Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ylurinn smýgur inn í moldina Sumir leggja meiri vinnu í matjurtagarða sína en aðrir. Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari á Salon Reykjavík er einn þeirra. Hann hefur smíðað volduga viðarkassa til að bæta ræktunarskilyrðin. 14.5.2012 22:00
Forsetinn er ekki upp á punt Andrea Jóhanna Ólafsdóttir telur ekki tímabært að spá fyrir um fylgi hennar. Hún lýsir því fyrir Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur hvernig kjósendur muni fylkjast að baki henni þegar þeir byrja að kynna sér stefnumál forsetaframbjóðenda fyrir alvöru. 14.5.2012 21:00
Lífeyrissjóðir bjóða ríkinu að kaupa kröfur og taka á sig allan kostnað Lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að hjálpa stjórnvöldum að finna viðeigandi lausnir á vanda skuldara með lánsveð. Þetta segir framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Afstaða sjóðanna til afskrifta sé hins vegar óbreytt. 14.5.2012 19:45
Ástæður þess að forseti Vítisengla var rekinn úr klúbbnum Þrjár ástæður eru fyrir því að Einar "Boom‟ Marteinsson var rekinn úr Vítisenglum. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögreglan hefur tekið saman um starfsemi Vítisengla og Vísir hefur undir höndum. 14.5.2012 17:28
Palestínskir fangar binda enda hungurverkfall Rúmlega 1.600 palestínskir fangar í Ísrael hafa ákveðið að binda enda á hungurverkfall sitt eftir að samkomulag náðist við yfirvöld í Ísrael um að úrbætur verði gerðar á aðstæðum í fangelsunum. 14.5.2012 16:38
Egill fluttur í lífshættu á gjörgæslu Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, var fluttur í bráðri lífshættu á slysadeild Landspítalans í hádeginu á laugardaginn. Samkvæmt upplýsingum Vísis er hann með heilahimnubólgu og hefur verið í einangrun á gjörgæsludeild frá því hann var lagður inn. 14.5.2012 16:36
Hundaníðingur í skilorðsbundið fangelsi - má ekki eiga hund í 5 ár Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir drekkja hundi á Þingeyri í byrjun desember á síðasta ári. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum en hundshræið fannst í höfninni í bænum. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa drekkt hundinum. Hann þarf að greiða 100 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs og þá er hann einnig sviptur heimild til að hafa dýr í umsjá sinni í fimm ár. 14.5.2012 16:23
Björgunarsveitir sinna útköllum vegna ófærðar Björgunarsveitir slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðar út á þremur stöðum vegna ófærðar í dag. 14.5.2012 15:35
Grunnur skjálfti við Herðubreið Grunnur jarðskjálfti varð klukkan 12:45 í dag, rúmlega 3.5 kílómetrum VSV af Herðubreið. 14.5.2012 15:06
Bæjarfulltrúa hótað líkamsmeiðingum "Ég og einnig maðurinn minn höfum fengið símhringingar þar sem honum hefur verið sagt að árásir á mig og mína fjölskyldu séu hafnar og muni fólk ekki hætta fyrr en tekist hafi að flæma okkur í burtu," segir Kolfinna S. Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Garði, í samtali við Víkurfréttir. 14.5.2012 14:17
Þóra óskar Ólafi Ragnari til hamingju með afmælið Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi óskar Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til hamingju með afmælið á Facebook-síðu sinni í dag. Ólafur Ragnar fagnar 69 ára afmæli sínu í dag, 14. maí. Í færslu á síðu sinni segir Þóra að þau hjónin bíði í rólegheitunum eftir nýjasta fjölskyldumeðliminum en Þóra á von á barni á næstu dögum. 14.5.2012 13:09
Smyglarar áfram í gæsluvarðhaldi Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 11. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli almannahagsmuna, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir, sem allir eru pólskir, eru grunaðir um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum, eða 8,5 kg af amfetamíni. Mennirnir voru handteknir um miðjan apríl, sama dag og þeir höfðu komið hingað með flugi frá Póllandi. Það var fíkniefnahundurinn Nelson sem kom upp um smyglið á fíkniefnunum. Í Fréttablaðinu, stuttu eftir fundinn, kom fram að mennirnir hafi áður flutt fíkniefni til landsins. 14.5.2012 12:33
