Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rotaður svartbjörn féll í faðm lögreglumanna Lögreglumenn í bænum Conway í Arkansas þurftu að leita óhefðbundinna ráða þegar svartbjörn klifraði upp í tré í miðjum bænum og neitaði að koma niður. 2.5.2012 22:30
ESA stefnir á tungl Júpíters Geimferðastofnun Evrópu (ESA) mun standa fyrir einu metnaðarfyllsta geimverkefni síðustu ára. Stofnunin mun skjóta könnunarflaug á loft árið 2022 en henni er ætlað rannsaka tungl Júpíters. 2.5.2012 23:30
Svona á að viðhalda ástarneistanum Heilræði aldraðra hjóna í Bandaríkjunum til sonarsonar síns hafa vakið mikla athygli á veraldarvefnum. Í myndbandinu útlista hjónin hvernig eigi að viðhalda ástinni í löngum hjónaböndum. 2.5.2012 23:00
Umhverfisstofnun svarar fyrir sig Umhverfisstofnun segir það ekki rétt sem haldið var fram í fréttum Stöðvar 2 og hér á Vísi í kvöld að stofnunin hafi sent Nesskel reikning vegna afturköllunar áminningar og afsökunarbeiðni. 2.5.2012 22:34
Sökuð um að hafa farið með fimm ára dóttur í ljósabekk Bandarísk kona er sökuð um að hafa stefnt lífi fimm ára dóttur sinnar í hættu eftir að hún setti hana í ljósabekk. 2.5.2012 22:00
Ofbeldisfullur svanur fjarlægður í kjölfar árása Ofbeldisfullur álftarsteggur var fjarlægður úr á sinni í Bretlandi í morgun. Svanurinn, sem hefur fengið nafnið Herra Asbo, hefur hrellt ræðara undanfarnar vikur. 2.5.2012 21:30
Slógu mann ítrekað með járnröri Rösklega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa, ásamt félaga sínum, veist að mann og slegið hann í hnéð með járnröri þannig að hann féll í jörðina. Síðan slógu þeir manninn nokkrum höggum í höfuðið með járnröri þar sem hann lá í jörðinni. Maðurinn hlaut þrjá skurði í höfuðið og tognun og ofreynslu á hægra hné. Árásin átti sér stað í fjölbýlishúsi að Áflaskeiði í Hafnarfirði í júlí í fyrra. 2.5.2012 19:57
Lögreglumaður ber vitni gegn Vítisenglum Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkissaksóknara sé hemilt að leiða lögreglumann sem skrifaði skýrslu um starfsemi vélhjólasamtakanna Vítisengla sem vitni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í máli sem ríkissaksóknari hefur höfðað gegn sex einstaklingum sem allir tengjast vélhjólasamtökunum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki mætti leiða lögreglumanninn sem vitni fyrir dóminn. 2.5.2012 19:45
Þyrlan fer í fyrramálið að sækja rússneska sjúklinginn Þyrla Landhelgisgæslunnar mun fara í loftið klukkan fimm í fyrramálið til þess að sækja sjómann á rússneskum togara sem veiktist þegar skipið var um 260 sjómílum frá Reykjavík. Aðstoðarbeiðni barst um klukkan hálfþrjú í dag vegna mannsins. 2.5.2012 18:52
Auðveldara að verða forseti N-Kóreu en ASÍ Það er auðveldara að verða forseti Norður-Kóreu en ASÍ, segir Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness. Í samtali við Reykjavík síðdegis í dag sagðist Vilhjálmur hafa verið að skoða þann möguleika að leggja fram tillögu um lagabreytingar á ársfundi Alþýðusambands Íslands. Með breytingunum hefði forseti alþýðusambandsins gríðarlega stórt bakland vegna þess að hann yrði kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu á meðal allra félagsmanna innan ASÍ en ekki á ársfundi eins og núna. 2.5.2012 20:41
