Innlent

Andrea fékk þyngsta dóminn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn.
Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn.
Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn af þeim sem voru ákærðir fyrir árás á konu á höfuðborgarsvæðinu skömmu fyrir jól. Þetta er fullyrt á fréttavef DV, en heimildir Vísis herma það sama. Dómurinn, sem mun vera um 120 blaðsíður, hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna. Það var Héraðsdómur Reykjaness sem kvað dóminn upp í dag.

Jón Ólafsson, sem er kærasti Andreu, fékk fjögurra ára dóm og Elías Jónsson fékk einnig fjögurra ára dóm og Óttar Gunnarsson var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Einar Marteinsson, fyrrverandi forseti Vítisengla, var sýknaður og sjötti maður var einnig sýknaður.

Einar Marteinsson íhugar að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu, en hann sat í gæsluvarðhaldi í rúma sex mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×