Innlent

Eldur í ruslagámi undir fjölbýlishúsi

Eldur var kveiktur í plastruslagámi í bílageymslu undir fjölbýlishúsi í Hamraborg í Kópavogi um þrjú leitið í nótt. Slökkviliðið var kallað á vettvang og slökkti eldinn, en þá var gámurinn ónýtur.

Ekki hlutust aðrar skemmdir af, og þar sem geymslan er opin í að minnsta kosti tvær áttir, þurfti ekki að reykræsta. Ekki er viðtað hver eða hverjir voru þarna að verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×