Kostnaður vegna Herjólfs lækkar um 60 milljónir Áætlað er að kostnaður ríkisins vegna rekstrar Herjólfs á næstunni verði nokkuð lægri en hann var í fyrra, samkvæmt nýjum samningi sem gerður hefur verið. Samningurinn nær til áranna 2012 - 2014. Styrkur Vegagerðarinnar til rekstrar Herjólfs var 740 milljónir króna en hann verður 681 milljón á ári samkvæmt nýja samningnum. 2.5.2012 19:19
Fullyrt að Nubo muni leigja Grímsstaði Hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi munu kaupa 70% hlut í Grímsstöðum á Fjöllum og leigja það kínverska fjárfestinum Huang Nubo til fjörutíu ára. Þetta hefur fréttastofa RÚV eftir heimildarmönnum sínum. RÚV segir að Nubo muni greiða leiguna fyrirfram og þannig verði kaupin fjármögnuð. 2.5.2012 18:07
Veikur sjómaður þarf aðstoð Landhelgisgæslunni barst aðstoð um hjálp frá rússneskum togara nú síðdegis. Um borð er rússneskur sjómaður sem mun vera veikur. Landhelgisgæslan gaf þær upplýsingar að skipið væri fyrir utan 200 sjómílur og því nokkuð langt að sækja hann. 2.5.2012 17:47
Sumarbústaður stórskemmdist í bruna Sumarbústaður í Efstadalsskógi í Laugardal í Bláskógabyggð stórskemmdist í bruna nú síðdegis. Allt tiltækt slökkvilið frá Reykholti og Laugarvatni var kallað á staðinn, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum dfs. Að auki var sjúkra- og lögreglulið sent frá Selfossi. 2.5.2012 17:12
Öryggisráðið þrýstir á yfirvöld í Súdan og Suður-Súdan Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í dag ályktun þar sem Súdan og Suður-Súdan er gert að hætta stríðsátökum á næstu tveimur sólarhringum, ellegar verður refsiaðgerðum beitt gegn löndunum. 2.5.2012 16:44
Kræklingarækt rædd á þingi: "Frétt Stöðvar 2 var sláandi“ Þingmennirnir Unnur Brá Konráðsdóttir og Kristján L. Möller lýstu því bæði yfir í þingsal í dag að reglugerðarfarganið sem einkenni kræklingarækt hér á landi beri að endurskoða hið snarasta. Stöð 2 hefur undanfarið fjallað um málið en til þess að hefja kræklingaeldi, sem er í eðli sínu einfalt í sniðum, þarf að sækja um leyfi og fá umsagnir hjá fjölda aðila og stofnana. 2.5.2012 15:50
Pétur Blöndal: Siðlausir vildarpunktar Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að vildarpunkta flugfélaga vera ósiðlega. Pétur vekur athygli á málinu á Facebook-síðu sinni. 2.5.2012 15:29
Njósnaskip úr Tomorrow Never Dies á uppboði Bandaríski sjóherinn stendur nú fyrir uppboði á sögufræga njósnaskipinu Sea Shadow. Ásamt því að hafa sinnt upplýsingaöflun fyrir hernaðaryfirvöld síðustu ár var skipið einnig innblástur Bond kvikmyndarinnar Tomorror Never Dies. 2.5.2012 15:20
Hefur þú séð rauðan bíl með númerið AX-599? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir rauðum Peugeot 307 með skráningarnúmerið AX-599 en bílnum var stolið frá bifreiðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi um þar síðustu helgi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 2.5.2012 14:50
Ísland mótmælir tillögu um heimild til refsiaðgerða Íslendingar mótmæltu formlega í dag fyrirliggjandi tillögu ESB um reglugerðarheimild til að beita viðskiptaaðgerðum gegn ríkjum sem stundi ósjálfbærar firskveiðar. Yfirlýsing þessa efnis var lesin á fundi Sameiginlegu EES nefndarinnar sem fram fór í dag. Í yfirlýsingu Íslands eru ítrekuð sú afstaða að efni reglugerðarinnar brjóti í bága við alþjóðalög og EES samninginn. 2.5.2012 14:40
