Innlent

Eldur laus í nýbyggingu við Bergstaðastræti

Að ganga klukkan fjögur í nótt logaði eldur í stigahúsi nýbyggingar við Bergstaðastræti. Borgari sem átti leið hjá gerði lögreglu viðvart og gerði tilraun til að slökkva eldinn með vatnsfötu og náði þannig að tefja útbreiðslu eldsins þar til lögregla og slökkvilið kom á vettvang.

Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins réði niðurlögum eldsins. Einhver reykur hafði þá náð að komast í íbúðir í nágrenni en ekkert teljandi tjón varð, ekki síst framangreindum borgara að þakka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×