Laus eftir að hafa stungið konu tólf sinnum - móðir konunnar óttaslegin 28 ára gömul kona sem lifði af morðtilraun í Kópavogi í lok apríl furðar sig á því að árásarmaður hennar gangi laus. Hún hlaut tólf hnífstungur og óttast mjög að á hana verði ráðist aftur. Konan undrar sig á því að lögreglan krefjist ekki frekara gæsluvarðhalds yfir árásarmanninum og ætlar að flýja land. 14.5.2012 00:00
Fordæma hótanir í garð bæjarfulltrúa Bæjarfulltrúar D-listans í Garði og Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri fordæma þær árásir sem bæjarfulltrúinn Kolfinna S. Magnúsdóttir hefur mátt þola síðustu daga eftir að hún sagði skilið við meirihlutann og myndaði nýjan meirihluta með L-lista og N-lista. Í samtali við Víkurfréttir í dag segir Kolfinna að sér hafi borist stöðugar símhringingar þar sem hótað er að gengið verði í skrokk á henni. Bæjarstjórinn og bæjarfulltrúar biðja íbúa í Garði að sýna stillingu og virða skoðanir fólks. Kolfinna ætlar að leggja fram kæru hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna hótananna. 14.5.2012 16:11
Svíi ákærður fyrir þrjú morð Svíinn Peter Mangs var dreginn fyrir dómstóla í Malmö í dag. Mangs, sem er fertugur, er sakaður um að hafa skotið þrjár manneskjur til bana í Malmö og reynt að bana tólf til viðbótar, nokkrir af þeim særðust alvarlega. 14.5.2012 16:03
Tilbúin að verja ríkisstjórnina falli Þingmenn Hreyfingarinnar eru tilbúnir að verja ríkisstjórnina falli takist samningar um framgang ákveðna mála sem flokkurinn telur brenna helst á þjóðinni. Þau Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir funduðu í gær með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, formönnum ríkisstjórnarflokanna eftir að þau sendu þeim bréf um hugsanlegt samstarf. 14.5.2012 14:38
Danska parið lifði flugslysið af Fimmtán fórust og sex komust lífs af úr flugslysi í norðurhluta Nepal í nótt. Danskt par er á meðal þeirra sem lifðu slysið af. Danska ríkisútvarpið hefur eftir móður dönsku konunnar að parið hafi sloppið vel úr slysinu - þau séu einungis með marbletti en engin beinbrot. Vélin var að undirbúa lendingu á Jomsom flugvellinum þegar flugvélin skall á fjallshlíð í grenndinni. Svæðið er afar vinsælt á meðal klifurgarpa og göngufólks. Yfirvöld í landinu rannsaka nú tildrög slyssins. 14.5.2012 12:14
Fórnarlömb Breiviks lýstu hryllingnum í Útey Tilfinningaþrungin stund var í dómsal í Osló í dag þegar fórnarlömb sem særðust í árás Anders Behring Brevik í Útey lýstu því hvernig þau komust lífs af. 14.5.2012 12:04
Viðskiptabann á Íslendinga ef ekki verður samið fljótlega María Damanaki, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, segir að ef ekki náist samkomulag í makríldeilunni fljótlega muni Evrópusambandið setja á viðskiptabann á fiskinnflutning Íslendinga og Færeyja. 14.5.2012 12:00
Órói í Kötlu olli smáhlaupi í Múlakvísl Lítið Kötluhlaup varð í kringum síðustu mánaðamót og stóð í nokkra daga. Órói í eldstöðinni kom fram á jarðskjálftamæli og aukin rafleiðni mældist í Múlakvísl. 14.5.2012 12:00
Leita að hótelgesti sem stundar það að stinga af Lögreglan á Hvolsvelli tók við fjársvikakæru í vikunni en málin snýst um erlendan aðila sem bókaði sig inn á hótel í umdæminu á dögunum. Hann lét sig síðan hverfa frá ógreiddum reikningnum. Að sögn lögreglu hefur sami maður stundað þessa iðju víða um landið. Lögreglan leitar hans en hún telur sig vita um hvaða mann er að ræða. 14.5.2012 10:50
Ákvörðun um ákæru tekin á næstu vikum Ríkissaksóknari reiknar með að taka ákvörðun á næstu vikum hvort ákæra verði gefin út í máli Egils Einarssonar, betur þekktum sem Gillzenegger, og unnustu hans, en þau voru kærð fyrir nauðgun á síðasta ári. 14.5.2012 13:21
