Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ökumaður í gallabuxum missti stjórn á hjóli sínu Ökumaður bifhjóls datt af hjóli sínu á Breiðholtsbrautinni um klukkan sjö í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ökumaðurinn einungis klæddur í gallabuxur og með mótorkrosshjálm á hausnum. Hann slapp tiltölulega vel frá slysinu, miðað við aðbúnað og aðstæður. Breiðholtsbrautin var lokuð um tíma. 1.5.2012 19:30
"Sköpum fleiri störf, stöndum saman og höldum áfram" Launamenn kröfðust jöfnuðar og raunverulegra lausna við endurskipulagningu samfélagsins á fjölmennum útifundi í Reykjavík í dag í tilefni baráttudags verkalýðsins. 1.5.2012 19:21
Á rúmlega 160 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni Lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu í dag ökumann sem ók bifreið sinni á 163 km/klst hraða á Reykjanesbraut en þar er hámarkshraði 90 km/klst. Samkvæmt reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum er sektarfjárhæðin við broti ökumannsins 140.000 krónur. 1.5.2012 18:52
Hyggst vera með 193 þúsund krónur á mánuði sem forseti Andrea J. Ólafsdóttir tilkynnti formlega um framboð sitt til embættis forseta Íslands á blaðamannafundi í Norræna húsinu klukkan rúmlega fjögur í dag. 1.5.2012 17:22
Myndir frá hátíðarhöldum í miðbænum Fjöldi fólks kom saman í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Fjölmenn skrúðganga gekk frá horni Snorrabrautar og Laugavegs klukkan hálf tvö. Gengið var niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Útifundur var svo á Ingólfstorgi þar sem nokkrir ræðumenn tóku til máls. Hátíðarsamkomur og kaffisamsæti eru á að minnsta kosti 38 stöðum á landinu. 1.5.2012 16:05
Eitt ár frá því Bin Laden var drepinn Eitt ár er síðan Osama Bin Laden var drepinn af bandarískum sérsveitarmönnum í Pakistan. Mörgum kom á óvart að Bin Laden hefði alls ekki verið í felum í helli, heldur búið í veglegu stórhýsi ásamt fjölskyldu sinni. Bandaríkjamenn óskuðu því eftir svörum um hvort yfirvöld í Pakistan hefðu haldið hlífiskildi yfir Bin Laden. CBS fréttastofan greinir frá því í dag að enn hafi engin svör borist, og að þessi skortur á svörum hafi í raun eitrað samskipti milli yfirvalda landanna tveggja. 1.5.2012 14:22
Svona er dagskráin um allt land í dag Baráttudagur verkalýðsins, 1.maí, er í dag, af því tilefni eru hátíðarsamkomur og kaffisamsæti á að minnsta kosti 38 stöðum á landinu. Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi klukkan eitt og leggur kröfuganga af stað klukkan hálf tvö, göngunni lýkur á Ingólfstorgi þar sem útifundur hefst klukkan tíu mínútur yfir tvö. 1.5.2012 09:34
Ný lög ætti frekar að kalla lög um bann við skeldýrarækt Nýleg lög um skeldýrarækt ætti frekar að kalla lög um bann við skeldýrarækt. Þetta segir formaður Samtaka atvinnulífsins sem gagnrýnir þann frumskóg eftirlitsaðila og stofnana sem komast þarf í gegn um til að hefja ræktun kræklinga. 1.5.2012 15:00
Sóttu veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómanna um borð í skip rétt úti við Grímsey í morgun. Þyrlan lenti með manninn skömmu eftir hádegi og var hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi, samkvæmt upplýsingum frá gæslunni. Ekki er vitað um líðan hans. 1.5.2012 14:33
800 bifhjól á Laugavegi - Vítisenglar aftast í röðina Yfir átta hundruð ökumenn bifhjóla söfnuðust saman í hópkeyrslu í miðbæ Reykjavíkur í dag. Röðin náði frá Bankastræti og upp fyrir Hlemm. Vítisenglar á Íslandi röðuðu sér hinsvegar á Skólavörðustíginn en ekki á Laugaveginn eins og aðrir ökumenn. 1.5.2012 14:13
12 ára og yngri mega vera úti til 22 Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00. 1.5.2012 14:00
Breytingar á Veiðivísi Aukinn kraftur verður settur í umfjöllun um veiði á Veiðivísi frá og með deginum í dag. Fjórir blaðamenn hafa verið fengnir til að sinna vefnum. Þetta eru þeir Garðar Örn Úlfarsson (gar@frettabladid.is), Kristján Hjálmarsson (kristjan@frettabladid.is), Svavar Hávarðsson (svavar@frettabladid.is) og Trausti Hafliðason (trausti@frettabladid.is). 1.5.2012 14:00
Til skoðunar að taka Star Trek upp á Íslandi Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar. Ef að líkum lætur mun íslenska framleiðslufyrirtækið Saga Film hafa umsjón með tökunum hérlendis. Þegar samband var haft við Saga Film vildi Kristinn Þórðarson framleiðandi ekki tjá sig um málið. 1.5.2012 14:00
Átján milljarða sveifla milli ára Reykjavíkurborgar er um 4,7 milljörðum lakari en fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 sagði til um. Þá er sveiflan frá síðasta ári neikvæð er nemur um 18 milljörðum króna. 1.5.2012 13:30
Þingmaður undrandi Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni mun fara fram í haust samkvæmt breytingartillögu sem lögð var fram á Alþingi í gær. Þingmaður minnihlutans undrast hversu langan tíma það tók að taka ákvörðun um feril málsins. 1.5.2012 13:00