Íslenskir kokkar settu heimsmet Íslenskir matreiðslumeistarar tóku þátt í að setja heimsmet í Suður Kóreu í morgun. Metið var sett í borginni Daejoeon þegar 2.111 matreiðslumenn komu saman en það mun vera mesti fjöldi matreiðslumanna á einum stað í sögunni. 2.5.2012 14:29
Lokanir á Reykjanesbraut Vinstri akrein suðurleiðar á Reykjanesbraut, á milli Hnoðraholts og Vífilsstaðarvegar verður lokuð í dag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að unnið sé að uppsetningu vegriðs á vegarkaflanum og því þurfi að loka á meðan á vinnu stendur. 2.5.2012 14:15
Uppteknir foreldrar vanrækja börn sín Foreldrar eru oft svo uppteknir af sjálfum sér og eigin vandamálum að þeir vanrækja samskipti við börn sín. Börn geta til dæmis búið við efnahagslegt öryggi en ekki fengið þau tilfinningalegu tengsl sem þau þurfa. Tilfinningaleg vanræksla getur leitt til þess að börnin þroskast seinna á ýmsum sviðum en önnur börn. Afleiðingarnar geta orðið alvarlegar og keðjuverkunin óheillavænleg. 2.5.2012 13:30
Íslenskir unglingar ánægðir með líf sitt Íslenskir unglingar eru með þeim ánægðustu í heimi. Um 95 prósent unglinga hér á landi segjast ánægðir með líf sitt, samkvæmt niðurstöðum nýrrar, alþjóðlegrar rannsóknar sem birt verður í dag. 2.5.2012 13:00
Vill innheimta peninga sem Kópavogsbær varð af vegna sérkjara Guðrún Pálsdóttir, sem lét af embætti bæjarstjóra í Kópavogi í febrúar, fékk í tíð sinni sem fjármálastjóri hjá bæjarfélaginu hagstæðari vaxtarkjör en aðrir vegna einbýlishúsalóðar auk þess sem hún fékk vaxtalaus lán fyrir gatnagerðargjöldum. 2.5.2012 12:48
Mótmælendur myrtir í Kaíró Að minnsta kosti 11 létust þegar óþekktir vígamenn réðust gegn mótmælendum í Kaíró í dag. Mótmælendurnir voru samankomnir fyrir utan varnarmálaráðuneyti Egyptalands þegar atvikið átti sér stað. 2.5.2012 12:42
Lögreglumenn neyðast til að borga sjálfir fyrir varnarbúnað Þriðjungur lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu telur sig skorta öryggis eða varnarbúnað við störf. Lögreglumenn hafa neyðst til að fjárfesta sjálfir í slíkum búnaði. 2.5.2012 12:12
Chen yfirgefur sendiráðið í Peking Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hefur yfirgefið bandaríska sendiráðið í Peking. Hann hefur haldið þar til síðan hann slapp úr fangelsi í síðustu viku. 2.5.2012 11:35
Mikið áfall að missa góðan vin „Það var mikið áfall að heyra af þessu. Ég talaði við hann á laugardaginn og þá lét hann vel af sér,“ segir sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson. 2.5.2012 11:00
Ferðamenn stálu mörgæs úr dýragarði Tveir ferðalangar frá Wales í Bretlandi hafa verið sektaðir um 650 pund eftir að þeir stálu mörgæs úr ástrálskum dýragarði. 2.5.2012 10:28
Búið að hreinsa Vísi Tæknimenn Vísis og hýsingaraðilans Advania hafa nú fundið og hreinsað út kóða á síðunni sem óprúttnir aðilar komu fyrir í nótt. 2.5.2012 10:05
Fjármálastjóri í Kópavogi á sérkjörum við lóðakaup Guðrún Pálsdóttir, sem lét af störfum sem bæjarstjóri Kópavogs í febrúar, naut í tíð sinni sem fjármálastjóri bæjarins sérkjara umfram aðra við lóðakaup. 2.5.2012 09:00
