Galtómt Alþingi Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 20. júní 2012 20:00
Þegar þingmenn voru að yfirgefa Alþingi í nótt á leið í sumarfrí mættu rafvirkjar og smiðir til að losa borð og aftengja tölvur til að undirbúa framkvæmdir á Alþingissalnum í sumar. Það var heldur tómlegt um að litast í sal Alþingis fyrir hádegi í dag. Búið var að fjarlægja alla stóla úr salnum og smiðir, rafvirkjar og burðarmenn höfðu í nægu að snúast við að aftengja og flytja borð þingmanna í burtu . Um leið og og þingfundi var lokið komu fyrstu menn til að aftengja tæki, þetta gerum við á fjögurra ára fresti því forseti Íslands er settur inn hérna í salnum 1. ágúst. Þá höfum við tækifæri til að gera salnum ýmislegt til góða," Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. Í sumar verður gólfið tekið í gegn og því þarf að flytja öll húsgögn í burtu á meðan. Helgi segir að framkvæmdir hafi frestast aðeins þar sem þinglok voru seinna en gert var ráð fyrir svo menn þurfa að hafa hraðar hendur. Á ekkert að halda ball svona í millitíðinni? „Nei, en ég er ekki frá því að hér yrði ágætur ballstaður. Það er mjög gott hljóð í salnum og svo hugsa ég að það væri hægt að slá hér upp balli og dansa. Það væri örugglega meiri gleði í því en er í þingsalnum annars. Alþingissalurinn virðist vera ágætlega stór í sjónvarpinu en í raun er hann einungis rúmur 91 fermetri sem gerir minna en 1 og hálfan fermetra fyrir hvern þingmann sem þar situr. Fyrir innsetningu forseta Íslands þarf að koma miklum fjölda gesta fyrir í salnum auk kórs og hljómsveitar. „Það er borð hér í salnum fyrir forseta. Hann og kona hans eða karlmaður ef því er að skipta, þá fara þau út á svalir og síðan er hérna svolítil athöfn hér á eftir inni í þinghúsinu. Margar hendur vinna létt verk og eftir einungis nokkrar klukkustundir var salurinn sem við þekkjum oftast svona, orðinn galtómur, en hann eins og þingmenn fær leyfi frá þingstörfum til 11.september.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Sjá meira