Erlent

Paul Watson í haldi - verður mögulega framseldur

Paul Watson, hinn umdeildi stofnandi Sea Shepherd samtakanna sem berjast gegn hvalveiðum hefur verið handtekinn í Þýskalandi. Svo gæti farið að hann verði framseldur til Costa Rica en þar hefur hann verið eftirlýstur frá árinu 2002 þegar samtökin skárust í leikinn og stöðvuðu ólöglegar hákarlaveiðar úti fyrir ströndum landsins.

Áhöfn hákarlabátsins heldur því fram að verndarsinnarnir hafi reynt að drepa þá en samtökin segja það algjöra fyrru og segjast hafa myndbandsupptökur sem sanni það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×