sér eymsl í öxl en hann var að veita öðrum bifhjólamanni eftirför.

Veistu um Fífí?

Tíkin Fía Sól, kölluð Fífi, og er 8 ára gömul silki terrier hvarf frá Hjaltabakka 2 í Breiðholti þar sem hún var í pössun á þriðjudaginn í síðustu viku og ekkert hefur til hennar spurst. Fífí býr, ásamt eiganda sínum, í Grafarvogi. Eigandinn, sem er eldri kona hefur vart getað fest svefn eftir að Fía hvarf og unir sér ekki hvíldar fyrr en hún veit hvar Fía er niðurkomin. Sá sem getur veitt upplýsingar um afdrif hundsins er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við eigandann í síma 899-0418.

Margir fóru í Bláa lónið

Það þurfti ríflega hundrað rútur, á þriðja tug jeppa, báta og flugvélar til að koma farþegum skemmtiferðaskipa í ferðir á Suðurlandi í gær á einum annasamasta degi ársins í ferðaþjónustu.

Telja lögreglumenn hafa haft beina persónulega hagsmuni af rannsókn

Verjendur telja að lögreglumenn sem rannsökuðu Vafningsmálið svokallaða hafi verið vanhæfir til að rannsaka það þar sem þeir höfðu sjálfir beina fjárhagslega hagsmuni af því að rannsókn myndi leiða til ákæru og af þeim sökum beri að vísa málinu frá. Tekist verður um kröfu þeirra um frávísun í lok þessa mánaðar.

Ríkislögreglustjóri ræður jafnréttisfulltrúa

Ríkislögreglustjóri hefur skipað Katrínu Salimu Dögg Ólafsdóttur, verkefnastjóra í mannauðs- og tölfræðideild ríkislögreglustjóra, sem jafnréttisfulltrúa lögreglunnar til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Sjá næstu 50 fréttir