Innlent

Flestir treysta Hönnu Birnu

BBI skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, nýtur meira fylgis en oddvitar allra hinna flokkanna í borginni. Könnunin var gerð af Capacent fyrir borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins.

52% borgarbúa treysta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur best af oddvitum í borgarstjórn. Næstur í röðinni er Dagur B. Eggertsson með 23,6% á bak við sig. Loks treysta 19,5% Jóni Gnarr best og aðeins 5,1% Sóleyju Tómasdóttur.

Fylgi oddvita stjórnarflokkanna.Mynd/Capacent
Í sömu könnun var spurt um fylgi flokkanna en þar var Sjálfstæðisflokkurinn með afgerandi forystu. Fylgið skiptist svona:

Sjálfstæðisflokkur 43%

Besti flokkurinn 23%

Samfylkingin 19%

Vinstri græn 8%

Framsókn 3%

Annan flokk 4%

Skýrslan var sem áður segir gerð að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins. Í úrtakinu voru 1500 einstaklingar, 77% tóku afstöðu í spurningu um fylgi flokkana og 75% í spurningu um traust til oddvita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×