Fyrrum FBI maður leitar að Lagarfljótsorminum Bandarískt kvikmyndatökulið á vegum NBC sjónvarpsstöðvarinnar var við tökur í Fljótsdal í síðustu viku við leit að Lagarfljótsorminum. Stjórnandi hópsins er fyrrum sérsveitarmaður úr bandarísku alríkislögreglunni FBI. 2.5.2012 08:30
Atvinnuþátttaka dróst lítillega saman Á fyrsta ársfjórðungi ársins voru að jafnaði 176.200 manns á vinnumarkaði og fjölgaði um 300 einstaklinga frá sama tímabili í fyrra. Jafngildir þetta 78,8 prósent atvinnuþátttöku en hún var 79,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2011. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri umfjöllun Hagstofunnar um stöðu mála á vinnumarkaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. 2.5.2012 08:00
Lögreglan stöðvaði tónleika í Fælledparken, 12 á sjúkrahús Lögreglan í Kaupmannahöfn neyddist til þess að stöðva tónleika í Fælledparken í gærkvöldi eftir að 12 gestir á þeim voru lagðir inn á Rigshospitalet vegna þess að þeir höfðu tekið of stóra skammta af eiturlyfjum. 2.5.2012 07:41
Reynt að draga úr drykkju breskra þingmanna Reyna á að draga úr mikilli áfengisneyslu breskra þingmanna á börum þinghússins í Westminster. 2.5.2012 06:51
Yfir 500 bátar komnir á strandveiðar Smábátar umhverfis allt land hafa streymt út til veiða frá því undir morgun, en í dag er fyrsti veiðidagur strandveiðiflotans í sumar. 2.5.2012 06:47
Margir teknir fyrir of hraðan akstur fyrir austan fjall Lögreglan á Selfossi stöðvaði tíu ökumenn á Hellsiheiði í gær og gærkvöldi, og mældist sá sem hraðast fór, á 134 kílómetra hraða. 2.5.2012 06:45
Ákvörðun Le Pen mikið áfall fyrir Sarkozy Sú ákvörðun Marine Le Pen leiðtoga Þjóðarfylkingarinnar í Frakklandi að lýsa því yfir að hún myndi skila auðu í seinni umferð forsetakosninganna um næstu helgi er talin mikið áfall fyrir Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta. 2.5.2012 06:43
Stálu léttvíni frá Kaffi Flóru í nótt Brotist var inn í Kaffi Flóru í Grasagarinum í Laugadal í Reykjavík í nótt og stolið þaðan 23 léttvínsflöskum. 2.5.2012 06:42
Obama í óvæntri heimsókn í Afganistan Barack Obama Bandaríkjaforseti kom í óvænta heimsókn til Kabul í Afganistan í gærkvöldi. 2.5.2012 06:40
Heimaey að komast í gegnum Panamaskurðinn Nýja fjölveiðiskipið Heimaey, sem smíðað var í Chile, var undir morgun um það bil að komast í gegn um Panamaskurðinn og yfir á Atlantshafið. 2.5.2012 06:38
Gingrich hættir formlega við framboð sitt í dag Newt Gingrich mun lýsa því yfir formlega í dag að hann sé hættur að sækjast eftir útnefningu Repúblikanaflokksins sem forsetaefni hans. 2.5.2012 06:36
Yfirtökum Wall Street mótmælti víða í Bandaríkjunum Mómælahreyfingin Yfirtökum Wall Street efndi til útifunda í mörgum stórborgum Bandaríkjanna í gærdag þar á meðal New York og Washington. 2.5.2012 06:35
Rannsaka hvað varð um muni úr einvígi aldarinnar Skáksamband Íslands ætlar að skipa nefnd sem á að rannsaka hvað varð um muni, tengda svonefndu einvígi aldarinnar, þegar Boris Spassky og Bobby Fischer telfdu um heimsmeistaratitilinn í skák í Laugadalshöll árið 1972. 2.5.2012 06:32