Leggja væntanlega til breytingar á veiðigjaldi Atvinnuveganefnd Alþingis stefnir að því að afgreiða kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar úr nefnd öðru hvoru megin við næstu helgi. Meirihluti nefndarinnar mun væntanlega leggja til breytingar á veiðigjaldi en önnur atriði eru einnig til skoðunar. 14.5.2012 12:01
Kartöflubændur komu í veg fyrir stórtjón Kartöflubændur á Hornafjarðarsvæðinu, sem er eitt af mestu kartöflusvæðum landsins, náðu flestir eða allir að verjast stórtjóni af óveðrinu með vökvun. 14.5.2012 11:03
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Tveir voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á mótum Lyngháls og Stuðlaháls í Hálsahverfinu í Reykjavík á tíunda tímanum. 14.5.2012 10:12
Segjast hafa fellt tugi sýrlenskra hermanna Uppreisnarmenn í Sýrlandi fullyrða að 23 stjórnarhermenn hafi fallið í borginni Rastan í morgun. Þá segir að tugir séu særðir en þrír herflutningabílar voru sprengdir í loft upp í árás uppreisnarmanna. 14.5.2012 09:26
Paul Watson í haldi - verður mögulega framseldur Paul Watson, hinn umdeildi stofnandi Sea Shepherd samtakanna sem berjast gegn hvalveiðum hefur verið handtekinn í Þýskalandi. Svo gæti farið að hann verði framseldur til Costa Rica en þar hefur hann verið eftirlýstur frá árinu 2002 þegar samtökin skárust í leikinn og stöðvuðu ólöglegar hákarlaveiðar úti fyrir ströndum landsins. 14.5.2012 09:25
Grikkir þurfa líklega að kjósa aftur Fátt getur nú komið í veg fyrir að forseti Grikklands neyðist til að blása til kosninga í landinu að nýju. Tilraunir til myndunar neyðarstjórnar virðast farnar út um þúfur. 14.5.2012 09:19
Skemmtiferðaskip sigldi framhjá skipbrotsmönnum Sjómaður frá Panama, sem lifði það af að vera 28 daga á reki á Kyrrahafi, hefur kært eigendur skemmtiferðaskips sem sigldi fram hjá honum og tveimur félögum hans. Hinir skipverjarnir tveir fórust báðir en Adrian Vasquez lifði af og hefur nú kært skipafélagið fyrir rétti í Flórída. 14.5.2012 09:16
Fá skip á sjó Aðeins 140 skip eru á sjó umhverfis landið og þá eingöngu stór skip. Þetta eru mikil umskipti frá fimmtudeginum í síðusut viku þegar 925 skip voru á sjó. Nú er bræla á flestum eða öllum miðum smábáta, þannig að strandveiðiflotinn er í landi. Ekki er vitað til að neitt skip hafi fengið á sig alvarlegan brotsjó þótt víða sé töluverð ölduhæð. 14.5.2012 09:10
Von er á bótakröfum vegna strandstígs Landeigendur á Arnarnesi krefjast bóta samþykki bæjaryfirvöld nýtt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir almenningsstígum við strandlengjuna. Í lögfræðiáliti fyrir bæinn segir að landeigendurnir hafi réttinn sín megin. 14.5.2012 08:00
Nóg að gera hjá björgunarsveitum og lögreglu Enn er stormur og éljagangur um suðaustanvert landið, hvasst og gengur á með éljum á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Töluvert öskufok er úr Eyjafjallajökli er sumstaðar á Suðurlandi, og moldrok ofan af hálendinu. 14.5.2012 07:07
Flugslys í Nepal - tveir Danir um borð Að minnsta kosti ellefu fórust í flugslysi í Nepal í nótt þegar vél með 21 mann innanborðs hlekktist á í lendingu í norðurhluta landsins. Að sögn björgunarmanna var um sjö karlmenn að ræða og fjórar konur. Sex komust hinsvegar af, þar á meðal tvö börn að því er fram kemur hjá fréttastofunni Sky. 14.5.2012 07:03
Helmingurinn vildi sjá þyngri refsingar Ný rannsókn leiðir í ljós afar ólík viðhorf fólks til refsinga við afbrotum, sér í lagi þegar kemur að kynferðisbrotum. Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands, kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar á 50 ára afmælisráðstefnu Norræna sakfræðiráðsins sem fram fór á Hótel Selfossi í byrjun vikunnar. 14.5.2012 06:00
Hátt í fimmtíu lík fundust á þjóðvegi Fjörutíu og níu aflimuð og afskræmd lík fundust í plastpokum á þjóðvegi sem tengir saman borgina Monterrey og bandarísku landamærin. Þetta er enn eitt áfallið í baráttu yfirvalda gegn sífellt versnandi stríði á milli mexíkóskra eiturlyfjagengja. 14.5.2012 05:30