Brýnasta verkefnið að halda atvinnustiginu uppi Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands segir í fyrsta maí ávarpi sínu að brýnasta verkefni stjórnvalda sé að halda atvinnustiginu uppi. 1.5.2012 12:06
Femínistafélagið: Kjör kvenna hafa versnað Femínistafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun í tilefni dagsins, 1. maí, en þar segir að launamunur kynjanna sé viðvarandi og kjör kvenna hafi versnað. Áhrif kreppunnar ógni þeim ávinningi sem kynslóðir kvenna hafi barist fyrir. Þá krefst félagið þess að jafnrétti og mannréttindi verði skilyrðislaust virt í íslensku samfélagi. 1.5.2012 11:38
Grunsamleg taska í ruslafötu Helle Thorning Schmidts, forsætisráðherra Danmerkur, átti að flytja ræðu í Flakhaven í Óðinsvéum í morgun í tilefni af verkalýðsdeginum 1. maí. Stuttu áður en forsætisráðherran kom á staðinn fékk lögregla tilkynningu um að maður hefði sést setja grunsamlega tösku í ruslatunnu skammt frá höfninni og flýja af vettvangi á skellinöðru. Af öryggisástæðum var ákveðið að flytja ræðuhöldin á annan stað, nánar tiltekið á Eventyrhaven, á meðan lögreglan rannsakar töskuna. 1.5.2012 11:14
Dani skammar Íslendinga - gefið stefnuljós Hin danska Rikke Arnes sendi fréttastofu skeyti í morgunsárið undir fyrirsögninni "Ferðamannastaðurinn Ísland“. Rikke sem segist vera mikill aðdáandi bæði lands og þjóðar furðar sig á því hversvegna ekkert sé skrifað um íslenska bílamenningu í kynningarbæklinga um landið. Hann segist aldrei vita hvert bílarnir ætla að fara og aldrei hafi hann kynnst þjóð sem "spari" jafn mikið stefnuljósið og íslendingar. 1.5.2012 11:03
1. maí haldinn hátíðlegur um allan heim Fyrsti maí er haldinn hátíðlegur um allan heim og hafa mótmælafundir og kröfugöngu nú þegar farið fram í Asíu en í Hong Kong kröfðust um 5 þúsund verkamenn hærri lágmarkslauna. 1.5.2012 10:51
Kom í heiminn á heimili sínu Lítið stúlkubarn var aldeilis að flýta sér í heiminn í nótt og gaf ekki einu sinni foreldrum sínum tækifæri til að komast upp á fæðingardeild. 1.5.2012 09:49
Ofsaakstur á Sæbraut - á tvöföldum hámarkshraða Tuttugu og tveggja ára gamall ökumaður var stöðvaður við akstur bifreiðar á Sæbraut um klukkan tíu í gærkvöldi. Bifreið hans mældist á 147 kílómetrahraða á klukkustund en á Sæbrautinni er hámarkshraði 60 km/klst. Má úr því lesa að ökumaðurinn hafi ekið á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Hann var sviptur ökuréttindum sínum vegna ofsakstursins og bíður nú ákæru og dóms vegna málsins. 1.5.2012 09:27
Pústrar í miðbænum Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn ökumaður var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkninefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Nóttin var annars róleg hjá lögreglu en þó var eitthvað um pústra í miðbænum, en ekkert alvarlegt, að sögn lögreglu. 1.5.2012 09:22
"Sælgæti“ fyrir máva stráð á velli í Kópavogi "Munurinn liggur í því að kjötmjölið er kögglað núna en var meira duft í fyrra. Þá er þetta eins og ég sé að dreifa sælgæti á völlinn,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi og forstöðumaður íþróttavalla í Kópavogsbæ um mávaplágu á íþróttavöllum bæjarins. 1.5.2012 08:00
Björgólfi meinað að rífa aðalstigann Hvorki Húsafriðunarnefnd né borgarminjavörður telja koma til greina að heimila niðurrif aðalstigans í hinu sögufræga húsi Fríkirkjuvegi 11. Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar sem keypti húsið fyrir hrun, vill gera breytingar á innra skipulagi þess. Við fyrri endurbætur sem borgin stóð fyrir á húsinu var leitast við að færa það í upprunalegt horf að innan sem utan. Ytra byrði hússins var friðað 1978. 1.5.2012 07:00
Vinnuveitendur komi til móts við barnafjölskyldur Reykjavíkurborg vill uppbyggilegt samstarf við atvinnulífið um hvernig best verður komið til móts við þarfir barnafólks. Þetta segir Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs. Samtök atvinnulífsins (SA) hafa gagnrýnt fjölgun starfsdaga á leikskólum borgarinnar og segja hana bitna á foreldrum og vinnustöðum þeirra. 1.5.2012 06:00
Fylgi nýnasista vex hratt Samkvæmt skoðanakönnunum gætu þingkosningarnar í Grikklandi, sem haldnar verða um næstu helgi, skilað Gylltri dögun, litlum flokki þjóðernisöfgamanna, um það bil fimm prósentum atkvæða. Það er vel yfir þriggja prósenta markinu, sem þarf til að komast á þing. 1.5.2012 04:00
Stefnt að hæli í Bandaríkjunum Bandarískir og kínverskir embættismenn vinna nú að samkomulagi um að kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng fái hæli í Bandaríkjunum. Búist er við niðurstöðu innan skamms, að minnsta kosti áður en Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur í heimsókn til Kína síðar í vikunni. 1.5.2012 03:15