Fimm manns fórust í Tbilisi Fimm manns fórust af völdum mikilla flóða í Tbilisi, höfuðborg Georgíu í gær. Móðir með tvö ung börn, eldri kona og eldri maður fórust í Ortachala-hverfinu eftir að áin Kura flæddi yfir bakka sína. Þau festust öll inni á heimilum sínum og létust þegar híbýlin hrundu. Að sögn sjónarvotta fór vatnshæðin sums staðar yfir þrjá metra. Rafmagn fór af mörgum hverfum og bílar flutu eftir götunum. Herinn í Georgíu aðstoðaði fólk sem var í vanda statt og hjálpaði því að færa sig um set. Spáð er rigningu næstu þrjá daga í Georgíu. -fb 14.5.2012 05:00
Alltaf náðað vegna alvarlegra veikinda Umsóknir fanga um náðanir hafa allar verið samþykktar á grundvelli heilsufarsástæðna. Síðan 1980 hafa alls verið náðaðir 167 einstaklingar hér á landi, þar af 45 á síðustu 16 árum. Skúli Þór Gunnsteinsson, lögfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu, segir allar náðanir byggðar á læknisfræðilegum rökum. 14.5.2012 04:00
Egyptar spá í forsetakjörið Tveir forsetaframbjóðendur mættust í sjónvarpskappræðum í Egyptalandi fyrir helgina. Þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem Egyptar upplifa þessa tegund kosningabaráttu og þá opinskáu gagnrýni sem henni getur fylgt. 14.5.2012 03:15
Harry Bretaprins verðlaunaður Harry Bretaprins var verðlaunaður fyrir góðgerðastarf sitt í þágu særðra hermanna í kvöldverðarboði í Washington. Þetta var fyrsta heimsókn Harrys til bandarísku höfuðborgarinnar. 14.5.2012 03:15
Aðstoða sjófarendur á Faxaflóa Faxaflóahafnir sf. styrkja starfsemi Landsbjargar, Björgunarbátasjóðs Reykjavíkur og fjögurra björgunarsveita við Faxaflóa næstu fimm árin. Skrifað var undir samning þessa efnis á aðalfundi Faxaflóahafna á laugardag. Alls greiða Faxaflóahafnir út á samningstímanum tíu milljónir króna, tvær milljónir hvert ár. 14.5.2012 03:15
Lést í hlíðum Esjunnar Karlmaður sem var á göngu í Esjunni í dag varð bráðkvaddur uppi á fjallinu. Eins og greint var frá í fréttum í dag var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út auk sjúkraflutningamanna og björgunarsveitamanna. Þyrlan gat ekki athafnað sig vegna óveðurs. Maðurinn var því borinn niður. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á slysadeild Landspítalans var hann látinn þegar þangað var komið. 13.5.2012 22:32
Berfættur prestur fór á bólakaf Það var líf og fjör í Salalauginni í dag þar sem hópur barna var mættur ásamt foreldrum sínum til að taka þátt í sunnudagsskóla Lindakirkju. Börnin tóku vel undir þegar sungið var og busluðu á meðan þau hlýddu á boðskap prestsins sem var berfættur. 13.5.2012 19:49
Jóhanna segir samskipti við forsetann í samræmi við hefðir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi, í samskiptum sínum við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, í einu og öllu fylgt stjórnarskrá og mótuðum stjórnskipunarhefðum. Það sé því óhjákvæmilegt að vísa á bug öllum ásökunum um að annað hafi átt við í samskiptum ríkisstjórnarinnar eða forystumanna hennar og núverandi forseta. 13.5.2012 18:05
Ari Trausti hefur lokið undirskriftasöfnun Ari Trausti Guðmundsson lauk í gær undirskriftarsöfnun vegna meðmæla með framboði sínu til embættis forseta Íslands. Það var gert í ferð til Mið-Norðurlands nú um helgina. Með síðustu undirskriftanna voru þær sem fengust á stuttum en skemmtilegum fundi að kvöldi föstudagsins síðasta í Grímsey. Flogið var til eyjarinnar á lítilli og nýuppgerðri tveggja hreyfla Piper Apache-vél og skundað í félagsheimilið þar sem heitt kaffi beið á könnu og hressir Grímseyingar tóku á móti gestunum. 13.5.2012 17:09
Varaformaður Samfylkingarinnar gagnrýnir forsetann Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir málflutning Ólafs Ragnars Grímssonar á Bylgjunni í morgun á facebooksíðu sinni. Þar spyr hann hvort Ólafur telji, eftir sextán ár í embætti, að nú þurfi að standa vörð um kvótann og krónuna, hrósa Davíð Oddssyni og sparka í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Dagur spyr hvort til of mikils sé ætlast að Íslendingar geti átt eitt embætti sem sameini þjóðina. Viðtalið við Ólaf Ragnar má sjá á fréttavef okkar Vísi. 13.5.2012 15:14